Segja handaband vera skilyrði fyrir dönskum ríkisborgararétti

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn og Íhalds­flokkur Dan­merkur telja rétt að neita inn­flytj­endum um rík­is­borg­ara­rétt vilji þeir ekki taka í hönd­ina á öðrum Dönum.

Bás hjá frambjóðanda Danska þjóðarflokksins.
Bás hjá fram­bjóð­anda Danska þjóð­ar­flokks­ins. Mynd: NILS MEILVANG / EPA

Tveir íhalds­flokkar í Danmörku vilja neita dönskum inn­flytj­endum um rík­is­borg­ara­rétt vilji þeir ekki taka í hönd á öðrum Dönum. Flokk­arnir búast ekki við and­stöðu frá rík­is­stjórn­inni í þessu máli og búast við að skil­yrð­inu verði fram­fylgt á næst­unni. Þetta kemur fram í frétt frá Danska rík­is­út­varp­inu.

Í frétt­inni er vikið að nýjum reglum sem danska rík­is­stjórnin inn­leiddi fyrr í sumar um skil­yrði fyrir dönskum rík­is­borg­ara­rétt. Samkvæmt þeim skil­yrðum þarf hver umsækj­andi að taka þátt í sér­stakri athöfn í sínu umdæmi og skuld­binda sig til að hafa dönsk gildi í heiðri. Samkvæmt Danska þjóð­ar­flokknum og Íhalds­flokknum í Danmörku mun athöfnin einnig inni­halda handa­band við sýslu­mann umdæm­is­ins.

„Maður tekur í höndina í Danmörku“

Samkvæmt Martin Hen­rik­sen, tals­manni útlend­inga­mála Danska þjóð­ar­flokks­ins, reyndu flokk­arnir að gera handa­bandið að form­legu skil­yrði fyrir rík­is­borg­ara­rétt, en samið hafi verið um að umsækj­endur skuli sýna almenna hátt­vísi á athöfn­inni. „Og ég reikna nátt­úru­lega með að rík­is­stjórnin og Sós­í­alde­mókrat­arnir muni styðja Danska þjóð­ar­flokk­inn þegar regl­urnar verða teknar í gildi,“ segir Martin.

Naser Kader, tals­maður útlend­inga­mála Íhalds­flokks­ins tekur undir mál­flutn­ing Martins og seg­ist enn fremur ekki búast við neinni and­stöðu við eft­ir­far­andi skil­yrði. „Maður á að taka við öllum pakk­anum, og pakk­inn inni­heldur athöfn þar sem maður lýsir yfir tryggð og tekur í hönd­ina á öðrum. Maður tekur í hönd­ina í Danmörku,“ bætir Naser við.

Hvers vegna tekur fólk ekki í hendur?

Samkvæmt danska blað­inu Politi­ken er óþarfa snert­ing ein­stak­linga af gagn­stæðu kyni utan hjóna­bands litin horn­auga í íslam. Margir múslimar telja þann sið sýna litla viðr­ingu, hóg­værð og heiður og kjósa því frekar að sleppa honum. Íslamski rit­höf­und­ur­inn Aminah Tønnsen segir tregðu við að taka í hönd­ina hins vegar ekki snú­ast um kynja­for­dóma eða virð­ing­ar­leysi gagn­vart þeim sem eru ekki múslimar.

Handa­bönd milli ókunn­ugra eru ekki ein­ungis litin horn­auga í íslam, en þau eru til dæmis bönnuð meðal strang­trú­aðra gyð­inga. Í öðrum Asíu­löndum eru handa­bönd einnig ekki sér­stak­lega við­ur­kennd, sér­stak­lega ekki meðal fólks af gagn­stæðu kyni. Þess í stað heils­ast gjarnan fólk með því að hneigja sig. Á síð­ustu ára­tugum hafa handa­böndin þó rutt sér til rúms meðal við­skipta­manna í Asíu eftir aukin sam­skipti við Vest­ur­landa­búa, en á öðrum stöðum bera handa­bönd vott um virð­ing­ar­leysi.

Frétta­stofa BBC greindi frá því í gær að múslím­sku pari hefði verið neitað um rík­is­borg­ara­rétt í Sviss eftir að þau vildu ekki taka í hönd­ina á emb­ætt­is­mönnum þar í landi á meðan á við­tali þeirra stóð. Pierre-Antoine Hilbrand, með­limur nefnd­ar­innar sem tók við­tal við parið, sagði sviss­nesku stjórn­ar­skrána tryggja rétt milli karla og kvenna og ríkja yfir „for­dómum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár