Útflutningur sjávarafurða ekki verið meiri í fimm ár

Samhliða mik­illi geng­is­veik­ingu hefur útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða auk­ist tölu­vert á síð­ustu mán­uðum. Nýliðinn árs­fjórð­ungur hefur verið sá gjöf­ul­asti í fimm ár í grein­inni.

Útflutn­ingur sjáv­ar­af­urða nam tæpum 30 millj­örðum í sept­em­ber, sem er 20 pró­senta aukn­ing miðað við sama mánuð í fyrra. Ekki hefur virði útfluttra sjáv­ar­af­urða verið jafn­mikið á síð­ustu þremur mán­uðum síðan á öðrum árs­fjórð­ungi 2015.

Þetta kemur fram í nýbirtum tölum hag­stofu um vöru­við­skipti. Samkvæmt þeim jókst heild­ar­út­flutn­ingur vara um 11,2 millj­arða í sept­em­ber miðað við sama mánuð í fyrra. Meiri­hlut­inn af þeirri aukn­ingu, eða 6,5 millj­arðar var vegna meiri útflutn­ings sjáv­ar­af­urða. Útflutn­ingur land­bún­að­ar­vara jókst líka um 2,6 millj­arða og er það meira en tvö­falt meira en útflutn­ing­ur­inn í sept­em­ber í fyrra.

Sveiflast með genginu

Ef litið er aftur til síð­ustu átta ára hefur útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða vaxið til­tölu­lega mikið á síð­ustu þremur árum sam­hliða veik­ingu krón­unnar. Þessa þróun má sjá á mynd hér að neðan þar sem virði fisk­út­flutn­ings í krónum hefur auk­ist á sama tíma og gengi ann­arra mynta gagn­vart krón­unni hefur hækkað.

Í sept­em­ber síð­ast­liðnum var gengi krón­unnar svipað og það var fyrir rúmum fimm árum síðan, eða um mitt ár 2015. Sömu­leiðis er virði fisk­út­flutn­ings á svip­uðum miðum og það var þá, en útflutn­ingur sjáv­ar­af­urða nam rúm­lega 70 millj­örðum króna á öðrum árs­fjórð­ungi 2015. 

Ekki hafa enn feng­ist tölur frá sept­em­ber­mán­uði um land­aðan afla, en alls var 15 pró­sentum meira landað í ágúst síð­ast­liðnum en á sama tíma í fyrra. Hins vegar hefur afla­magn íslenskra skipa verið til­tölu­lega lítið það sem af er ári þótt verð­mæti þess hafa verið mikil, en fyrsti fjórð­ungur þessa árs var sá afla­minnsti í að minnsta kosti átta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár