Ríkið, olíurisinn, Polska Press og umboðsmaðurinn

Á mánu­dag frysti dóm­stóll í Varsjá kaup olíu­fé­lags­ins Orlen á einni stærstu fjöl­miðla­sam­steypu lands­ins. Sjálf­stæður umboðs­maður þings­ins kærði ákvörðun sam­keppn­is­yf­ir­valda um við­skiptin og telur þau vega að fjöl­miðla­frelsi í land­inu. Það telja fleiri.

Orlen er stærsta fyrirtæki Póllands og lýtur stjórn ríkisins, sem á í því 27,5 prósent hlut.
Orlen er stærsta fyr­ir­tæki Póllands og lýtur stjórn rík­is­ins, sem á í því 27,5 pró­sent hlut. Mynd: EPA

Í Póllandi standa nú yfir athygl­is­verðar deilur, en á mánu­dag frysti dóm­stóll í höf­uð­borg­inni Varsjá kaup olíu­fé­lags­ins PKN Orlen á útgáfu­fé­lag­inu Polska Press Group, sem er eitt stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Það gefur út 20 stað­bundin dag­blöð, fjöl­mörg viku­rit af ýmsu tagi og er einnig með umsvifa­mikla útgáfu á net­inu.

Olíu­fé­lagið er stærsta fyr­ir­tæki Póllands. Það er í 27,5 pró­sent eigu ríkis og með sterk tengsl við stjórn­völd. Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa horft á kaup þess á Polska Press sem enn eina aðgerð­ina sem miðar að því að sölsa stofn­anir í land­inu undir hæl ráð­andi afla, stjórn­ar­flokks­ins Laga og rétt­lætis (PiS). Orlen hefur neitað þessu og segir kaupin ein­göngu fara fram á við­skipta­legum for­sendum.

Daniel Obajtek, for­stjóri Orlen, er þó með sterk tengsl við ráð­andi öfl í land­inu. Vefritið Visegrád Post lýsir risi hans frá því að PiS komst til valda árið 2015 sem allt að því stjarn­fræði­legu. Í nýlegri umfjöllun segir að álits­gjafar lýsi honum sem einum nán­asta trún­að­ar­manni Jaroslaws Kaczynski, leið­toga PiS. Hann sé jafn­vel tal­inn hafa meira vald en almennir ráð­herrar í rík­is­stjórn lands­ins og nýlega hafi verið á kreiki sögu­sagnir (sem var neitað) um að hann væri við það að taka við sem for­sæt­is­ráð­herra lands­ins af Mateusz Morawiecki.

Stjórnvöld vilja koma pólskum miðlum í pólska eigu

Kaup Orlen á Polska Press voru und­ir­rituð með fyr­ir­vara um sam­þykki pólsku sam­keppnis- og neyt­enda­mála­stofn­un­ar­innar (UOKiK) í des­em­ber­mán­uði, en Polska Press var áður í eigu þýska útgáfu­fé­lags­ins Verlags­gruppe Passau.

Stjórn­völd í Póllandi hafa verið opin­ská með að þau vilji að fjöl­miðlar í land­inu séu í pól­skri eigu. Hafa ráða­menn farið fram með kenn­ingar þess efnis að miðlar í eigu útlend­inga, sem séu allt of margir, stundi and­pólskan áróður. Ákveðnir miðlar, sem hafa verið gagn­rýnir á þróun mála og stefnu rík­is­stjórn­ar­innar í Póllandi und­an­farin ár, séu að ganga erinda Evr­ópu­sam­bands­ins eða Banda­ríkj­anna.

Á sama tíma hafa ráð­andi öfl í Póllandi hert mjög tök sín á rík­is­reknum fjöl­miðlum und­an­farin ár, raunar svo mjög að fyrir löngu hafa frétta­menn þar sjálfir ljáð máls á því að þeim líði eins og þeir séu að starfa fyrir áróð­urs­vél PiS. Margir blaða- og frétta­menn hafa hætt á rík­is­miðl­unum vegna óboð­legra starfs­að­stæðna, eða verið látnir fara fyrir að láta illa að stjórn.

Frá árinu 2015 hefur Pólland fallið úr 18. sæti niður í 62. sæti á fjöl­miðla­frels­is­mæli­kvarða Blaða­manna án landamæra, World Press Freedom Index.

Umboðsmaður kærði ákvörðun samkeppnisstofnunarinnar

Ekki leit út fyrir annað en að kaupin á Polska Press væru að ganga í gegn í febr­ú­ar­mán­uði, en þá kom grænt ljós frá sam­keppn­is­mála­stofn­un­inni. Adam Bodnar, sem gegnir emb­ætti umboðs­manns mann­rétt­inda og er skip­aður í það emb­ætti af þing­inu, greip þá til sinna ráða.

Hann kærði ákvörðun sam­keppn­is­stofn­un­ar­innar og sagði stofn­un­ina ekki hafa skoðað hvort kaup Orlen á Polska Press myndu hafa skað­leg áhrif á fjöl­miðla­frelsi í Póllandi. Dóm­stóll­inn í Varsjá féllst á að frysta kaupin af þessum sökum og ógilti ákvörðun UOKiK.

Í umfjöllun Politico um málið segir að sam­keppn­is­stofn­unin hafi svarað þess­ari nið­ur­stöðu með því að gagn­rýna dóm­stól­inn, sem hefði með þess­ari ákvörðun sinni sett vafa­samt for­dæmi. Í yfir­lýs­ingu stofn­un­ar­innar hefði komið fram að það væri utan hennar hæfn­is­viðs að meta hvort við­skipti hefðu skað­leg áhrif á fjöl­miðla­frelsi.

Óljóst er hvert fram­haldið á þess­ari sögu verður – en Obajtek, for­stjóri Orlen, sagði dóm­stól­inn hrein­lega ekki hafa vald til þess að stöðva kaup félags­ins á Polska Press, þar sem þau hafi form­lega gengið í geng þegar í upp­hafi mars­mán­aðar. Á Twitter-reikn­ingi sínum lýsti Obajtek því yfir að ákvörðun dóm­stóls­ins skipti í raun­inni engu máli.

Síðasta verk umboðsmannsins?

Það gæti orðið síð­asta verk Bodnar sem umboðs­manns mann­rétt­inda í Póllandi að leggja stein í götu þess­ara við­skipta, þó ef til vill verði það bara tíma­bundið. Fimm ára skipan hans rann form­lega út í sept­em­ber­mán­uði og mikið þrá­tefli hefur verið í pólska þing­inu um hver skuli taka við af honum, allar götur síðan.

Sam­þykkja þarf nýjan umboðs­mann í báðum deildum þings­ins. Stjórn­ar­and­staðan, sem er með nauman meiri­hluta í efri deild­inni, hefur neitað að sam­þykkja full­trúa sem neðri deild þings­ins, þar sem stjórn­ar­liðar hafa meiri­hluta, til­nefnir.

[adspot]

Bodnar hefur ákveðið að halda áfram að sinna sínum störfum á meðan ekki er búið að útkljá málin, en lög segja til um að þannig eigi hlut­irnir að ganga fyrir sig.

Það er hins vegar umdeilt á sviði stjórn­mál­anna. Stjórn­laga­dóm­stóll Póllands mun á morgun, fimmtu­dag, kveða upp úrskurð um það hvort Bodnar megi starfa áfram þar til eft­ir­maður hans er fund­inn. Stjórn­ar­liðar eru að láta reyna á lögin sem heim­ila Bodnar að starfa eftir skip­un­ar­tíma sinn.

Fen­eyja­nefndin, ráð­gjafa­hópur Evr­ópu­ráðs­ins um stjórn­ar­skrár­tengd mál­efni, lýsti yfir þungum áhyggjum af stöðu mála skömmu eftir að skipan Bodnar rann út síð­asta haust og sagði það vega að rétt­indum pól­skra borg­ara og ann­ara íbúa lands­ins ef emb­ætti umboðs­manns fengi ekki að starfa eðli­lega.

Í frétt AP-frétta­stof­unnar um afstöðu Fen­eyja­nefnd­ar­innar segir að emb­ætti umboðs­manns­ins hafi verið nán­ast eina stofnun pólska rík­is­ins sem staðið hafi sjálf­stæð í gegnum stjórn­ar­tíð Laga og rétt­lætis, þar sem jafn­vel dóms­valdið hefur færst undir hæl fram­kvæmda­valds­ins.

Stjórn­ar­liðar hafa hins vegar sumir sakað Bodnar um að vera mál­pípa stjórn­ar­and­stöð­unnar – jafn­vel flugu­maður erlendra ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár