Keyptur út vegna gruns um skattalagabrot - Allt lykilstarfsfólk Sæmarks hefur sagt upp

Búið er að kaupa Sigurð Gísla Björns­son út úr fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­inu Bacco Seaproducts. Ástæðan er sú að hann er grun­aður um skatta­laga­brot. Allt lyk­il­starfs­fólk ann­ars fyr­ir­tækis Sigurðar Gísla, Sæmarks, sagði upp störfum á mánu­dag.

Sigurður Gísli Björns­son, stofn­andi og eig­andi útflutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæmark ehf. er grun­aður um skatta­laga­brot. Vegna þess keyptu með­eig­endur hans í öðru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, Bacco Seaproducts, hlut hans. Í frétta­til­kynn­ingu frá með­eig­end­unum, Hjalta Hall­dórs­syni og Bjart­mari Pét­urs­syni, segir að ákvörð­unin um að kaupa Sigurð Gísla út sé tekin til að „vernda fram­tíð­ar­hags­muni félags­ins og við­skipta­sam­bönd þess. Sigurður Gísli sé nú ekki á nokkurn hátt tengdur Bacco Seaproducts.“

Í til­kynn­ing­unni er einnig greint frá því að allt lyk­il­starfs­fólk Sæmarks hafi sagt upp störfum á mánu­dag og að ein­hverjir þeirra hafi leitað til Bacco eftir störfum. Ekkert þeirra sé grunað um að hafa haft nokkra aðkomu að meintum brotum Sigurðar Gísla. „Ákveðið hafi verið að bjóða starfs­fólk­inu störf hjá Bacco Seaproducts enda búi það yfir þekk­ingu og reynslu sem sé mik­il­væg íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Hags­munir fram­leið­anda, starfs­fólks og við­skipta­vina hafi verið hafðir að leið­ar­ljósi við ákvörð­un­ina,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Sæmark er stórt fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæki. Bacco Seaproducts er sömu­leiðis umsvifa­mik­ill fisk­út­flytj­andi sem selur vörur undir vöru­merk­inu Icefish- Frozen Seafood. Bæði fyr­ir­tækin velta millj­örðum króna árlega.

Meint hundruð milljóna undanskot

Frétta­blaðið greindi frá því 18. jan­úar að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi gert hús­leit gjá Sigurði Gísla. Auk þess hafi eignir hans verið kyrr­settar og banka­reikn­ingar frystir. Hin meintu skatt­svik hans eru talin hlaupa á hund­ruð millj­óna króna.

Upp­lýs­ingar um aflands­fé­lag í eigu Sigurðar Gísla komu fram í Panama­skjöl­unum sem opin­beruð voru á vor­mán­uðum 2016. Félag hans heitir Freezing Point Corp og var stofnað í Panama árið 2009. Rannsókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra hófst í kjöl­farið. Grunur er um að Sigurður Gísli hafi gerst sekur um skatt­svik í gegnum fleiri en eitt félag.

Sig­urður Gísli er líka einn eig­enda fjár­fest­ing­ar­fé­lags­ins Óska­beins sem er meðal ann­ars stór hlut­hafi í trygg­inga­fé­lag­inu VÍS og Korta­þjón­ust­unni.

Fjallað var um málið á sjáv­ar­út­vegsvefnum Undercurrent News í gær. Þar segir að full­trúar skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi leitað á skrif­stofum Sæmarks í síð­ustu viku, nánar til­tekið 26. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár