Allir stóru bankarnir búnir að hækka íbúðalánavexti og heimilin borga meira

Rúmlega helm­ingur allra sem eru með íbúða­lán á Íslandi eru með óverð­tryggð lán. Stór hluti þeirra lána er á breyti­legum vöxtum og afborg­anir þeirra hafa hækkað í takti við stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans und­an­farna mán­uði.

Arion banki til­kynnti í dag að hann hefði hækkað óverð­tryggða breyti­lega íbúða­lána­vexti sína um 0,15 pró­sentu­stig, í 3,89 pró­sent, og fasta óverð­tryggða vexti til þriggja ára um sama pró­sentu­stig, og eru þeir frá og með morg­un­deg­inum 4,64 pró­sent. Skömmu síðar til­kynnti Íslands­banki hækkun á sínum breyti­legu óverð­tryggðu íbúða­lána­vöxtum um 0,15 pró­sentu­stig.

Lands­bank­inn breytti sínum vöxtum á mánu­dag þegar hann hækkað breyti­legu óverð­tryggðu vext­ina um 0,2 pró­sentu­stig (vextir á láni fyrir 70 pró­sent af kaup­verði eru nú 3,85 pró­sent), föstu óverð­tryggðu vext­ina til þriggja ára um 0,15 pró­sentu­stig og föstu vext­ina til fimm ára um 0,15 pró­sentu­stig.

Þar með hafa allir stóru við­skipta­bank­arnir þrír til­kynnt hækk­anir á íbúða­lána­vöxtum sínum í vik­unni. Engar breyt­ingar hafa verið gerðar á verð­tryggðum vöxtum.

Ástæðan fyrir hækk­un­inni er stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í byrjun mán­aðar, en þá voru stýri­vextir hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig í 1,5 pró­sent. Frá því að hækk­un­ar­ferli stýri­vaxta hófst hjá bank­anum í maí hafa þeir tvö­fald­ast.

Frá því að stýri­vextir voru lækk­aðir stór­kost­lega í fyrra­vor, niður í 0,75 pró­sent, átti sér stað mikil til­færsla á lánum frá líf­eyr­is­sjóðum til banka og í óverð­tryggð lán. Ástæðan var ein­föld: þeir buðu betur og líf­eyr­is­sjóð­irnir voru farnir að reka sig upp í þakið á því sem þeir gátu lánað sjóðs­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa.

Nú bjóða bank­arnir hins vegar ekki lengur lægstu óverð­tryggðu vext­ina, heldur líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi. Sem stendur eru óverð­tryggðir vextir hans á 75 pró­sent láni um 3,55 pró­sent.

Helmingur lána óverðtryggður

Hlut­fall óverð­tryggðra lána af heildar­í­búða­lánum til heim­il­anna var 27,5 pró­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­ast­liðnum var það hlut­fall hins vegar komið upp í 50,2 pró­sent. Í nýlegri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um íbúða­mark­að­inn er bent á að eftir því sem hlut­deild óverð­tryggðra íbúða­lána eykst sé við­búið að miðlun pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans verði virk­ari. „Breyt­ingar á stýri­vöxtum munu hafa meiri áhrif á hag­kerfið í heild þegar stærra hlut­fall af heildar­í­búða­lánum til heim­il­anna eru óverð­tryggð þar sem óverð­tryggðir vextir eru næm­ari fyrir stýri­vaxta­breyt­ing­um. Þessi þróun getur leitt til þess að Seðla­bank­inn þurfi ekki að hækka vexti eins mikið til að slá á eft­ir­spurn og ef hlut­fall óverð­tryggðra lána væri lægra.“

Sóknin í fast­vaxta­lánin eftir að vextir tóku að hækka er líka nokkuð skýr í töl­unum sem HMS birtir í skýrsl­unni sinni. Þar kemur fram að í ágúst hafi 61 pró­sent af nýjum óverð­tryggðum útlánum inn­láns­stofn­ana til heim­il­anna verið fast­vaxta­lán á meðan 39 pró­sent voru á breyti­legum vöxt­um. „Aukn­ing á hlut­falli fast­vaxta­lána bendir til þess að heim­ilin búist við tölu­verðum vaxta­hækk­unum þar sem bilið á milli fastra vaxta og breyti­legra er breitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár