Annað hvort ætti að selja að minnsta kosti 25 prósent hlut í Íslandsbanka í hlutafjárútboði og skrá þau bréf tvíhliða á markað, eða að selja allt að öllu hlutafé í bankanum með uppboðsleið þar sem önnur fjármálafyrirtæki eða sjóðir geti gert tilboð í hann. Þetta kemur fram í minnisblaði Bankasýslu ríkisins, stofnunar sem heldur utan um eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem lagt var fram á fundi ráðherranefndar um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins fyrir um tveimur vikum.
Greint er frá þessu í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um efnahagsmál og viðskipti, í dag. Þar segir þó einnig að ekkert hafi enn verið ákveðið af hálfu stjórnvalda um hvenær eigi að hefja sölu á ríkisbönkunum, Íslandsbanka og Landsbanka.
Heimild til að selja
Íslenska ríkið á sem stendur tvo banka, Íslandsbanka og Landsbankann. Heimild er fyrir því í fjárlögum að selja allt hlutafé ríkisins í Íslandsbanka og allt utan 34 prósenta í Landsbankanum. Samanlagt eigið fé bankanna tveggja í dag er um 417 milljarðar króna. Ríkisbankarnir greiddu eigendum sínum 207 milljarða króna í arð á árunum 2013-2018.
Í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, sem birt var í desember í fyrra, var fjallað ítarlega um hvernig skuli standa að sölu á hlutafé í ríkisbönkunum, Landsbankanum og Íslandsbanka, og er horft til þess að nota skráðan markað til þess að endurskipuleggja eignarhald með þeim hætti, að dreift og traust eignarhald verði hluti af fjármálakerfinu til framtíðar.
Þá var einnig lagt til að það verði skoðað gaumgæfilega hvernig megi efla samstarf bankanna á sviði innviða í fjármálakerfinu, til að auka hagræðingu í bankakerfinu og bæta þannig kjör til neytenda.
Yfirgnæfandi andstaða við það að selja bankana
Alls eru 61,2 prósent landsmanna jákvæðir gagnvart því að íslenska ríkið sé eigandi viðskiptabanka. Fjórðungur þjóðarinnar, 25,2 prósent, hefur enga fastmótaða skoðun á slíku eignarhaldi og einungis 13,5 prósent Íslendinga eru neikvæðir gagnvart slíku eignarhaldi.
Þetta er meðal þess sem kom fram í rannsókn sem Gallup vann fyrir fjármála- og efnahagsráðuneytið og birtist með Hvítbókinni. Markmið könnunarinnar var að skoða ítarlega traust til bankakerfisins á Íslandi, hverjar væru helstu ástæður fyrir vantrausti og hvað mætti betur fara. Úrtakið var 1.408 manns 18 ára og eldri af landinu öllu. Þátttökuhlutfall var 54,5 prósent.
Þegar þeir sem eru jákvæðir gagnvart því að ríkið sé eigandi viðskiptabanka voru spurðir af hverju sögðu 24,4 prósent þeirra, eða tæplega fjórðungur, að ríkið væri betri eigandi en einkaaðili. Fimmtungur sagði að helsta ástæðan væri öryggi og/eða traust og 18,3 prósent vegna þess að arðurinn færi þá til almennings. Þá sögðu 15,7 prósent að helsta ástæða þess að þeir væru jákvæðir gagnvart því að ríkið sé eigandi viðskiptabanka vera þá að það þýddi að minni líkur væru á því að hlutirnir myndu enda illa og að spilling og græðgi yrði minni.
Þeir sem voru neikvæðir gagnvart því að ríkið væri eigandi viðskiptabanka töldu það ekki vera hlutverk ríkisins né að það væri hæft til þess að eiga viðskiptabanka. Þá væri hætta á spillingu og eignarhald á viðskiptabanka væri þar að auki áhættusamt fyrir ríkið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir