Færri íbúðir á hvern fullorðinn einstakling

Íbúðum á hvern full­orð­inn ein­stak­ling hefur fækkað stöðugt á síð­ustu 14 árum. Nú eru þær 8 pró­sent færri en þær voru árið 2007.

Fjölgun íbúða hefur ekki haldist í við fjölgun fullorðinna hér á landi síðustu árin.
Fjölgun íbúða hefur ekki hald­ist í við fjölgun full­orð­inna hér á landi síð­ustu árin. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi full­bú­inna íbúða hefur fækkað á hvern full­orð­inn ein­stak­ling á síð­ustu árum og er hann nú 8 pró­sentum minni en hann var fyrir 14 árum síðan. Þetta kemur fram þegar tölur úr fast­eigna­gátt Þjóð­skrár eru bornar saman við mann­fjölda­tölur Hagstofu.

Líkt og sjá má á mynd hér að neðan voru rúm­lega 59 íbúðir á hverja 100 íbúa sem voru eldri en 20 ára árið 2007. Ef frá er talin fjölgun á milli áranna 2009 og 2010 hefur þeim fækkað stöðugt síðan þá. Nú eru til tæp­lega 55 íbúðir á hverja 100 full­orðna, en það er um 8 pró­sentum minna en á árunum fyrir hrun.

Skortur ólíklegur að mati Landsbankans

Samkvæmt Hagspá Lands­bank­ans, sem kom út á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku, hefur fjöldi íbúða á hvern íbúa fjölgað tölu­vert hér á landi, sam­hliða mik­illi aukn­ingu nýbygg­inga á síð­ustu árum. Þetta hlut­fall er nú svipað því sem var árin 2008 og 2016, en nokkuð hærra á tíma­bil­inu 2017-2019.

Hagdeild Lands­bank­ans bætir við að hægt hafi nú á mann­fjölgun vegna minni fjölg­unar aðfluttra umfram brott­fluttra til lands­ins og telur því að ólík­legt sé að skortur ríki á hús­næði um þessar mundir.

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um hefur fjöldi ófull­bú­inna íbúða dreg­ist saman, en hann var fjórð­ungi minni í síð­ustu viku miðað við þar­síð­ustu ára­mót.

Þessi þróun er í sam­ræmi við álykt­anir í nýlegri skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um stöðu og þróun mála á íbúða­mark­aði í ár. Þar var búist við miklum sam­drætti á bygg­ing­ar­mark­aði, en sam­kvæmt stofn­un­inni er hætt við að fram­boð nýrra eigna drag­ist saman á næstu árum vegna þess. Verði þessi sam­dráttur við­var­andi býst HMS við að óupp­fyllt íbúða­þörf muni aukast á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár