Forseti bæjarstjórnar Múlaþings íhugar alvarlega að sækjast eftir þingsæti

Gauti Jóhann­es­son fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri á Djúpa­vogi segir tíma­bært að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eign­ist þing­mann frá Aust­ur­landi og íhugar fram­boð til Alþingis. Kjarninn skoð­aði fram­boðs­mál Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Gauti Jóhannesson er forseti bæjarstjórnar í Múlaþingi og fyrrverandi sveitarstjóri Djúpavogshrepps.
Gauti Jóhann­es­son er for­seti bæj­ar­stjórnar í Múla­þingi og fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps.

Línur eru farnar að skýr­ast hvað varðar fram­boðs­lista stjórn­mála­flokk­anna fyrir kom­andi Alþing­is­kosn­ingar. Víða er orðið ljóst hvaða fólk mun skipa efstu sæti fram­boðs­lista eða gefur kost á sér til þess að taka efstu sæti á listum.

Nokkur óvissa og spenna er þó til staðar, til dæmis hvað fram­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi varðar. Kjarninn kann­aði hug nokk­urra þeirra sem hafa verið nefnd á nafn í sam­hengi við mögu­legt fram­boð í kjör­dæm­inu.

Flokk­ur­inn er í dag með tvo þing­menn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þá Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Njál Trausta Frið­berts­son. Báðir eru þeir af Eyja­fjarð­ar­svæð­inu þar sem meiri­hluti kjós­enda kjör­dæm­is­ins býr, en kjör­dæmið er víð­femt og nær frá Siglu­firði og suð­austur á Djúpavog.

Óljóst er hvað Kristján Þór ætlar sér að gera varð­andi fram­boð. Hann hefur ekki brugð­ist við fyr­ir­spurn Kjarnans um fyr­ir­ætl­anir sínar. Njáll Trausti hefur hins vegar þegar gefið það út að hann muni gefa kost á sér að nýju.

Gauti hugsar sig „mjög alvarlega“ um

Nokkur önnur nöfn hafa verið nefnd í sam­hengi við mögu­legt fram­boð, meðal ann­arra nafn sveit­ar­stjór­ans á Húsavík, Kristján Þórs Magn­ús­sonar. Hann hefur ekki brugð­ist við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Það gerði hins vegar Gauti Jóhann­es­son, for­seti sveit­ar­stjórnar Múla­þings, sem áður var sveit­ar­stjóri Djúpa­vogs­hrepps. Í sam­tali við Kjarnann seg­ist hann hafa „hugsað þetta mjög alvar­lega“. Hann hafi hins vegar haft í nógu öðru að snú­ast upp á síðkastið.

[adspot]

Sveit­ar­stjórn Múla­þings hefur verið að takast á við þau fjöl­mörgu verk­efni sem fylgja skriðu­föll­unum miklu á Seyð­is­firði fyrir jól ofan á það stóra verk­efni sem blasti við sveit­ar­stjórn­inni, að fylgja sam­ein­ingu fjög­urra sveit­ar­fé­laga úr garði.

[links]

„Ég hef bara ekki gefið mér tíma til þess að setj­ast og fara yfir þetta með mínu bak­landi. Ég á nú svona frekar von á því að gera það fljót­lega,“ segir Gauti. Hann segir í sam­tali við blaða­mann að undir hans for­ystu hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn unnið kosn­inga­sigur í Múla­þingi síð­asta haust, en flokk­ur­inn myndar meiri­hluta ásamt Fram­sókn­ar­flokki í sveit­ar­fé­lag­inu.

Gauti seg­ist vera þeirrar skoð­unar að það sé „löngu tíma­bært að sjálf­stæð­is­fólk á Aust­ur­landi eigi full­trúa á þingi“ en ein­stak­lingur með fasta búsetu á Aust­ur­landi hefur ekki setið á þingi fyrir hönd flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi síðan árið 2009, er Arnbjörg Sveins­dóttir lét af þing­mennsku. Það er þó vert að taka fram að Tryggvi Þór Her­berts­son, sem sat á þingi fyrir flokk­inn frá 2009-2013 er fæddur og upp­al­inn í Nes­kaup­stað.

Ásthildur og Jens Garðar í skemmtilegum störfum

Nöfn Ást­hildar Sturlu­dóttur bæj­ar­stjóra á Akureyri og Jens Garðars Helga­sonar, for­manns Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og bæj­ar­full­trúa í Fjarða­byggð, hafa einnig verið nefnd í sam­hengi við mögu­legt fram­boð til efstu sæta á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Ekkert virð­ist þó hæft í slíkum sam­kvæm­is­leikjum og segja þau bæði við Kjarnann að þau séu í skemmti­legum störfum sem þau ætli sér ekki að hverfa frá.

„Ég sinni mjög góðu starfi og skemmti­legu og hef ekki hug á því að fara í fram­boð eins og sakir standa,“ segir Ást­hildur.

Jens Garðar segir ekk­ert hæft í því að hann hyggi á sókn eftir þing­sæti, en hann er fram­kvæmda­stjóri Laxa-fisk­eldis og segir alveg „ofboðs­lega spenn­andi verk­efni“ að takast á við í upp­bygg­ingu lax­eldis á Aust­fjörðum. Hann úti­lokar þó ekki að verða ein­hvers­staðar neðar á fram­boðs­lista flokks­ins í kjör­dæm­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár