Foreldrar geta farið í greiðslumat með börnum sínum

Þrír óskyldir aðilar geta nú sótt saman um greiðslu­mat hjá Íslands­banka, og í kjöl­farið tekið lán. Lausnin á að hjálpa þeim sem eru að kaupa fyrstu íbúð sína.

Íslands­banki kynnti í dag nýja hús­næð­is­lána­lausn sem í fellst meðal ann­ars að þrír óskyldir aðilar geti sótt um greiðslu­mat saman. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá bank­anum þýðir það til að mynda að for­eldrar geta sótt um greiðslu­mat og tekið lán með barni sínu ef það ætlar að kaupa fyrstu íbúð sína, eða annað for­eldrið með barni og maka þess.

Þá geta allir sem sækja um greiðslu­mat fyrir hús­næð­is­lán, bíla­lán eða önnur lán á vef Íslands­banka fengið svar um nið­ur­stöðu greiðslu­mats strax og fengið upp­lýs­ingar um hversu dýra eign þau geta keypt. Þá er einnig hægt að sækja um end­ur­fjár­mögnun á lánum með sama hætti.

Umrædd lausn er unnin í sam­starfi við Creditinfo og byggir láns­hæf­is­matsút­reikn­ingum þess fyr­ir­tækis. Fjöl­margir líf­eyr­is­sjóðir not­ast nú þegar við þá lausn þegar þeir fram­kvæma greiðslu­mat á sínum við­skipta­vinum.

Mikil breyting á fáum árum

Íslensku við­skipta­bank­arnir hafa farið hall­oka í sam­keppni við líf­eyr­is­sjóði lands­ins þegar kemur að veit­ingu hús­næð­is­lána á und­an­förnum árum. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa getað boðið sjóðs­fé­lögum sínum upp á mun betri vaxta­kjör síðan að þeir komu aftur inn á mark­að­inn af fullum krafti haustið 2015, þegar þeir lækk­uðu vexti sína veru­lega, hækk­uðu hámarks­hlut­fall lána og lækk­uðu lán­töku­gjöld. Afleið­ingin er sú að um þriðj­ungur hús­næð­is­lána er nú hjá líf­eyr­is­sjóð­unum.

Eins og staðan er í dag er hægt að fá verð­tryggða breyti­lega vexti á hús­næð­is­lánum undir tveimur pró­sentum hjá tveimur líf­eyr­is­sjóðum, Almenna líf­eyr­is­sjóðnum (1,84 pró­sent) og Birtu (1,97 pró­sent). Aðrir fimm líf­eyr­is­sjóðir bjóða upp á verð­tryggð hús­næð­is­lán sem bera vexti undir 2,3 pró­sentum. Þá eru ódýr­ustu óverð­tryggðu vextir hjá líf­eyr­is­sjóðum komnir undir fimm pró­sent, en Birta líf­eyr­is­sjóður býður sínum sjóðs­fé­lögum upp á 4,85 pró­sent vexti.

Við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki hafa ekki getað keppt við þessi kjör. Verð­tryggðir breyti­legir vextir þeirra eru á bil­inu 3,25 til 3,92 pró­sent og óverð­tryggðir breyti­legir vextir eru á bil­inu 5,58 til 6,31 pró­sent hjá þeim. Þegar horft er á fasta óverð­tryggða vexti býður Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna upp á 5,14 pró­sent vexti og nokkrir aðrir stórir líf­eyr­is­sjóðir koma þar á eftir þegar skoð­aður er listi yfir hag­stæð­ustu kjörin. Slíkir vextir hjá við­skipta­bönk­unum þremur eru 6,16 til 7,43 pró­sent. Í öllum til­fellum býður Lands­bank­inn upp á bestu kjörin af þeim þremur. 

Bankarnir geta lánað til fyrstu kaupa

Ástæða þessa er meðal ann­ars sú að bank­arnir þurfa að greiða sér­tæka banka­skatta sem líf­eyr­is­sjóðir þurfa ekki að greiða, sem þeir telja að veiti líf­eyr­is­sjóð­unum ósann­gjarnt sam­keppn­is­for­skot.

Við­skipta­bank­arnir geta hins vegar boðið hærra láns­hlut­fall en líf­eyr­is­sjóð­irnir og eru því væn­legri kostur fyrir þá lán­tak­endur sem eiga minna eigið fé, t.d. fyrstu kaup­endur. Á meðan að líf­eyr­is­sjóð­irnir tak­marka sig við 65 til 75 pró­sent lán þá lána við­skipta­bank­arnir 80 til 85 pró­sent af kaup­verði.

Margir þeirra sem eru að kaupa hús­næði í fyrsta sinn fá hjálp frá for­eldrum eða öðrum velunn­urum og sú leið sem Íslands­banki kynnti í dag mun auð­velda slíkum að taka þátt í þannig fast­eigna­kaupum með því að vera beinn lán­taki frá fyrsta skrefi.

Hlut­fall fyrstu kaup­enda af heild­ar­fjölda íbúða­kaup­enda var 27,7 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins. Það hefur aldrei verið hærra frá því að byrjað var að mæla hlut­fall þeirra. Til sam­an­burðar var hlut­fall fyrstu íbúð­ar­kaup­enda á sama árs­fjórð­ungi árið 2009 alls 7,9 pró­sent af öllum kaup­um. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs sem birt var fyrr í þessum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár