Rúmlega helmingur Íslendinga hlynntur því að Ágúst Ólafur segi af sér

Næstum annar hver kjós­andi Sam­fylk­ing­ar­innar vill að Ágúst Ólafur Ágústs­son segi af sér þing­mennsku. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru and­víg­astir afsögn hans.

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Á bil­inu 51 til 52 pró­sent lands­manna eru á þeirri skoðun að Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, eigi að segja af sér sem þing­maður. Tæplega þriðj­ungur, eða 32 pró­sent, eru í með­al­lagi hlynnt því en 17 pró­sent lands­manna eru and­vígir.

[links]Alls eru 48,3 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar á þeirri skoðun að Ágúst Ólafur eigi að segja af sér. Kjós­endur Mið­flokks­ins eru and­víg­astir afsögn hans, en 45,8 pró­sent telja að hann eigi ekki að segja af sér þing­mennsku. Kjós­endur Pírata og Fram­sókn­ar­flokks eru hlynnt­astir afsögn Ágústar Ólafs.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Svar­endur voru 817 tals­ins og komu úr Þjóðgátt Maskínu. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. Könnunin fór fram dag­ana 14-28. des­em­ber 2018. Spurt var: „Ert þú hlynnt(ur) eða and­víg(ur) því að Ágúst Ólafur Ágústs­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segi af sér?“

[adspot]Ágúst Ólafur til­kynnti þann 7. des­em­ber 2018 að hann myndi fara í tveggja mán­aða leyfi eftir að honum var veitt áminn­ing af trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar vegna ósæmi­legrar hegð­unar hans í garð blaða­manns á Kjarn­anum. Hún sendi frá sér svar við yfir­lýs­ingu sem Ágúst Ólafur hafði birt við það til­efni nokkrum dögum síðar. Það svar má lesa hér.

Í könnun Maskínu kemur fram eldri Íslend­ingar eru lík­legri til þess að vera and­vígir afsögn Ágústar Ólafs, þeir sem lokið hafa fram­halds­skóla­prófi eða iðn­menntun eru hlynnt­astir afsögn Ágústs Ólafs (58,8 pró­sent) og háskóla­mennt­aðir and­víg­astir(19,3 pró­sent).

Maskína gerði sam­bæri­lega könnun á skoðun lands­manna gagn­vart afsögn alþing­is­mann­anna sex sem áttu umdeild sam­skipti á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sem tekin voru upp og birt í fjöl­miðlum. Nið­ur­staðan þar var að á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga voru hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex. Flestum fannst að Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, ætti að segja af sér (91 pró­sent) en næstum jafn háu hlut­falli fannst að Berg­þór Óla­son, ann­ars þing­maður sama flokks, ætti að gera það (90 pró­sent). Þá sögð­ust 86 pró­sent vera þeirrar skoð­unar að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, ætti að segja af sér og 85 pró­sent að Karl Gauti Hjalta­son, fyrr­ver­andi þing­maður Flokks fólks­ins og nú óháður, ætti að gera slíkt. 82 pró­sent lands­manna vildu að Ólafur Ísleifs­son, sem var rek­inn úr Flokki fólks­ins ásamt Karli Gauta og situr nú sem óháður, ætti að víkja og 74 pró­sent vildu að Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins myndi gera slíkt.

Bæði Gunnar Bragi og Bergþór fóru í leyfi frá störfum líkt og Ágúst Ólafur en eng­inn sex­menn­ing­anna hefur sagt af sér þing­mennsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár