Ágúst Ólafur snýr aftur á þing

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, snýr aftur til starfa á Alþingi á morgun, 1. maí. Hann hefur verið í leyfi frá því í des­em­ber.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, mun snúa aftur til þing­starfa á morgun. Hann greinir frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook.

[links]Þar segir hann að það sé ekk­ert leynd­ar­mál að und­an­farna mán­uði hafi hann þurft að end­ur­skoða líf sitt og sækja sér fag­legrar aðstoðar við áfeng­is­vanda, sem var meiri en hann hefði áttað sig á. „Sú aðstoð sem ég hef fengið frá SÁÁ og fleiri stuðn­ings­hópum hefur reynst mér ómet­an­leg. Ég hef þurft að horfast í augu við líf mitt, við­ur­kenna van­mátt minn gagn­vart áfengi og vera til­bú­inn að þiggja aðstoð ann­arra. Hjá SÁÁ hefur mér opn­ast nýr heimur. Markmið þeirra sem leita sér aðstoðar er að verða betri sam­ferð­ar­menn fyrir sína nán­ustu og sam­fé­lagið allt. Hinni eig­in­legu með­ferð er nú lokið þótt verk­efn­inu ljúki vissu­lega aldrei.“

Ágúst seg­ist ekki taka því sem sjálf­gefnu að taka aftur sæti á þingi og að hann muni leggja sig allan fram við að ávinna sé traust á nýjan leik. „Ég brenn enn fyrir því að starfa í þágu sam­fé­lags­ins og koma góðum málum til leiðar sem stjórn­mála­maður. Í raun er ég biðja um annað tæki­færi.“

Ágúst Ólafur hefur verið í leyfi frá þing­­störfum frá 7. des­em­ber 2018 eftir að hafa verið áminntur af trún­­að­­ar­­nefnd flokks­ins vegna kyn­­ferð­is­­legrar áreitni gegn blaða­­manni Kjarnans. Í til­­kynn­ingu sem Ágúst Ólafur sendi frá sér 7. des­em­ber ætl­­aði hann að taka sér tveggja mán­aða leyfi. Sam­kvæmt þeirri fyr­ir­ætlan hefði hann átt að snúa aftur til starfa í dag, föstu­dag­inn 8. febr­ú­ar. Í yfir­lýs­ing­unni segir hann að hann skammist sín og iðrist mjög fyrir þá hegðun og þann dóm­greind­ar­brest sem hann hafi sýnt af sér. „Ég vil biðj­ast aftur inni­lega afsök­unar á hátt­semi minn­i.“

Þegar tveir mán­uðir voru liðnir þá sendi Ágúst Ólafur frá sér aðra yfir­lýs­ingu ogsagði að hann myndi ekki taka til starfa aftur í bráð. Hann hefði óskað eftir ótíma­bundnu veik­inda­leyfi frá störfum á Alþingi á meðan að han lyki áfeng­is­með­ferð hjá SÁÁ og ynni að því að ná bata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár