Tíu staðreyndir um búvörusamningana

1 - Búvöru­samn­ing­arnir eru samn­ingar rík­is­ins við bændur. Þeir snúa bæði að land­bún­að­ar­lögum og starfs­skil­yrðum við fram­leiðslu græn­metis, kinda­kjöts og naut­gripa­af­urða. Nýjustu samn­ing­arnir eiga að gilda í tíu ár, til 2026, en mögu­leiki er gef­inn fyrir end­ur­skoðun á samn­ings­tím­anum, árin 2019 og 2023. Full­trúar ríkis og bænda und­ir­rit­uðu samn­ing­ana í síð­ustu viku, 19. febr­úar.

2 - Um er að ræða fjóra samn­inga: Ramma­samn­ing um almenn starfs­skil­yrði land­bún­að­ar­ins og samn­inga um starfs­skil­yrði naut­gripa­ræktar, sauð­fjár­ræktar og garð­yrkju.

3 - Samn­ing­arnir eiga eftir að fara fyrir Alþingi til sam­þykktar, þó að gert sé ráð fyrir fyrstu fjár­hæð­inni í fjár­lögum þessa árs, um 900 millj­óna króna útgjalda­aukn­ingu til grein­ar­innar. Samkvæmt atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu er helsta ástæða aukn­ing­ar­innar fram­lag vegna inn­leið­ingar á reglu­gerðum um vel­ferð dýra, inn­flutn­ingur á nýju erfða­efni af hold­nauta­stofni, auk­inn stuðn­ingur við líf­ræna ræktun og aukin fjöl­breytni í land­bún­aði. Í samn­ing­unum er ákvæði sem segir að þeir séu gerðir með fyr­ir­vara um hugs­an­legar breyt­ingar á þjóð­rétt­ar­legum skuld­bind­ingum Íslands sem leiða af ákvörðun Alþingis.

4 - Með samn­ing­unum er stefnt að því að kvóta­kerfi í mjólk­ur­fram­leiðslu og sauð­fjár­rækt verði lagt niður. Hins vegar hefur verið ákveðið að halda núver­andi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019.

5 - Greiðslur sam­kvæmt samn­ing­unum nema um 13,8 millj­arða króna árið 2017 en enda í 12,7 millj­örðum króna árið 2026 við lok samn­ings. Þetta gera um 132 millj­arða alls á samn­ings­tím­anum.

6 - Búvöru­samn­ing­arnir eru verð­tryggðir. Árleg fram­lög mið­ast við for­sendur fjár­laga fyrir árið 2016, en taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­upp­færslu fjár­laga. Ef þróun með­al­tals­vísi­tölu neyslu­verðs verður hins vegar önnur en verð­lags­for­sendur fjár­laga á árinu skal leið­rétta mis­mun­inn í fjár­lögum næsta árs. Hér er því um eins konar tvö­falda verð­trygg­ingu að ræða, sam­kvæmt Hagsjá Lands­bank­ans.

7 - Gagnrýni hefur komið fram varð­andi samn­ing­ana að hags­munir neyt­enda séu hunds­aðir. Íslenskir neyt­endur borg­uðu átta millj­örðum krónum meira fyrir mjólk­ina sem þeir neyttu árin 2011 til 2013, ef mjólkin hefði verið flutt inn. Fram­leiðslu­kostn­aður mjólkur á þessum árum var met­inn 15,5 millj­arða, en inn­flutn­ingur á sams­konar mjólk hefði kostað 7,5 millj­arða.

8 - Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins, hafa gagn­rýnt samn­ing­ana harð­lega. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur svarað fyrir gagn­rýn­ina og segir „málið frá”.

9 - Félag atvinnu­rek­enda og Samtök versl­unar og þjón­ustu gagn­rýna samn­ing­ana harð­lega. Óljóst sé hvernig almenn­ingur muni njóta góðs af þeim og með þeim sé verið að við­halda ein­okun á mjólk­ur­mark­aði. Félag kúa­bænda fagnar þeim og segir þá styrkja stöðu bænda.

10 - Bein­greiðslur til garð­yrkju­bænda skipt­ast á milli þriggja fram­leiðslu­teg­unda; tómata (49%), gúrkna (37%) og paprika (14%). Bein­greiðslur verða greiddar til fram­leið­enda á eigin fram­leiðslu á afurð­unum til að jafna sam­keppn­is­skil­yrði gagn­vart inn­flutn­ingi. Upphæðin mið­ast við selt magn afurða af fyrsta gæða­flokki innan árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár