Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin enn með mest fylgi

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 22 pró­sent, sem er þremur pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu könnun MMR. Sam­fylk­ingin mælist með 15,1 pró­sent fylgi, einu og hálfu pró­sentu­stigi minna en við síð­ustu mæl­ingu.

Bjarni Benediktsson og Logi Einarsson.
Bjarni Bene­dikts­son og Logi Ein­ars­son. Mynd: Samsett

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 22 pró­sent, sem er þremur pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu könnun MMR sem gerð var í seinni hluta jan­úar en 1,7 pró­sentu­stigum meira en var í upp­hafi jan­úar.

Sam­fylk­ingin mælist með 15,1 pró­sent fylgi, einu og hálfu pró­sentu­stigi minna en við síð­ustu mæl­ingu en Mið­flokk­ur­inn mælist með 13,3 pró­sent fylgi, tæp­lega tveimur pró­sentu­stigum minna en við síð­ustu mæl­ingu. Þá mæl­ast Vinstri græn með 10,7 pró­sent fylgi og Píratar með 10,4 pró­sent fylgi.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 41,9 pró­sent, sam­an­borið við 38,9 pró­sent í síð­ustu könnun.

Fylgi Við­reisnar mælist nú 9,7 pró­sent og mæld­ist 12,4 pró­sent í síð­ustu könnun. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mælist 6,8 pró­sent og fylgi Sós­í­alista­flokks Íslands með 5,3 pró­sent. Fylgi Flokks fólks­ins mælist 4,6 pró­sent en stuðn­ingur við aðra mælist 2,1 pró­sent sam­an­lagt.

Alls svör­uðu 1.003 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri, en könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 6. til 10. febr­úar 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár