Efnahagsmálaumræðan „úrelt og þess vegna eiga hægri menn hana enn þá“

Kristrún Frosta­dóttir aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka seg­ist hafa trú á því að Sam­fylk­ingin geti orðið kjöl­festu­flokkur í íslenskum stjórn­málum, en fyrst þurfi að „kveða niður þá mýtu“ að flokkar vinstra megin við miðju geti ekki stjórnað efna­hags­málum.

Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku banka og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Kristrún Frosta­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka og fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV.

„Efna­hags­mála­um­ræðan hér á landi er úrelt og þess vegna eiga hægri menn hana enn þá. Þessu verðum við að breyta,“ skrifar Kristrún Frosta­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Kviku banka og nú fram­bjóð­andi í for­könnun Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, í færslu sem hún birtir í Facebook-hópi Félags frjáls­lyndra jafn­að­ar­manna á Facebook.



Þar fal­ast Kristrún eftir stuðn­ingi í skoð­ana­könnun Sam­fylk­ing­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík, sem hófst í gær og stendur fram á sunnu­dag og útskýrir í ítar­legu máli af hverju hún ákvað að gefa kost á sér. „Það væri ósatt að segja að þetta fram­boð hafi staðið til í langan tíma. Síðasta ár hefur hins leitt mig niður ákveð­inn árfar­veg og ég hef leyft mér að fljóta með,“ skrifar Kristrún.[links]

Hún segir að henni hafi blöskrað hvernig umræðan hér á landi um efna­hags­leg við­brögð við COVID-krís­unni þró­að­ist. „Fólk og lítil fyr­ir­tæki sem hafa verið sjálf­sprottin byggða­stefna hér und­an­farin ár í ferða­þjón­ust­unni fengu þau skila­boð að í kreppum þyrfti ákveðin „hreinsun“ að eiga sér stað. Ég skildi þetta ekki og geri ekki enn – við stöndum í miðjum nátt­úru­ham­förum, þar sem opin­berar sótt­varn­ar­að­gerðir hamla getu tak­mark­aðs hóps til að sjá sér far­borða og ráða­menn geta leyft sér að full­yrða að ef atvinnu­leys­is­bætur verði hækk­aðar letji það fólk til vinnu. Það hefur enga vinnu verið að fá!“ skrifar Kristrún.

„Vonbrigði mín hafa verið mikil“

Hún seg­ist hafa rætt við fjölda eig­enda lít­illa fyr­ir­tækja um allt land, sem hafi byggt upp þjón­ustu og greitt sér lág laun til að styðja við fjár­fest­ingu og horft á allt eigið fé sitt hverfa á nokkrum mán­uðum.

[adspot]

„Þetta eru fyr­ir­tæki sem eru ekki með öfl­uga og fjár­sterka bak­hjarla, ekki með sterkt banka­sam­band og margir hverjir að lenda í per­sónu­legum fjár­hags­erf­ið­leikum. Fólk sem alltaf hefur staðið á sínu, og vann launa­laust síð­ustu mán­uð­ina til að halda öðrum í vinnu. Við erum lítið og náið sam­fé­lag, en við gátum ekki gripið utan um venju­legt fólk sem missti lífs­við­væri sitt né okkar við­kvæm­ustu hópa sem verða alltaf harð­ast úti í ástandi sem þessu. Von­brigði mín hafa verið mikil,“ skrifar Kristrún og bætir við að hún hafi enda „látið ráða­menn heyra það“ und­an­farna mán­uði.

„Ég vissi fyrir víst að ég myndi ná til breið­ari hóps fólks því fáir bjugg­ust við því að mann­eskja í minni stöðu væri til­búin að gagn­rýna með­ferð á þeim sem veikast standa í dag,“ skrifar Kristrún. Hún seg­ist hins vegar hafa alist upp á jafn­að­ar­manna­heim­ili og gengið með þau gildi allt sitt líf.

Þá seg­ist hún hafa reynt að hafa áhrif á fjár­mála­kerfið innan frá og haldið eldræður í sínu starfi um mik­il­vægi jöfn­uðar og hlut­verk hins opin­bera í að tryggja að kerfið vaxi fyrir alla en ekki fáa.

Samfylkingin þurfi að taka sig á í framsetningu efnahagsmála

„Vel­ferðar- og jafn­rétt­is­mál okkar jafn­að­ar­manna eiga að vera leið­ar­ljósið í öllum stefnu­málum, en þeir sem stýra pen­ingum í land­inu og skilja hvernig fjár­magn flæðir um kerfið hafa gríð­ar­leg völd. Þetta vitum við öll. Ég tel mig búa yfir sér­stökum eig­in­leikum; ég hef mikla þekk­ingu á fjár­mála­innviðum lands­ins og dýnamíkinni í hag­kerf­inu en afar tak­mark­aðan áhuga á að græða pen­inga. Þörf fólks til að finna fyrir fjár­hags­legu öryggi get ég þó tengt við enda eins og margir alin upp af fólki sem hafði oft áhyggjur af pen­ingum,“ skrifar Kristrún.

Hún seg­ist hafa mikla trú á mögu­leikum Sam­fylk­ing­ar­innar til að verða kjöl­festu­flokkur í íslenskum stjórn­málum, en að erfitt hafi reynst að „kveða niður þá mýtu hér­lendis að flokkar vinstra megin við miðju geti ekki stjórnað efna­hags­mál­unum.“

Hún segir flokk­inn þurfa að taka sig á varð­andi fram­setn­ingu efna­hags­mála og hvernig þau eru tengd við jafn­að­ar­manna­gildi. „Hag­fræðin hefur gjör­breyst á und­an­förnum árum, þar sem öll áherslan er einmitt á að reka hag­kerfi eftir gildum sem falla að öllu leyti með jafn­að­ar­mönnum. Efna­hags­mála­um­ræðan hér á landi er úrelt og þess vegna eiga hægri menn hana enn þá. Þessu verðum við að breyta,“ skrifar Kristrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár