Geriði það, bjargið sálum okkar

Ólétt tveggja barna móðir stendur nú fyrir framan alþingi og biðlar til þing­manna að vera ekki flutt úr landi ásamt börn­unum sínum. Læknir hefur stað­fest að hún muni þurfa á keis­ara­skurði að halda þegar barnið hennar fæð­ist, en Útlend­inga­stofnun tók ekki til­lit til þess þegar hún synj­aði þeim um hæli.

Regina og synir hennar
Regina og synir hennar Regina stóð fyrir utan alþing­is­húsið fyrr í dag og mót­mælti þeirri með­ferð sem hún og synir hennar tveir hafa þurft að sæta hér á landi. Mynd: Jón Bjarki

Þessa stund­ina stendur Reginu Osara­ma­ese, ólétt tveggja barna móðir, fyrir framan Alþingi. Þar biðlar hún til fólks að vera ekki flutt úr landi ásamt börn­unum sínum. Stundin hefur áður fjallað um mál hennar, en sam­kvæmt vott­orði frá lækni mun Regina þurfa á keis­ara­skurði að halda þegar barn hennar fæð­ist, en hún á von á sér í jan­úar.

Regina stóð fyrir utan Alþingi með sonum sínum tveim, Daniel og Felix. Daniel er 4 ára síðan í mars og Felix verður tveggja ára í októ­ber, en hann er einmitt fæddur á Íslandi. Þýðing á text­anum sem stendur á skilti Reginu er eitt­hvað á þessa leið:

Langþreytt
Lang­þreytt Regina er orð­inn lang­þreytt á því að lifa í stans­lausri óvissu en lög­maður hennar hefur ekki enn fengið svar við því hvort rétt­ar­á­hrifum verður frestað.

Regina flúði Nígeríu þegar hún var 6 ára gömul. Hún komst til Ítalíu í gegnum Lýbíu og svo til Ísland. Hún fæddi Daniel með keis­ara­skurði á Ítalíu árið 2012 og Felix á Land­spít­al­anum árið 2014. Stað­festir lækn­ir­inn í vott­orði sínu að hún muni einnig þurfa á slíkri aðgerð að halda við næstu fæð­ingu. 

Stundin greindi frá því í byrjun júlí að Gísli Kr. Björns­son, lög­maður Reginu, hefði óskað eftir því við Útlend­inga­stofnun að brott­vísun hennar og barna hennar yrði frestað á meðan á með­göngu stendur og höfðað yrði mál til ógild­ingar á ákvörðun stjórn­valda. Gísli stað­festi í sam­tali við Stundina fyrr í dag að hann hefði ekki fengið svar við erind­inu og því hafi ekki komið til frest­unar rétt­ar­á­hrifa. Regina þarf því áfram að bíða á milli vonar og ótta um það hvort hún hún fái að fæða barn sitt hér á landi. 

Regina segir lög­mann sinn vilja hjálpa sér að koma máli sínu fyrir dóm­stóla. „Hann gæti leyft mér að vera áfram á íslandi til að sjá um börnin mín. Ég bið bara um að mér sé leyft að vera á Íslandi. Ég vil vera hér svo börnin mín geti lifað eðli­legu lífi.“

Samkvæmt Reginu hefur verið ákveðið að senda hana aftur til Nígeríu, en engin dag­setn­ing hefur verið sett. Útilokað má telja að Regina geti fengið sæmi­lega lækn­is­þjón­ustu í Nígeríu, en þar er dán­ar­tíðni við barns­burð með því hæsta sem ger­ist í heim­inum.

Hún seg­ist vera að mót­mæla fyrir utan Alþingi til þess að vekja athygli þing­manna á máli sínu. „Ég vil bara biðja þing­menn um að leyfa mér að vera áfram á Íslandi. Það er það eina sem ég vil.“

Önnur umfjöllun Stund­ar­innar um mál Reginu:

Útlendingastofnun vill senda ólétta konu og börn
til Nígeríu: Biður um að fá að fæða barnið hér

Læknir staðfestir að Regina þarf keisaraskurð
en Útlendingastofnun vill senda hana til Nígeríu

„Ég kom hingað í leit að
góðu lífi fyrir börnin mín“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár