Mynd: Samfylkingin

Tilraun til umfangsmikillar endurnýjunar hjá Samfylkingunni

Alls sækj­ast 49 eftir sæti á fram­boðs­listum Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Margir nýir fram­bjóð­endur ætla sér eitt af efstu sæt­unum og sumir þeirra njóta óop­in­bers stuðn­ings lyk­il­fólks í flokknum í þeirri veg­ferð.

Á mið­viku­dag voru á sjötta tug til­nefndra nafna á blaði hjá Sam­fylk­ing­unni í Reykja­vík sem höfðu gefið leyfi fyrir því að nöfn þeirra yrðu lögð fyrir flokks­fólk í Reykja­vík sem mun á næst­unni lýsa skoðun sinni á fram­boðs­listum flokks­ins í höf­uð­borg­inni í kom­andi þing­kosn­ingum. Þegar list­inn yfir til­nefnda var birtur á fimmtu­dag hafði nöfn­unum fækkað nokkuð, meðal ann­ars vegna þess að ein­stak­lingar sem þykja lík­legir til að raða sér ofar­lega á blað kynntu sig til leiks áður en list­inn var birtur í heild. Það varð til þess að ein­hverjir hafa dregið þá ályktun að þeir ættu litla sem enga mögu­leika og því ákveðið að sitja heima.

Á næsta dögum mun áður­nefnt flokks­fólk Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík merkja við nöfn þeirra ein­stak­linga sem það vill sjá á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík í þing­kosn­ingum á næsta ári. Nið­ur­staðan úr þeirri könnun verður ekki birt opin­ber­lega og verður ein­ungis aðgengi­leg upp­still­ing­ar­nefnd sem verður ekki bundin af henni, heldur mun hafa nið­ur­stöð­una til hlið­sjónar þegar hún raðar á fram­boðs­lista.

Þetta er kallað „sænska leiðin“ og er sann­ar­lega ekki óum­deild aðferð. Við­mæl­endur Kjarnans innan Sam­fylk­ing­ar­innar telja margir að önnur af tveimur ástæðum ráði því að þessi leið var farin. Í fyrsta lagi fór flokk­ur­inn í próf­kjör víða í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2016, sem jók enn á þá miklu sundr­ungu sem var í Sam­fylk­ing­unni þá þegar eftir erfitt kjör­tíma­bil. Afleið­ingin varð versta nið­ur­staða flokks­ins frá upp­hafi. Hann fékk 5,7 pró­sent atkvæða og einn kjör­dæma­kjör­inn þing­mann. Samhliða hrundu tekjur Sam­fylk­ing­ar­innar og innra starfið var við það að logn­ast út af á tíma­bili. Ef ekki hefði komið til þess að kosið var að nýju haustið 2017, þar sem flokk­ur­inn meira en tvö­fald­aði fylgi sitt, og að fram­lög úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka voru rúm­lega tvö­földuð í kjöl­farið, þá er óvíst hvort Sam­fylk­ingin hefði lifað þessa tíma af.

Hræðsla við niðurstöðu prófkjara

Hin ástæðan er sú að ráð­andi öfl í flokknum vilja hafa trygg­ingu fyrir því að geta stillt upp lista sem er sig­ur­strang­leg­astur fyrir flokk­inn. Ýmsir sem Kjarninn ræddi við hrædd­ust að ef farið yrði í próf­kjör gæti per­sónu­legur metn­aður ýmissa fyr­ir­ferða­mik­illa ein­stak­linga í flokks­starf­inu, sem eru með djúpar rætur í Sam­fylk­ing­unni, leitt til þess að svo yrði ekki.

Nefndu nær allir við­mæl­endur sama dæmið: Ágúst Ólaf Ágústs­son.

Ágúst Ólafur Ágústsson, núverandi oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður.
Ágúst Ólafur Ágústs­son, núver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður.

