Eigið fé Íslendinga í fasteignum hefur tvöfaldast á fimm árum

Íslend­ingar eru að skuld­setja sig hraðar og hærra fast­eigna­verð drífur áfram aukna eigna­myndun. Alls eru tæp­lega átta af hverjum tíu krónum sem heim­ili lands­ins eiga í hreinni eign bundnar í fast­eignum.

Þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu er húsnæðismarkaðurinn á fleygiferð. Og skuldsetning heimila hefur verið að aukast.
Þrátt fyrir sam­drátt í efna­hags­líf­inu er hús­næð­is­mark­að­ur­inn á fleygi­ferð. Og skuld­setn­ing heim­ila hefur verið að aukast. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Eigið fé lands­manna í fast­eignum, eign þegar skuldir hafa verið dregnar frá, var 4.034 millj­arðar króna í lok árs í fyrra. Það hefur tvö­fald­ast frá byrjun árs 2015, eða á fimm árum. Alls er 78 pró­sent af öllu eigin fé heim­ila lands­ins bundið í fast­eignum.

Virði fast­eigna í eigu lands­manna hefur sömu­leiðis vaxið gríð­ar­lega hratt á síð­ustu árum. Í lok árs 2010 var heild­ar­virði þeirra sam­kvæmt fast­eigna­mati 2.353 millj­arðar króna. Um síð­ustu ára­mót var sú upp­hæð komin upp í 5.648 millj­arða króna og hafði heild­ar­virðið því auk­ist um 140 pró­sent. Virðið miðar við fast­eigna­mat, ekki mark­aðsvirði.

Þetta má lesa úr tölu sem Hagstofa Íslands birti í gær um eignir og skuldir Íslend­inga.

Heild­ar­um­fang íbúða­lána sem Íslend­ingar höfðu tekið um síð­ustu ára­mót var 1.614 millj­arðar króna. Umfang lán­anna jókst um 141 millj­arð króna á síð­asta ári.

Frá lokum árs 2016 hefur umfang íbúða­lána auk­ist um 352 millj­arða króna, eða 28 pró­sent. Áður hafði lán­taka þjóð­ar­innar til að kaupa sér hús­næði ein­ungis vaxið um 56 millj­arða króna frá byrjun árs 2011 og til loka árs 2016, eða um 4,6 pró­sent.

Skuldsetning skilur sig frá landsframleiðslu

Þessi þróun, aukin skuld­setn­ing og hærra fast­eigna­verð, hefur haldið áfram á þessu ári þrátt fyrir þau efna­hags­á­föll sem drifið hafa yfir. Þannig kom fram í Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands sem birt var í vik­unni að heild­ar­skuldir heim­ila hafi numið tæp­lega 79 pró­sent af lands­fram­leiðslu í lok júní og að hlut­fallið hafi hækkað um rúm tvö pró­sentu­stig á milli ára. Áður hafði aukin skuld­setn­ing verið í takti við hag­vöxt frá árinu 2016, en í ár hefur skilið á milli.

Í rit­inu segir að skulda­vöxtur heim­il­anna sé drif­inn áfram af aukn­ingu í íbúða­lánum. „Þrátt fyrir óvissu virð­ist lítið lát vera á eft­ir­spurn heim­ila eftir íbúða­lánum sem skýrist meðal ann­ars af lækk­andi fjár­magns­kostn­aði og því að kaup­máttur hefur hald­ist stöð­ugur þrátt fyrir efna­hags­sam­drátt­inn. Hrein ný útlán til heim­ila í júlí námu tæp­lega 32 ma.kr. sem er um 80 pró­sent hærri fjár­hæð en með­al­tal síð­ustu 12 mán­aða.“

Þrátt fyrir skulda­aukn­ingu síð­asta árs er eigna­staða heim­ila betri en áður. Eigið fé heim­ila, sem eru eignir þess umfram skuld­ir, jókst tölu­vert í fyrra og er það nú rúm­lega tvö­falt meira en árleg lands­fram­leiðsla. Til sam­an­burðar var það jafnt lands­fram­leiðsl­unni fyrir tíu árum síð­an, og hefur það því tvö­fald­ast sem hlut­fall af henn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár