„Sorglegt að freista þess ekki að standa saman á þessum mjög krítísku og erfiðu tímum“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að fyr­ir­liggj­andi krísa stafi ekki af verkum rík­is­stjórn­ar­innar, heldur af utan­að­kom­andi vá, og því hafi allir skiln­ing á því að það þurfi að ráð­ast í stórar lausnir.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég er á því að við séum að lifa svo for­dæm­lausa tíma að við þurfum að leggja fram svo stórar og for­dæma­litlar aðgerðir og þá sé eðli­leg­ast og skyn­sam­leg­ast að þær séu unnar í sem víð­tæk­astri sátt stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu, líkt og gert var í Danmörku og Noregi.“

Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um þá stöðu sem er uppi á þing­inu. [links]Hann segir stjórn­ar­and­stöð­una ítrekað hafa kallað eftir því að fá að koma að borð­inu varð­andi und­ir­bún­ing á þeim risa­pakka sem sé í far­vatn­inu og séu til­búin að koma að þeirri vinnu, en að það hafi hingað til verið afþakkað. „Það er ekki um krísu að ræða sem stafar af verkum rík­is­stjórn­ar­innar, heldur af utan­að­kom­andi vá og það hafa allir skiln­ing á því að það þurfi að bjóða upp á mjög stórar og sterkar lausnir, sem hafa ekki sést áður.“

Logi segir að hlut­verk stjórn­ar­and­stöð­unnar í því ferli sem nú er til staðar hafi aðal­lega verið að taka við málum sem rík­is­stjórnin komi með inn í þingið, sem tengj­ast aðgerðum vegna ástands­ins. Þar er meðal ann­ars um að ræða frum­varp um hluta­laun og laun til þeirra sem eru í sótt­kví. Stjórn­ar­and­staðan hafi mætt því að vilja og unnið málin í sam­starfi við rík­is­stjórn­ina.

Fá upplýsingar um „risapakkann“ á morgun eða um helgina

Nú sé hins vegar ljóst að málin muni taka breyt­ingum og til­kynnt hefur verið að þau muni koma breytt til þings­ins seinni part­inn í dag. Upp­haf­legt umfang þeirra hafi ein­fald­lega verið of lítið og auka þurfi áhrif þeirra umtals­vert. „Við teljum það hins vegar sorg­legt að freista þess ekki að standa saman á þessum mjög krítísku og erf­iðu tímum. Auðvitað þarf atvinnu­lífið og laun­þega­hreyf­ingin svo að taka þátt í því sam­starfi líka.“

[adspot]Logi segir að stjórn­ar­and­staðan hafi ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um það sem risa­pakki rík­is­stjórn­ar­innar feli í sér, annað en það að hún megi reikna með að fá að sjá hann á morgun eða um helg­ina í síð­asta lagi. Fyrir liggi þó að hann snú­ist um aðgerðir fyrir fyr­ir­tækin sem séu í mestum hremm­ingum og fólkið sem verði fyrir afleið­ingum af þeim.

Miðflokkurinn segist muna styðja stjórnvöld

Mið­flokk­ur­inn sendi fyrr í dag frá sér til­kynn­ingu þar sem hann sagði að vand­inn sem þjóðir heims standi nú frammi fyrir og sú þróun sem virð­ist vera fram undan kalli á umfangs­meiri aðgerðir rík­is­ins en nokkur dæmi eru um í seinni tíma sögu. Því fyrr sem gripið verði til aðgerða þeim mun meiri áhrif muni þær hafa. „Við munum styðja stjórn­völd í öllum þeim aðgerðum sem eru til þess fallnar að ná stjórn á ástand­inu sem nú ríkir og bregð­ast við með það að mark­miði að verja íslenskt sam­fé­lag, fyr­ir­tæki og heim­ili.“

Með fylgdu aðgerðir sem Mið­flokk­ur­inn vildi að gripið yrði til, bæði í efna­hags- og heil­brigð­is­málum, og hægt er að lesa um hér.

Katrín boðaði frekari aðgerðir

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stað­festi í Kast­ljósi á þriðju­dag að frek­ari efna­hags­að­gerðir væru í und­ir­bún­ingi, en Kjarn­inn greindi frá því í á mánu­dag að slíkar yrðu vænt­an­lega kynntar í vik­unni.

Heim­ildir Kjarn­ans herma að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, hafi boðað það á fundi með þing­flokks­for­mönnum í gær að svo­kall­aður band­ormur frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, væri vænt­an­legur í lok viku inn á þing­ið. Slíkur band­ormur er sam­an­safn breyt­inga á ýmsum lögum og við­mæl­endur Kjarn­ans eru sam­mála um að hann verði lagður fram eftir að aðgerð­ar­pakki rík­is­stjórn­ar­innar verður kynnt­ur. Því sé lík­legt að það stytt­ist í kynn­ingu á hon­um. 

Katrín sagði í þætt­inum að stjórn­völd þyrfti að gera fernt með aðgerðum sín­um. „Stóru mark­miðin í þeim eru í fyrsta lagi að tryggja lífs­af­komu fólks. Alþingi var í dag að ræða frum­varp um hluta­bæt­ur, það mun taka breyt­ing­um.[...]Við erum að tryggja að lífs­af­koma fólks sé tryggð og að það geti haldið ráðn­ing­ar­sam­band­inu við sinn vinnu­veit­anda. 

Við þurfum að ráð­ast í aðgerðir til þess að styðja við fyr­ir­tækin vegna þess að þau auð­vitað halda uppi atvinnu­líf­inu í þessu landi. Þar vinnur allt fólkið í land­inu. Við þurfum sömu­leiðis að verja grunn­stoðir atvinnu­lífs­ins.[...]Í fjórða lagi þurfum við að gefa í í fjár­fest­ingu til að tryggja að hag­kerfið nái ákveð­inni við­spyrn­u.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár