Sósíalistaflokkur?
Það er kunnara en frá þurfi að segja að nýr flokkur sem kennir sig við sósíalisma er í burðarliðnum. Á heimasíðu hans má fnna eins konar stefnuskrá í fimm liðum. Í fyrsta lagi ætlar flokkurinn að berjast fyrir því að allur almenningur fái notið mannsæmandi kjara, í öðru lagi útvega mönnum ódýrt húsnæði, í þriðja lagi stuðla að ókeypis heilbrigðis-, mennta- og velferðarþjónustu, í fjórða lagi skuli vinnuvikan stytt og fimmta lagi á auðstéttin að borga meira í skatta, með því megi fjármagna betra velferðarkerfið.
Ekki verður séð að hér sé á ferðinni róttækur sósíalismi, heldur fremur vinstrikratismi. Reyndar eru fyrsti, annar, og fjórði liður stefnuskrárinnar þess eðlis að bæði vinstrimenn og -hægri geta fallist á að þetta séu æskileg markmið. Í ljósi þess sem hér hefur verið sagt virðist „Sósíalistaflokkurinn“ vart standa undir nafni.
Lýðskrum?
Að fimmta liðnum undanskildum eru engar konkret tillögur í stefnuskránni, ekki er sagt hvernig framkvæma eigi fyrsta til fjórða lið. Það er heldur ekki auðvelt að framkvæma fimmta lið þótt vissulega megi peningamenn borga meir í skatta en þeir gera. HB Grandi greiðir hluthöfum miljarða í arð en telur sig ekki hafa ráð á að halda uppi fiskvinnslu á Akranesi. Ætli eigendurnir séu ofgóðir að borga meira til samneyslunnar?
Hvað sem því líður þá er megn lýðskrumsfýla af þessari stefnuskrá. Fólki er lofað gulli og grænum skógum en lítið sagt um hvernig efna megi loforðin.
Bandaríski söngvarinn Joe Hill var sannur sósíalisti. Hann hæddist að trúarbrögðum sem hann taldi blekkja fólk með loforðum um sælu hinum meginn og söng: „You get pie in the sky when you die.“
Flokksnefnu þessari má segja til varnar að hún er óstofnuð enn. Kannski er núverandi stefnuskrá bara skissa, kannski verður hún aukin og endurbætt í anda hófsamrar lýðræðis-jafnaðarstefnu.
Athugasemdir