Hann er fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins og odd­viti hans í Reykja­vík suður eftir að hafa snúið aftur í stjórn­mál eftir nokk­urt hlé í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, og nýtur mik­ils stuðn­ings hjá ákveðnum kreðsum í flokknum, sér­stak­lega þeim sem hafa starfað þar lengi og hjá eldri kyn­slóðum.

Ágúst Ólafur fór í leyfi frá þing­störfum í des­em­ber 2018 eftir að hafa verið áminntur af trún­­­að­­­ar­­­nefnd flokks­ins vegna kyn­­­ferð­is­­­legrar áreitni gegn blaða­­­manni Kjarn­ans. Hann baðst afsök­unar á hátt­semi sinni og dóm­greind­ar­bresti og sótti sér aðstoð vegna áfeng­is­vanda. Þegar hann til­kynnti end­ur­komu til starfa í lok apríl í fyrra sagð­ist hann enn brenna fyrir því að starfa í þágu sam­fé­lags­ins. „Í raun er ég að biðja um annað tæki­færi.“

Í októ­ber síð­ast­liðnum var hann sak­aður um kven­fyr­ir­litn­ingu vegna ummæla sem féllu í útvarps­þætt­inum Sprengisandi. Þar kall­aði Ágúst Ólafur sitj­andi rík­is­stjórn „rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar“ en tíðkast hefur að kenna rík­is­stjórnir við for­sæt­is­ráð­herra, sem er Katrín Jak­obs­dóttir. Hann bætti við: „Við Willum [Þór Þórs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var líka gestur þátt­ar­ins] þekkjum alveg hver stjórn­ar. Og það er ekki Katrín.“ Ágúst Ólafur baðst afsök­unar á orðum sínum og sagð­ist hafa kom­ist illa að orði.

Við­mæl­endur Kjarnans telja margir hverjir að fram­boðs­listi með Ágúst Ólaf inn­an­borðs, vegna ofan­greindra mála, myndi gera Sam­fylk­ing­una að auð­veldu skot­marki and­stæð­inga hennar í næstu kosn­ingum. Auk þess telja þeir að hann myndi fæla marga kjós­endur frá – sér­stak­lega konur og yngri kjós­endur – en draga fáa nýja að.

Kristrún nýr valkostur

Ágúst Ólafur hefur setið í fjár­laga­nefnd og verið tals­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í efna­hags­málum. Framboð Kristrúnar Frosta­dóttur, aðal­hag­fræð­ings Kviku banka, hefur notið mik­ils stuðn­ings innan Sam­fylk­ing­ar­innar. Það þykir benda til þess að áhrifa­mikið fólk í flokknum vilji skipta um tals­mann í þeim mála­flokki og bjóða fram nýjan mögu­leika í stól fjár­mála­ráð­herra eftir næstu kosn­ingar.

Kristrún vakti meðal ann­ars athygli fyrir grein­ingu á auknu pen­inga­magni í umferð sem var sett fram í grein í Vís­bend­ingu í síð­asta mán­uði. Þar sagði hún að stór hluti pen­inga­magns­ins, sem er alls um 300 millj­arðar króna, hafi ratað í hækk­andi eigna­verð á fast­eigna­mark­aði, sem hefði ekk­ert með nauð­syn­legan stuðn­ing að gera á núver­andi krísu­tímum. Um þriðj­ungur af þessum pen­ingum hefði farið í lán til fólks sem stæði „betur en með­al­mað­ur­inn í lána­safni bank­anna.“

Kristrún Frostadóttir þykir líkleg til afreka í framboðskönnun Samfylkingarinnar. Mynd: Skjáskot/RÚV
Kristrún Frosta­dóttir þykir lík­leg til afreka í fram­boðs­könnun Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Að mati hennar hefði verið eðli­legra fyrir hið opin­bera að hlúa að mannauði, fram­leiðslu­getu og atvinnustigi hag­kerf­is­ins heldur en að örva hag­kerfið með skuld­setn­ingu í einka­geir­an­um. Í gær bætti hún enn í og sagði í stöðu­upp­færslu að efna­hags­mála­um­ræðan hér á landi væri „úrelt og þess vegna eiga hægri menn hana enn þá. Þessu verðum við að breyta“ og að hún teldi sig „búa yfir sér­stökum eig­in­leikum; ég hef mikla þekk­ingu á fjár­mála­innviðum lands­ins og dýnamíkinni í hag­kerf­inu en afar tak­mark­aðan áhuga á að græða pen­inga.“

Ljóst er að Kristrún var eft­ir­sótt víðar eftir að í ljós kom að hún væri opin fyrir stjórn­mála­þátt­töku og síð­ustu vikur hefur hún ítrekað verið orðuð í einka­sam­tölum við fram­boð fyrir Viðreisn. Heim­ildir Kjarnans herma að Sam­fylk­ingin hafi lagt umtals­vert á sig til að telja hana á að bjóða fram hjá sér í Reykja­vík og að hún hafi meðal ann­ars átt sam­töl við for­mann flokks­ins. Það á ekki við um marga aðra þeirra sem sækj­ast eftir sæti í Reykja­vík.

Á siglingu hjá konum og ungu fólki

Í nýlegri umfjöllun Kjarnans, sem byggði á nið­ur­stöðu tveggja kann­ana MMR sem gerðar voru um mán­aða­mótin októ­ber/nóv­em­ber, mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 18,4 pró­sent. Fylgi á þeim slóðum myndi ekki skila flokknum meira en 4-5 þing­sætum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur. Ef hann vinnur kosn­inga­sigur í borg­inni gætu þau orðið sex. Í sömu umfjöllun kom fram að Sam­fylk­ingin væri á miklu skriði hjá yngstu kjós­end­unum og konum. Í könnun sem MMR birti dag­inn fyrir kosn­ing­arnar 2016 mæld­ist Sam­fylk­ingin með eitt pró­sent fylgi í ald­urs­hópnum 18 til 29 ára. Í haust var Sam­fylk­ingin með 19,3 pró­sent fylgi hjá þeim ald­urs­flokki. Þá kom fram í umfjöll­un­inni að Sam­fylk­ingin nyti stuðn­ings 21,4 pró­sent kvenna en ein­ungis 11,9 pró­sent karla.

Vilji er til þess á meðal ráð­andi afla innan flokks­ins að listi hans í Reykja­vík end­ur­spegli þessar breyt­ingar á sam­fylk­ing­unni á bak­við Sam­fylk­ing­una. Núver­andi þing­flokkur þykir ekki gera það. Einn við­mæl­andi orð­aði það þannig að sitj­andi þing­menn flokks­ins væru „of líkir og of mið­aldra“.

Sam­fylk­ingin sam­þykkti skuld­bind­andi reglur um aðferðir við val á fram­boðs­lista árið 2012. Á meðal þess sem þar var sam­þykkt var að jafnt hlut­fall kynj­anna yrði tryggt með því að reglur um fléttu­lista eða para­lista yrðu látnar eiga við þegar raðað yrði.

Á þessu ákvæði voru hins vegar gerðar breyt­ingar á flokk­stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar 19. októ­ber í fyrra. Breyt­ingin er á þann veg að fléttu­listi eða para­listi á ein­ungis við ef það þarf að tryggja hlut­fall kvenna í efstu sætum fram­boðs­lista. Það þýðir að konur gætu skipað öll efstu sætin á lista Sam­fylk­ing­ar­innar en karlar gætu það ekki.

Þessi breyt­ing gerir það að verkum að í Reykja­vík, þar sem margir af fram­bjóð­end­unum sem lyk­il­fólk innan flokks­ins von­ast til að rað­ist í efstu sætin eru konur, þarf ekki að gera sér­stakar ráð­staf­anir til að koma körlum þar að.

Búist við mikilli endurnýjun

Búist var við því að sitj­andi þing­menn og vara­þing­menn flokks­ins í Reykja­vík myndu gefa kost á sér að nýju og það stóðst. Auk þess var búist við að ýmist annað fólk sem hefur starfað innan Sam­fylk­ing­ar­innar í lengri eða skemmri tíma myndi taka slag­inn og stefna á sæti sem gæti skilað þeim inn á þing. Af þeim þykir ein­ungis Helga Vala Helga­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík norður, nokkuð örugg með sæti á lista sem skilar henni inn á þing, þótt hún hafi laskast með því að tapa vara­for­manns­kjöri í haust.

Þar laut hún í lægra haldi fyrir Heiðu Björk Hilm­is­dóttur, sitj­andi vara­for­manni og borg­ar­full­trúa. Í kjöl­farið bjugg­ust margir við því að Heiða myndi færa sig yfir í lands­málin og heim­ildir Kjarnans herma að hún hafi verið á meðal þeirra sem fékk flestar til­nefn­ingar til að vera á lista flokks­ins í Reykja­vík. Heiða ákvað hins vegar að gefa ekki kost á sér í þetta sinn.

Flestir við­mæl­endur búast að öðru leyti við mik­illi end­ur­nýjun í efstu sætum lista.

Helga Vala Helgadóttir er talin nokkuð örugg með að leiða áfram Reykjavíkurkjördæmi norður.
Helga Vala Helga­dóttir er talin nokkuð örugg með að leiða áfram Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Þegar fram­boðs­list­inn var kynntur á fimmtu­dag voru samt ýmis óvænt nöfn á honum. Fyrir flokk sem hefur átt í umtals­verðum vand­ræðum á síð­ast­liðnum árum að fá fólk í virkni og fram­boð þóttu það mjög góð tíð­indi að 49 þeirra 181 sem til­nefndir voru sem mögu­legir fram­bjóð­endur ákváðu að taka slag­inn.

Fyrir utan Kristrúnu eru nokkrir yngri fram­bjóð­endur sem stefna á góðan árangur og á bar­áttu­sæti – 2.-3. sæti – á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í öðru hvoru kjör­dæm­inu. Þar má nefna Jóhann Pál Jóhanns­son, fyrr­ver­andi blaða­maður á Stund­inni, sem réð sig til þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar í sept­em­ber, Ragna Sig­urð­ar­dóttir, for­seti ungra jafn­að­ar­manna, Aldísi Mjöll Geirs­dóttur, for­seta Norð­ur­landa­ráðs æsk­unnar, Alexöndru Ýr van Erven, rit­ara flokks­ins, og Gunn­hildi Fríðu Hall­gríms­dóttur, sem vakið hefur athygli fyrir ýmis konar aktí­visma und­an­farið, meðal ann­ars bar­áttu fyrir nýrri stjórn­ar­skrá.

Flóttafólk úr öðrum flokkum og tenging við verkalýðshreyfinguna

Á meðal óvæntra nafna á list­anum eru Dag­finnur Svein­björns­son, for­stjóri Arctic Circle og sér­fræð­ingur í loft­lags­málum, og Stefán Ólafsson, pró­fessor við HÍ og sér­fræð­ingur hjá Eflingu stétt­ar­fé­lagi. Nái þeir árangri fær Sam­fylk­ingin ann­ars vegar mjög trú­verð­ugan tals­mann í loft­lags­málum, sem er á meðal stærstu mála sem yngri kjós­endur sér­stak­lega láta sig varða, og hins vegar end­ur­nýj­aða teng­ingu inn í verka­lýðs­hreyf­ing­una, sem mörgum hefur þótt flokk­inn skorta í lengri tíma.

Stefán Ólafsson sækist nokkuð óvænt eftir sæti á lista Samfylkingarinnar. Mynd: Aðsend
Stefán Ólafsson sæk­ist nokkuð óvænt eftir sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Aðsend

Það vakti ekki síður eft­ir­tekt að ýmsir stjórn­mála­menn sem starfað hafa í öðrum flokkum á miðju- og vinstri­hluta stjórn­mála­lit­rófs­ins sækj­ast nú eftir sæti á lista hjá Sam­fylk­ing­unni. Þar ber fyrst að nefna Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, sem neit­aði að styðja sitj­andi rík­is­stjórn þrátt fyrir að hafa verið kosin á þing fyrir flokk for­sæt­is­ráð­herra. Hún sagði sig svo úr Vinstri grænum fyrr á árinu og gekk til liðs við þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar í lið­inni viku. Þótt Rósa gefi kost á sér í Reykja­vík­ur­val­inu hefur hún ekki úti­lokað að fara fram í Kraganum, þar sem hún var í fram­boði í síð­ustu kosn­ingum. Þá myndi hún hafa raun­hæfar vænt­ingar til að leiða þann lista, en Guð­mundur Andri Thorsson gerði það í síð­ustu kosn­ingum. Búist er við því að Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, for­seti Ungra jafn­að­ar­manna í Kópavogi, verði líka ofar­lega á lista í Kraganum.

Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar og for­maður Samtaka kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi, sæk­ist líka eftir sæti í Reykja­vík og það gerir Ásta Guðrún Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Píratar, líka.

17 manns ráða

Þegar nið­ur­staða fram­boðs­könn­unar í Reykja­vík liggur fyrir fer hún til upp­still­ing­ar­nefndar. Í henni eru 17 manns.

Þau munu raða á fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar og verða ekk­ert bundin af nið­ur­stöðu fram­boðs­könn­un­ar­innar við það, þótt hún verði höfð til hlið­sjónar.

Við­mæl­endur segja að vonir standi til að þessi leið til að velja á lista verði við­höfð víðar á land­inu. Fyr­ir­liggj­andi er að Logi Ein­ars­son, for­maður flokks­ins, mun leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi en margir flokks­menn vilja sjá nýtt blóð í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, þar sem Guðjón S. Brjáns­son er á fleti. Það kjör­dæmi, ásamt Suð­ur­kjör­dæmi, voru þau tvö sem Sam­fylk­ing­unni gekk verst í í kosn­ing­unum 2017, og einu kjör­dæmin þar sem flokk­ur­inn fékk undir tíu pró­sent fylgi. Bæði Guðjón, og Oddný Harð­ar­dóttir odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi, eru talin vilja halda áfram að leiða sín kjör­dæmi.

Það er því skýr vilji innan Sam­fylk­ing­ar­innar til að breikka og breyta ásýnd flokks­ins í aðdrag­anda næstu kosn­inga. Á móti þeim vilja toga öfl sem vilja veg sitj­andi þing­manna sem mestan

Það kemur í ljós í í síð­asta lagi 20. febr­úar hvor leiðin verður ofan á. Og að óbreyttu í sept­em­ber 2021 hvort hún skili árangri hjá íslenskum kjós­endum.

Ath. rit­stjórnar.

Frétta­skýr­ingin var upp­færð kl 11:16. Í upp­haf­legri útgáfu stóð aðað fjórir ein­stak­lingar: Hörður J. Odd­fríð­ar­son, for­maður full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík, Sólveig Ásgríms­dóttir, for­maður 60+ í Reykja­vík, Kristín Erna Arn­ar­dóttir, sem leiðir Verka­lýðs­mála­ráð Sam­fylk­ing­ar­innar, og Ingi­björg Stef­áns­dóttir, sem situr í flokks­stjórn, mynd­uðu upp­still­ing­ar­nefnd. Þær upp­lýs­ingar voru fengnar hjá skrif­stofu flokks­ins. Það voru rangar upp­lýs­ingar. Í nefnd­inni sitja 17.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár