Ágúst Ólafur í tveggja mánaða leyfi vegna ósæmandi framkomu

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Ágúst Ólafur Ágústs­son, er far­inn í leyfi. Trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar veitti honum áminn­ingu.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er far­inn í tveggja mán­aða ólaunað leyfi frá þing­störfum, en honum var veitt áminn­ing af trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar vegna ósæmi­legrar hegð­unar hans í garð konu.

Hann greinir frá þessu sjálfur á Facebook síðu sinni.

Orðrétt segir þar:

Kæru vinir,

Í síð­ustu viku hlaut ég áminn­ingu frá trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar og finnst mér rétt að stíga það skref að skýra opin­ber­lega frá máls­at­vik­unum sem leiddu til þess­arar nið­ur­stöðu.

Kvöld eitt í byrjun sum­ars hitti ég konu á mínu reki á bar í miðbæ Reykja­víkur. Við könn­uð­umst lít­il­lega við hvort annað, tókum saman tal og í kjöl­farið fórum við saman yfir á vinnu­stað hennar.

Þegar þangað var komið héldum við sam­ræð­unum áfram. Því miður hafði ég mis­skilið illi­lega á hvaða for­sendum við vorum stödd þar og nálg­að­ist ég hana tví­vegis óum­beð­inn og spurði hvort við ættum að kyss­ast. Svar hennar var nei og hún gaf mér skýrt til kynna að það væri ekki í boði með því að banda mér frá sér. Tekið skal fram að það var alger­lega mín ranga ályktun að slíkt væri í boði.

Ég brást við þess­ari skýru höfnun hennar með því að láta mjög sær­andi orð falla um hana. Ég er ekki stoltur af þeim orðum eða fram­komu minni og veg­ferð almennt þetta kvöld. Ég varð mér ein­fald­lega til hábor­innar skammar. Hún bað mig því næst að fara, sem ég og gerði.

Nokkru síðar hafði hún svo sam­band við mig og ræddi við mig upp­lifun sína af sam­skiptum okkar þetta kvöld. Hún sagði mér að orð mín og fram­koma hefðu sært hana og að þetta hafi valdið henni van­líðan, meðal ann­ars vegna þeirrar stöðu sem ég gegni. Ég bað hana inni­lega afsök­unar á að hafa látið henni líða svona. Við töl­uðum síðan aftur saman og áttum síðar sér­stakan fund þar sem hún útskýrði fyrir mér hvaða áhrif þetta hafi haft á sig.

Hún ákvað í kjöl­farið að stíga það eðli­lega skref að til­kynna til fag­legrar trún­að­ar­nefndar flokks míns hvernig ég hefði komið fram. Trún­að­ar­nefndin er sér­stakur far­vegur fyrir fólk til að til­kynna í trún­aði áreitni, óvið­eig­andi fram­komu eða annað slíkt af hálfu félaga í Sam­fylk­ing­unni. Í nefnd­inni situr fólk með bak­grunn í sál­fræði, lög­fræði og fleiri greinum. Við fengum bæði að koma fyrir nefnd­ina og lýsa atburða­rásinni og þar lýsti ég aftur iðrun minni og vilja til að bæta fyrir fram­komu mína.

Trún­að­ar­nefndin hefur þau úrræði að ljúka málum án við­ur­laga og eftir atvikum getur hún mælt með ráð­gjöf og sam­tali á milli máls­að­ila. Þá getur nefndin einnig veitt áminn­ingu eða gengið lengra og lagt til að við­kom­andi víki úr trún­að­ar­störfum. Í síð­ustu viku lá nið­ur­staða trún­að­ar­nefnd­ar­innar svo fyrir og var hún sú að veita mér áminn­ingu vegna fram­komu minnar og vita­skuld uni ég því. Í því felst að ég þurfi að horfast í augu við að fram­koma mín hafi verið ámæl­is­verð og líta í eigin barm.

Ég vil þess vegna skýra frá því að ég hef ákveðið að leita mér fag­legrar aðstoðar vegna þess­arar fram­komu minnar. Ég tel einnig rétt að ganga lengra en trún­að­ar­nefndin leggur til og hef því óskað eftir launa­lausu leyfi frá þing­störfum í tvo mán­uði.

Ég vil nota tæki­færið og ítreka afsök­un­ar­beiðni mína til við­kom­andi. Mér þykir afar leitt að hafa sýnt henni þessa fram­komu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár