Sigmundur Davíð um búvörusamninga: „Málið er frá"

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ánægður með nið­ur­stöður nýrra búvöru­samn­inga. Í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag segir hann: „Það er búið að und­ir­rita þessa samn­inga og málið er frá.“

Nýir búvöru­samn­ingar gera það að verkum að útgjöld rík­is­ins vegna greiðslna til land­bún­aðar aukast um 900 millj­ónir á næsta ári. Heild­ar­út­gjöld rík­is­ins vegna samn­ing­ins á næta ári verða þrettán millj­arðar króna. Hækkunin verður þó ekki eins mikil á kom­andi árum og á að vera að með­al­tali um 700 millj­ónir á ári. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður Bænda­sam­tak­anna, und­ir­rit­uðu samn­ing­ana á föstu­dag. Þeir eru til tíu ára.

Þótt for­sæt­is­ráð­herra segi málið frá á Alþingi enn eftir að sam­þykkja nýja búvöru­samn­inga. Þegar hefur gætt umtals­verðrar óánægju með samn­ing­inn innan ann­ars stjórn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er til að mynda alfarið á móti honum. Hún seg­ist aldrei munu sam­þykkja málið á Alþingi. Í stöðu­færslu sem Ragn­heiður setti á Facebook síðu sína á föstu­dag, þar sem hún deilir frétt um und­ir­ritun samn­ing­anna, segir hún: „Eru menn ekki að grín­ast, aldrei með mínu sam­þykki á Alþingi Íslend­inga.”

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir með Ragn­heiði í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag. „Mér líst mjög illa á þessa samn­inga. Það er gjör­sam­lega ótækt að ætla að bæta svona í rík­is­styrki til land­bún­að­ar­ins. Þetta er ekki rétta leiðin til að bæta kjör bænda eða annað, sagði hún. „Land­bún­aður á ekki að vera jafn mikið rík­is­styrktur og hann er í dag, hvað þá að bæta næstum því millj­arði við. Það er út í hött. Ég vona að þetta verði ekki sam­þykkt á þing­inu.”

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur einnig sagt að hann geti ekki stutt samn­ing­anna eins og þeir séu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár