Stjórn RÚV fundar í dag – Beiðni Samherja vegna niðurstöðu siðanefndar rædd

Stjórn Rík­is­út­varps­ins mun í dag funda og meðal ann­ars ræða kröfu Samherja um að Helgi Seljan fjalli ekki meira um mál sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Samherji

Samherji hefur krafið stjórn Rík­is­út­varps­ins (RÚV) í skrif­legu erindi um að meina frétta­mann­inum Helga Seljan að fjalla um mál sem tengj­ast fyr­ir­tæk­inu eða komi að vinnslu efnis því tengdu. Fyr­ir­tækið hefur sömu­leiðis kraf­ist þess að Helgi verði áminntur í starfi.

Bréfið var sent í kjöl­far þess að siða­nefnd RÚV komst að þeirri nið­ur­stöðu að Helgi hefði gerst brot­legur við siða­reglur fyr­ir­tæk­is­ins með ummælum sem hann lét falla á sam­fé­lags­miðlum. Siða­nefndin komst þó ekki að þeirri nið­ur­stöðu að Helgi hefði gerst brot­legur í starfi að mati stjórn­enda RÚV né að nið­ur­staða hennar varði frétta­flutn­ing af Samherja. Samherji gerir athuga­semd við þá stað­hæf­ingu stjórn­end­anna. Með því er verið að biðja stjórn RÚV að snúa við ákvörðun stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

Stjórn RÚV mun funda í dag og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans verður nið­ur­staða siða­nefnd­ar­innar, end­ur­skoðun siða­reglna og bréf Samherja rædd á þeim fundi.

Kærðu 11 fréttamenn

Líkt og Kjarninn hefur greint frá kærði Samherja ell­efu starfs­menn RÚV í ágúst í fyrra vegna meintra brota á siða­reglum mið­ils­ins, sem kveða á um að frétta­fólk þess taki ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni.

[adspot]Í síð­ustu viku komst svo siða­nefnd RÚV að því að fimm ummæli Helga á sam­fé­lags­miðlum um Samherja hafi brotið gegn siða­reglum. Hún hefur síðan end­ur­skoðað þá afstöðu sína og dregið til baka þá nið­ur­stöðu að ein ummælin, sem sner­ust um fyr­ir­tækið Eldum Rétt, væru brot á siða­reglum.

Kallað eftir því að siðareglur verði endurskoðaðar

Þorra ummæl­anna var vísað frá eða kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þau brytu ekki í bága við siða­reglur, fyrir utan nokkur ummæli Helga. Nefndin flokkar þessi ummæli, sem eru færslur á Twitter og Facebook, sem alvar­leg brot á siða­reglum RÚV, en bætti þó við að hún teldi ekki að Helgi hafi gerst brot­legur í starfi með þeim.

[links]Stjórn Félags frétta­manna lýsti von­brigðum sínum með nið­ur­stöðu siða­nefndar RÚV og hefur áhyggjur af því hvaða afleið­ingar nið­ur­staðan getur haft fyrir gagn­rýna fjöl­miðl­un. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sam­þykkti á laug­ar­dag.

„Upp er komin sú staða sem margir vör­uðu við og ótt­uð­ust þegar siða­reglur RÚV voru sett­ar. Ákvæði þeirra um bann við tján­ingu á sam­fé­lags­miðlum er notað til að hefta tján­ing­ar­frelsi frétta­manna og í til­raunum til að þagga niður í frétta­mönnum og umfjöllun þeirra. Frétta­menn geta illa setið undir því að siða­reglur RÚV séu not­aðar til að kæla umfjöllun þeirra,“ segir í álykt­un­inni og kallað er eftir því að siða­regl­urnar verði end­ur­skoð­að­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár