Bjarni: Ríkisstjórnin vinnur dag og nótt

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra var á spurður út í það hvort hann teldi ekki æski­legt að allir flokkar á Alþingi ynnu í nán­ara sam­starfi en þeir gera núna. Honum hugn­ast að sam­talið eigi sér stað í gegnum þing­lega með­ferð mál­anna sem lögð verða fram.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsmálaráðherra, í pontu Alþingis í morgun.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, í pontu Alþingis í morgun. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun að þau í rík­is­stjórn­inni hefðu þurft að vinna dag og nótt und­an­farnar tvær vikur til þess að fylgj­ast með þró­un­inni frá degi til dags og leggja mat á raun­hæfar aðgerðir til að bregð­ast við afleið­ingum COVID-19 far­ald­urs­ins.

„Það eru nokkrir hlutir sem standa upp úr. Það er gríð­ar­legt tekju­fall í einka­geir­anum, sem auð­vitað mun brjót­ast fram í tekju­falli hjá rík­inu og hinu opin­bera sömu­leiðis,“ sagði hann.

Ráð­herr­ann sagði jafn­framt að mál væru komin inn í þingið þar sem tek­ist hefði vel til með góðu sam­starfi allra flokka.

Æskilegt að allir flokkarnir vinni saman?

[links]Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Bjarna hvort hann teldi ekki æski­legt að allir flokkar á Alþingi ynnu nánar en nú væri gert að vinnu við stóra aðgerða­pakk­ann eða sæi hann ein­hverja aug­ljósa van­kanta eða hindr­anir á því.

Bjarni svar­aði og sagði að hann sæi þetta í grófum dráttum þannig að þær aðgerðir sem stjórn­völd myndu kynna – sem rík­is­stjórnin myndi jafn­framt vilja leggja fyrir þingið – væru í öllum meg­in­at­riðum nokkuð fyr­ir­sjá­an­legar. „Það er að segja; við þurfum að bregð­ast við vegna tekju­falls­ins, við þurfum að huga að atvinnu­ör­yggi fólks, við þurfum að huga að því að þegar fyr­ir­tæki tapa lausu fé þá þarf að vera til eitt­hvað fjár­magn til þess að brúa tíma­bilið sem við von­umst til að verði sem styst,“ sagði ráð­herr­ann.

Sömu­leiðis væri orðið tíma­bært að huga að því hvernig Íslend­ingar myndu haga við­spyrn­unni við ástand­inu. „Það verður reyndar við­var­andi verk­efni sem verður ekki leyst á næstu sól­ar­hringum en við getum byrjað það sam­tal. Þannig að í grófum dráttum þá myndi ég vilja leggja fram þá sýn mína á þetta að þetta sam­tal geti mjög vel farið fram í gegnum þing­lega með­ferð mál­anna.“

Segist opinn fyrir því að mynda breiða samstöðu um viðbrögð stjórnvalda

Bjarni sagð­ist enn fremur vilja taka það fram við til­efnið að þetta ástand sem nú hefur skap­ast á und­an­förnum sól­ar­hringum legði skyldur á herðar rík­is­stjórn­inni að færa fram hug­myndir að við­brögðum. „Og ég hygg að þegar þessi fyrstu við­brögð verða orðin skýr­ari þá skap­ist betra svig­rúm, bæði undir þing­legri með­ferð þeirra mála en ekki síður vegna næstu skrefa sem verða óhjá­kvæmi­leg til þess mögu­lega að dýpka þetta sam­tal eitt­hvað og ég ætla að lýsa mig alveg opin fyrir því að ná að mynda breiða sam­stöðu um meg­in­línur við­bragða stjórn­valda,“ sagði hann.

Þá telur Bjarni langa leið vera framundan, ekki sé gott að spá fyrir um það nákvæm­lega en „við höfum ekki séð í botn­inn á þess­ari krísu. Við getum það von­andi á þessu ári og það verða mörg mál sem eiga eftir að koma hér til umræðu milli flokka, bæði hér á þing­inu og mögu­lega áður en mál koma til þings­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár