Þorsteinn Pálsson formaður nefndar um gjaldtöku í sjávarútvegi

Þverpóli­tísk nefnd leggst yfir til­lögur að gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Þorsteinn Pálsson
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Þor­steinn Pálsson Mynd: Samsett mynd

Gengið hefur verið frá skipan nefndar til að móta til­lögur um hvernig tryggja megi sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Formaður nefnd­ar­innar er Þor­steinn Pálsson sem skip­aður er af Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Þor­steinn gegndi emb­ætti sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra í átta ár frá 1991-1999. Nefndin er að öðru leyti skipuð sam­kvæmt til­nefn­ingum allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi. Nefndin skal skila til­lögum sínum til ráð­herra í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. des­em­ber á þessu ári. „Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar er lögð áhersla á að unnið verði að mati á þeim kostum sem tækir eru til gjald­töku fyrir afnot sjáv­ar­auð­lind­ar­innar, svo sem mark­aðsteng­ingu, sér­stöku afkomu­tengdu gjaldi eða öðrum leiðum, í því skyni m.a. að tryggja betur að gjald fyrir aðgang að sam­eig­in­legri auð­lind verði í eðli­legu hlut­falli við afrakstur veið­anna. Mark­miðið er að til­lögur nefnd­ar­innar geti orðið grund­völlur að þverpóli­tískri og víð­tækri sátt í sam­fé­lag­inu um sjáv­ar­út­veg­inn og þar með grunnur að auknum stöð­ug­leika í starfs­um­hverfi hans og tengdra greina til fram­tíðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Eft­ir­taldir sitja í nefnd­inni:

· Hanna Katrín Frið­riks­son - fyrir Viðreisn

· Logi Ein­ars­son - fyrir Sam­fylk­ingu

· Mörður Ing­ólfs­son - fyrir Pírata

· Páll Pálsson - fyrir Fram­sókn­ar­flokk

· Svandís Svav­ars­dóttir - fyrir VG

· Teitur Björn Ein­ars­son - fyrir Sjálf­stæð­is­flokk

· Theodóra S. Þor­steins­dóttir - fyrir Bjarta fram­tíð

· Þor­steinn Pálsson, for­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár