Ágúst Ólafur biðst afsökunar á að hafa gert lítið úr forystuhlutverki Katrínar

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem ræddi um „rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar“ í umræðu­þætti um helg­ina, var víða ásak­aður um kven­fyr­ir­litn­ingu fyrir vikið. Hann hefur beðist afsök­unar á ummælum sínum.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur beðist afsök­unar á ummælum sem hann lét falla í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í gær. Þar sagði hann allar rík­is­stjórnir í heimi væru að fara metn­að­ar­fullar leiðir til að skapa störf „nema rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar“.

Þegar Kristján Krist­jáns­son þátta­stjórn­andi benti á að rík­is­stjórnir væru vana­lega kenndar við for­sæt­is­ráð­herra, í þessu til­viki Katrínu Jak­obs­dóttur, þá sagði Ágúst Ólafur: „„Við Willum [Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var líka gestur þátt­ar­ins] þekkjum alveg hver stjórnar. Og það er ekki Katrín.“

Ágúst Ólafur var ásak­aður um að sýna af sér kven­fyr­ir­litn­ingu með orðum sínum. Á meðal þeirra sem það gerðu var Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sem skrif­aði í stöðu­upp­færslu á Twitter í morgun, þar sem hún hlekkj­aði í þráð Líf Magneu­dóttur, borg­ar­full­trúa Vinstri grænna, um málið: „Botnlaus kven­fyr­ir­litn­ing. Og ekki í fyrsta sinn.“

[adspot]Líf hafði sjálf skrifað: „Ágúst Ólafur, finndu þér eitt­hvað annað að gera. Þú átt ekk­ert erindi á ALþingi jafn illa hald­inn af kven­fyr­ir­litn­ingu og raun ber vitni. Þetta er ekki í fyrsta sinn.“

Á meðal þeirra sem tjáðu sig á þræði Lífar var Kristín Soffía Jóns­dóttir, borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem skrif­aði: „Úff þetta er bara ekki í lagi...

Í afsök­un­ar­beiðni sinni, sem birt­ist á Facebook í morgun, sagði Ágúst Ólafur að hann hafi kom­ist illa að orði og að honum þyki leitt að hafa sett orð sín fram með þeim hætti að hann gerði litið úr for­ystu­hlut­verki Katrínar Jak­obs­dóttur.

Ágúst Ólafur sagð­ist ekki hafa ætlað sér að gagnrýna eða draga í efa for­ystu­hæfi­leika Katrínar sem hann beri mikla virð­ingu fyrir heldur hafi ætl­unin verið að gagnrýna pólitík Sjálfstæð­is­flokks­ins, sem honum finn­ist ráða of miklu í áherslum þess­arar ríkis­stjórnar, sér­stak­lega í fjár­lögum og fjár­mála­á­ætlun þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer með mála­flokk­inn. „En að sjálfsögðu ber Katrín ábyrgð á þess­ari ríkis­stjórn og þessum fjárlögum og því hefði ég viljað sjá meiri áherslu á félags­hyggju og umhverf­ismál í þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár