Kínverjar vilja Níðstöngina burt

Ný mynda­stytta, sem komið hefur verið fyrir við Krist­jáns­borg­ar­höll­ina í Kaup­manna­höfn fer mjög fyrir brjóstið á Kín­verjum. Styttan heitir Skams­tøtte, Níðstöng. Ástæðan fyrir upp­setn­ingu stytt­unnar er ástandið í Hong Kong.

Mið­viku­dag­inn 22. jan­úar síð­ast­lið­inn hringdi sím­inn á skipti­borði Kaup­manna­hafn­ar­borgar. Sá sem hringdi var Zhang Shu stjórn­mála­full­trúi kín­verska sendi­ráðs­ins í Danmörku. Hann óskaði eftir að fá að tala við þann sem hefði með að gera leyf­is­veit­ingar fyrir mynda­styttum á almanna­færi í borg­inni. Eftir að sendi­ráðs­full­trú­inn hafði útskýrt erindið nánar fékk hann sam­band við emb­ætt­is­mann hjá borg­inni.

Sendi­ráðs­full­trú­inn sagði að starfs­fólki sendi­ráðs­ins hefði borist til eyrna að til stæði að setja upp mynda­styttu framan við Krist­jáns­borg­ar­höll­ina, og spurði hvort það væri rétt. Nánar til­tekið mynda­stytt­una Skams­tøtte eftir lista­mann­inn Jens Galschiøt, og hvort til­stæði að afhjúpa þessa styttu með við­höfn. Jú, emb­ætt­is­mað­ur­inn sagði að það væri rétt, það yrði gert dag­inn eftir, föstu­dag­inn 23. jan­úar. Þá spurði Kín­verj­inn hvort emb­ætt­is­maður frá borg­inni yrði við­staddur þessa athöfn, því var svarað ját­andi. Þá var spurt hvaða reglur giltu um upp­setn­ingu slíkra verka á almanna­færi. Emb­ætt­is­mað­ur­inn útskýrði regl­urnar og sagði að varð­andi þetta til­tekna verk hefði öllum reglum verið fylgt.

Hvað þýðir Skamstøtte – Níðstöng

Áður en lengra er haldið er rétt að útskýra þetta orð, Skams­tøtte. Dönsk -íslensk orða­bók segir skams­tøtte þýða níð­stöng á íslensku. Níðstöng er stöng sem á er rist níð eða tákn og reist til háð­ungar eða höf­uðs óvini, eða til að magna galdur gegn honum. Í Íslend­inga­sög­unum er sagt frá því að menn hafi rist níð­kvæði á slíkar stangir og sett á þær hross­haus sem lát­inn var vísa í átt að bústað óvin­ars­ins.

Í dönsku er merk­ingin ekki sú sama. Samkvæmt Stóru dönsku orða­bók­inni er skams­tøtte minn­is­varði sem sýnir fyr­ir­litn­ingu á þeim sem minn­is­varð­inn er til­eink­aður og öðrum til áminn­ingar. Þekkt­asti minn­is­varði af þessu tagi í Danmörku er til­eink­aður Corfitz Ulfeldt sem dæmdur var til dauða (að honum fjar­stöddum) fyrir föð­ur­lands­svik árið 1663.

Jens Galschiøt og Skamstøtten

Skapari stytt­unnar sem stendur við Krist­jáns­borg­ar­höll­ina í Kaup­manna­höfn er Jens Galschiøt, fæddur árið 1954. Hann lærði járn­smíði við skipa­smíða­stöð­ina í Munkebo á Fjóni. Hann hefur enga form­lega menntun í mynd­list en er í hópi þekkt­ustu núlif­andi mynd­list­ar­manna Dana. Eitt þekktasta verk hans er það sem áður var nefnt, Skams­tøtten. Lista­mað­ur­inn segir hug­mynd­ina að því verki komna frá minn­is­varð­anum um Corfitz Ulfeldt.

Skams­tøtten er átta metra há súla sem sýnir fimm­tíu deyj­andi, eða dánar mann­eskjur í fullri stærð.

[adspot]Styttan er ekki sú fyrsta sem Jens Galschiøt hefur gert og ber þetta heiti, Skams­tøtten. Árið 1996 var styttan sett upp, tíma­bundið, við Ostiense flug­stöð­ina í Róm, í tengslum við ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna. Til­gang­ur­inn var að vekja athygli á hung­ursneyð og fátækt margra jarð­ar­búa. Árið 1997 var sams­konar stytta sett upp í Hong Kong, sama árið og form­leg yfir­ráð svæð­is­ins færð­ust frá Bretum til Kínverja. Styttan var, að sögn lista­manns­ins, minn­is­merki um atburð­ina á Torgi hins himneska friðar (Tian­an­men­torgi) árið 1989 þegar upp­reisn stúd­enta, sem kost­aði mörg hund­ruð, jafn­vel þús­undir manns­lífa, var brotin á bak aftur. Árið 1999 var Skams­tøtte stytta sett upp í Mexíkó og tveimur árum síðar sú þriðja, í Brasilíu. Lang­mesta athygli hefur styttan í Hong Kong vakið, hún er þyrnir í augum kín­verskra yfir­valda og lista­mað­ur­inn er á svörtum lista kín­verskra stjórn­valda, fær ekki vega­bréfs­á­ritun til lands­ins.

Meira um símtalið

Kín­verski sendi­ráðs­full­trú­inn fékk sem sé stað­fest að lista­verkið yrði sett upp, með leyfi borg­ar­innar, og lýsti óánægju með þá ákvörðun. Sagði að Kín­verjar teldu stytt­una gefa ranga mynd af ástand­inu í Hong Kong og að kín­versk stjórn­völd teldu upp­setn­ingu hennar afskipti af kín­verskum inn­an­rík­is­málum. Hún myndi særa þá fjöl­mörgu kín­versku ferða­menn sem leggja leið sína til Kaup­manna­hafnar og skoða höll­ina. Enn­fremur sagði hann að syttan myndi skaða sam­skipti Kínverja og Dana, og það vin­sam­lega and­rúms­loft sem ríkt hefði milli þjóð­anna. Tján­ing­ar­frelsi væri ekki afsökun fyrir að blanda sér í inn­an­rík­is­mál ann­arra þjóða.

Loks sagði hann það hyggi­legt að aft­ur­kalla leyfi fyrir upp­setn­ingu stytt­unnar, í augum Kínverja væri ekki ásætt­an­legt að hún yrði sett upp. Þótt kín­verski sendi­ráðs­full­trú­inn væri kurt­eis fór ekki á milli mála, að mati emb­ætt­is­manns­ins sem við hann ræddi, að í orð­unum fólst hótun og til­raun til afskipta af dönskum inn­an­rík­is­málum. Sím­tal­inu lauk með því að danski emb­ætt­is­mað­ur­inn mælti með að kín­verska sendi­ráðið hefði sam­band við danska utan­rík­is­ráðu­neyti varð­andi málið ef slíkt teld­ist nauð­syn­legt.

Yfirlýsing sendiráðsins

Það var dag­blaðið Jót­land­s­póst­ur­inn sem greindi fyrst frá mál­inu 31. jan­úar sl. Skömmu síðar birti kín­verska sendi­ráðið í Danmörku yfir­lýs­ingu á heima­síðu sinni. Þar er mynda­styttan sögð and kín­versk, hún hylli öfga­fólk í Hong Kong og hrósi ofbeld­is­fullum gerðum þess. Til­gang­ur­inn sé að blanda sér í mál­efni Hong Kong, og kín­versk inn­an­rík­is­mál. Draga Hong Kong niður í svaðið og skaða orð­spor Kína.

Lista­mað­ur­inn, Jens Galschiøt, neitar því að styttan sé and kín­versk og ögrandi. Ég geri þetta til að styðja þá íbúa Hong Kong sem berj­ast fyrir lýð­ræði og ef Kín­verjar telja það ögrun get ég ekki gert að því. Sem Dani hef ég fullan rétt á því að segja skoðun mína og sem betur fer ákváðum við í þessum heims­hluta að hér megi fólk segja skoðun sína, bæði í orðum og verki. „Skams­tøtten lýsir þján­ingum og fjöldamorði. Fjöldamorð er glæpur gegn mann­eskj­unni“.

[adspot]Jens Galschiøt seg­ist undr­andi á að fyrst hafi verið greint frá mál­inu mörgum dögum eftir að sendi­ráðs­full­trú­inn hringdi og sagð­ist velta því fyrir sér hvort full­trúar borg­ar­innar, og hugs­an­lega utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, hefðu átt í við­ræðum við sendi­ráðið. Þegar blaða­maður spurði hann hvort Kín­verjar hefðu ekki rétt til að hafa sína skoðun á stytt­unni og láta hana í ljós sagði Jens Galcshiøt „að sjálf­sögðu hafa þeir fullan rétt til þess. En þeir vilja meira, þeir vilja skipa fyrir og reyna að þagga niður í mér og þér, reyna að ákveða“.

Danskir þing­menn sem Jót­land­s­póst­ur­inn og fleiri danskir fjöl­miðlar hafa rætt við segj­ast furða sig á að Kín­verjar haldi að þeir geti, með hót­unum, stjórnað dönskum inn­an­rík­is­málum. Jeppe Kofod utan­rík­is­ráð­herra segir að kín­verska sendi­ráðið hafi að sjálf­sögðu leyfi til að lýsa áliti sínu. Hann nefndi sér­stak­lega að Kaup­manna­hafn­ar­borg hefði ekki brugð­ist við þessum „ábend­ingum“ Kín­verj­anna.

Styttan á að standa fyrir framan Krist­jáns­borg­ar­höll­ina til 21. apríl næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár