Árni Páll: Áfellisdómur yfir Samfylkingunni að fá ekki fylgi Bjartrar framtíðar

Það er áfell­is­dómur yfir Sam­fylk­ing­unni að hún skuli ekki hafa fengið til sín fylgi Bjartrar fram­tíðar þegar það fór að hníga. Í stað­inn fyrir að finna skoð­unum sínum far­veg innan Sam­fylk­ing­ar­innar hafi þetta fólk horft til Pírata. Þetta sagði Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Árni Páll sagði stöðu flokks­ins vera áfell­is­dóm yfir honum sjálfum og flokknum. Þróunin hefði byrjað með stofnun Bjartrar fram­tíðar og haldið áfram. „Ef þú horfir á stöð­una eins og hún er í dag og horfir á hana frá 2012 þá er það í mínum huga áfell­is­dómur yfir sam­fylk­ing­unni að hún skuli ekki hafa orðið vett­vangur fólks sem hefur viljað fara í mál­efna­lega nýsköpun á miðju íslenskra stjórn­mála. Fyrst í Bjartri fram­tíð og síðan í Pírötum.“ Hann spurði svo hvað þetta fólk væri að gera og hvort það vildi gera hluti sem væru í and­stöðu við það sem Sam­fylk­ingin vildi.

„Ó nei, þetta fólk hefur verið að tala fyrir opnu sam­fé­lagi, verið að tala fyrir áfram­haldi aðild­ar­um­sóknar að Evr­ópu­sam­band­inu, beinu lýð­ræði, stjórn­kerf­isum­bótum, talað fyrir rétt­indum minni­hluta­hópa. Allt eru þetta mál­efni sem Sam­fylk­ingin hefur barist fyrir á hæl og hnakka frá því að hún var stofnuð. Og það er áfell­is­dómur yfir Sam­fylk­ing­unni ef fólk telur sig þurfa að vinna þessum málum fylgis ein­hvers staðar ann­ars staðar en innan Sam­fylk­ing­ar­innar.“

Hann sagði flokk­inn vera álit­inn einn af fjór­flokk­unum, en hann væri það ekki, heldur hefði hann verið stofn­aður til höf­uðs fjór­flokknum. Ekki hefði verið nóg gert til rjúfa þá ímynd í huga fólks að Sam­fylk­ingin væri kerf­is­flokkur. „Orðræða okkar er kannski allt of mikið bundin því að vera eins og aðrir flokkar, að þrasa um það sem við erum að gera frá degi til dags og verja verk okkar í for­tíð og svo fram­vegis.“

Þá sagði hann Sam­fylk­ing­una verða að bregð­ast við ástand­inu. „Sam­fylk­ingin verður að bregð­ast við því með því að verða sú fjölda­hreyf­ing sem hún var stofnuð til að vera. Hún verður að hætta að tala eins og gam­al­dags­flokkur, hún verður að hætta að vinna eins og gam­al­dags­flokkur og hún verður að leita sér fyr­ir­mynda í laus­beisl­uðum fjölda­hreyf­ingum út um allan heim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár