Þingflokksformaður og ritari ósáttar við búvörusamninga

Þing­flokks­for­maður og rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru alfarið á móti nýund­ir­rit­uðum búvöru­samn­ingum. „Eru menn ekki að grín­ast?" spyr þing­flokks­for­maður. Báðar von­ast til að samn­ing­arnir ná ekki í gegn á Alþingi.

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er alfarið á móti nýjum búvöru­samn­ingum rík­is­ins við bændur. Hún seg­ist aldrei munu sam­þykkja málið á Alþingi. Hún setti stöðu­færslu á Facebook síðu sína í gær þar sem hún deilir frétt um und­ir­ritun samn­ing­anna í gær með orð­unum: „Eru menn ekki að grín­ast, aldrei með mínu sam­þykki á Alþingi Íslend­inga.”

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir með Ragn­heiði í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun. 

„Mér líst mjög illa á þessa samn­inga. Það er gjör­sam­lega ótækt að ætla að bæta svona í rík­is­styrki til land­bún­að­ar­ins. Þetta er ekki rétta leiðin til að bæta kjör bænda eða annað, sagði hún. „Land­bún­aður á ekki að vera jafn mikið rík­is­styrktur og hann er í dag, hvað þá að bæta næstum því millj­arði við. Það er út í hött. Ég vona að þetta verði ekki sam­þykkt á þing­inu.”

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ingar, var líka í Viku­lok­unum í morgun, og hún sagði að það hefði verið eðli­legra að fá fleiri að borð­inu til að gera samn­ing­ana. Hún vildi sjá betur áhrif samn­ing­anna á neyt­endur. 

Nýir búvöru­samn­ingar gera það að verkum að útgjöld rík­is­ins aukast um 900 millj­ónir á næsta ári. Hækkunin verður þó ekki eins mikil á kom­andi árum og á að vera að með­al­tali um 700 millj­ónir á ári. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, og Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna, und­ir­rit­uðu samn­ing­ana í gær.

Búvöru­samn­ing­arnir eru yfir­grips­miklir og fela í sér tölu­vert miklar breyt­ingar á land­bún­að­ar­kerf­inu. í þeim felst meðal ann­ars að kvóta­kerfi í mjólk­ur­fram­leiðslu og sauð­fjár­rækt skuli lagt niður. Samn­ing­arnir eru til tíu ára. Styrkjum til bænda verður breytt, meðal ann­ars með því að þeir verða ekki bundnir fram­leiðslu á afurðum eins og áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár