Samfylkingin vill fyrirframgreiða vaxtabætur sem styrk til íbúðakaupa

Sam­fylk­ingin hefur kynnt kosn­inga­lof­orð sitt um hús­næð­is­mál. Það snýst um að fyr­ir­fram­greiða vaxta­bætur næstu fimm ára sem styrk til íbúða­kaupa. Hækki laun fólks á end­ur­greiðslu­tíma­bil­inu lendir kostn­að­ur­inn á rík­is­sjóði.

Sam­fylk­ingin ætlar að fyr­ir­fram­greiða vaxta­bætur næstu fimm ára til að styrkja fólk til fyrstu íbúð­ar­kaupa, kom­ist flokk­ur­inn til valda. Fólk í sam­búð á að geta fengið þrjár millj­ónir króna í slíkt „for­skot“, ein­stætt for­eldri 2,5 millj­ónir króna og ein­stak­lingur tvær millj­ónir króna. Þetta kosn­inga­lof­orð var til­kynnt á blaða­manna­fundi í dag.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Sam­fylk­ing­unni segir að þrjá millj­ónir króna ætti til að mynda að duga fyrir útborgun á 20 millj­óna króna íbúð, ef miðað er við að kaup­and­inn taki 85 pró­sent lán. Ljóst er að fáar ef ein­hverjar sam­þykktar, og þar með láns­hæfar, íbúðir eru til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kosta undir 20 millj­ónir króna. Í skýr­ing­ar­gögnum Sam­fylk­ing­ar­innar segir t.d. að tveggja her­bergja íbúðir kosti í dag frá 22 millj­ónum króna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því mun hámarks­greiðslan ekki duga sem heild­ar­út­borgun fyrir flesta sem eru í hús­næð­is­vanda heldur sem hlut­fall af slíkri útborgun.

Fari svo að þeir sem fái fyr­ir­fram­greiðsl­una á vaxta­bótum til fimm ára hækki í tekjum á tíma­bil­inu, og rýri þar með rétt sinn til vaxta­bóta, mun kostn­að­ur­inn sem ekki fæst end­ur­greiddur falla á ríkið. Vaxta­bæt­urnar byrja að skerð­ast þegar tekjur ein­stæð­inga fara yfir fjórar millj­ónir króna á ári og hjá sam­búð­ar­fólki þegar sam­eig­in­leg árs­laun þeirra fara yfir 6,5 millj­ónir króna. Þegar ein­stak­lingur er kom­inn með yfir 6,4 millj­ónir króna á ári í heild­ar­laun, 533 þús­und krónur á mán­uði, þá fellur réttur hans til vaxta­bóta niður. Hjá hjónum eða sam­búð­ar­fólki fellur hann niður þegar þau hafa saman 10,4 millj­ónir króna í árs­tekjur, eða 433 þús­und krónur hvort á mán­uði.

Ætla að fjölga leiguíbúðum

Þeir sem fá hámarks­greiðslu út úr þessu kerfi munu fá 600 þús­und krónur á ári, og alls þrjár millj­ónir króna yfir fimm ára tíma­bil. Í „spurt og svarað“um leið­ina á heima­síðu Sam­fylk­ing­ar­innar segir að „Kostn­aður við úrræðið veltur á fjölda þeirra sem færa sér það í nyt.Í grunn­inn er verið að veita vaxta­bótum fyrir fram sem fólk ætti öllu jöfnu rétt á næstu fimm árin. Áætla má að kostn­aður vegna fyr­ir­fram­greiðslu vaxta­bóta sé þó um 10,5% hærri en útlögð upp­hæð vegna tíma­virðis pen­inga (m.v. 5% ávöxt­un­ar­kröfu). Einnig má búast við að kostn­aður falli á ríkið vegna þeirra sem fá fyr­ir­fram­greiðslu vegna fimm ára, en hækka svo í tekjum á þeim fimm árum þar sem ríkið færi ekki fram á end­ur­greiðslu vegna breyt­inga á tekjum eða eigna­stöðu á tíma­bil­inu. Vegna áætl­ana um hækkun skerð­ing­ar­marka vegna tekna og eigna, mun þessi munur þó minnka. Á árinu 2016 var kostn­aður rík­is­sjóðs vegna vaxta­bóta rúmir 6,2 millj­arðar króna, en árið 2011 var kostn­að­ur­inn tæpir 19 millj­arðar.“

Samhliða ofan­greindri leið, sem kall­ast „Forskot á fast­eigna­mark­aði“, ætlar Sam­fylk­ingin að taka upp nýtt kerfi hús­næð­is­bóta, hækka skerð­ing­ar­mörk og styðja betur við barna­fjöl­skyldur en nú er gert. Meðal þess sem það felur í sér er að vaxta­bætur eigi að ráð­ast af fjölda barna.

Til við­bótar ætlar Sam­fylk­ingin, sam­kvæmt kosn­inga­stefnu sinni, að fjölga almennum leigu­í­búðum um fjögur þús­und á kjör­tíma­bil­inu og fjölga náms­manna­í­búðum um eitt þús­und um allt land.

Ekki hægt að stinga hagnaðinum í vasann

Ekki verður hægt að nýta „for­skotið“ til að kaupa sér íbúð, selja hana strax aftur og leysa út hagn­að­inn. Á heima­síðu Sam­fylk­ing­ar­innar segir að ríkið taki veð, verði aft­ast í veð­röð­inni og ef við­kom­andi selur innan fimm ára þarf hann annað hvort að skila fyr­ir­fram­greiðsl­unni eða færa hana yfir á nýja eign.

Í kynn­ing­ar­texta Sam­fylk­ing­ar­innar er leiðin borin saman við fyrstu fast­eignar leið sitj­andi rík­is­stjórnar, sem miðar við að veita fyrstu kaup­endum heim­ild til að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða inn á íbúð. Í þeirri leið þurfa fyrstu íbúða­kaup­endur hins vegar að spara í allt að tíu ár og nota féð síðan. Sam­fylk­ingin vill færa þeim það núna.

Sam­fylk­ingin gengst við því að leiðin gæti haft áhrif til hækk­unar á hús­næð­is­mark­aði, og gert eig­in­fjár­fram­lag þeirra sem eru að kaupa sér fast­eign hærra en það er í dag. Erfitt sé þó að áætla hversu mikil þau áhrif yrðu.

Vert er að benda á að eigið fé í fast­eignum Íslend­inga jókst úr 1.146 millj­örðum króna í 2.285 millj­arða króna frá lokum árs 2010 og fram að síð­ustu ára­mótum. Það hefur því tvö­fald­ast á sex ára tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár