Ókláruðum íbúðum fækkar ört

Fjöldi ófull­bú­inna íbúða í síð­ustu viku var fjórð­ungi minni en á sama tíma árið á undan. Síðustu mæl­ingar sýna að þeim hefur fækkað enn frekar frá ára­mót­unum, en búist er við frek­ari sam­drætti á næst­unni.

Í síð­ustu viku voru rétt rúm­lega 4 þús­und ófull­búnar íbúðir á Íslandi og hefur þeim fækkað um 1.700 frá byrjun síð­asta árs. Leita þarf aftur til ára­mót­anna 2016 og 2017 til að finna jafn­lít­inn fjölda ófull­bú­inna íbúða, en á síð­ustu fjórum árum hefur þeim fjölgað í takt við aukna virkni á bygg­ing­ar­mark­aði. Þetta kemur fram í nýrri fast­eigna­gátt þjóð­skrár, þar sem nálg­ast má tölur um fjölda full­bú­inna og ófull­bú­inna íbúða.

Mikil fjölgun síðustu árin

Frá árinu 2006 hefur full­búnum íbúðum að með­al­tali fjölgað um 1.700 á hverju ári. Á síð­ustu fjórum árum hefur fjölg­unin þó verið nokkuð yfir þessu með­al­tali og var hún mest á síð­asta ári, þegar full­búnum íbúðum fjölg­aði um tæp­lega 3.400 tals­ins.

Á sama tíma hefur fjöldi ófull­bú­inna íbúða einnig fjölgað, úr 3.900 í lok árs 2016 í 5.800 árið 2019. Þetta var mesti fjöldi ófull­bú­inna íbúða sem mælst hafði í lok árs frá því í fjár­málakrepp­unni árið 2009, en þá voru 6.500 íbúðir ókláraðar á land­inu. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan.

Búast við minnkandi framboði

Samkvæmt tölum Hagstofu tæp­lega tvö­fald­að­ist íbúða­fjár­fest­ing á þessu tíma­bili, þótt tekið sé til­lit til verð­bólgu. í fyrra lækk­aði hún svo örlítið aftur. Samkvæmt fast­eigna­gátt­inni stór­fækk­aði einnig ófull­búnum íbúðum í fyrra, en þær voru fjórð­ungi færri við síð­ustu ára­mót heldur en í byrjun árs 2020. Þessum íbúðum hefur svo haldið áfram að fækka það sem af er ári, en í þess­ari viku voru þær um 300 færri en þær voru í byrjun árs.

Þessi þróun er í sam­ræmi við álykt­anir í nýlegri skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um stöðu og þróun mála á íbúða­mark­aði í ár. Þar var búist við miklum sam­drætti á bygg­ing­ar­mark­aði, en sam­kvæmt stofn­un­inni er hætt við að fram­boð nýrra eigna drag­ist saman á næstu árum vegna þess. Verði þessi sam­dráttur við­var­andi býst HMS við að óupp­fyllt íbúða­þörf muni aukast á næst­unni.

Gögn fast­eigna­gátt­ar­innar eru einnig í sam­ræmi við síð­ustu íbúða­taln­ingu Samtaka iðn­að­ar­ins (SI) í sept­em­ber í fyrra. Í þeirri taln­ingu sást að mik­ill sam­dráttur var á óupp­fylltum íbúðum, sér í lagi á íbúðum á fyrstu bygg­ing­ar­stigum. Samtökin bjugg­ust þá við að full­búnum íbúðum muni fækka í ár og á næsta ári.

Árin eftir hrun víti til varnaðar

HMS varar við miklum sam­drætti í bygg­ing­ar­iðn­aði í skýrslu sinni, í ljósi þess hve langan tíma það gæti tekið fyrir bygg­ing­ar­iðn­að­inn að ná upp fullum afköstum aftur og skila nýjum íbúðum á mark­að­inn.

Samkvæmt stofn­un­inni var iðn­að­ur­inn lengi að ná aftur vopnum sínum í kjöl­far fjár­mála­hruns­ins árið 2008. Eftir margra ára van­fjár­fest­ingu mynd­að­ist svo íbúða­skortur sam­hliða skörpum verð­hækk­unum þegar eft­ir­spurn eftir þeim tók að aukast aftur vegna komu fleiri ferða­manna til lands­ins. Í því umhverfi versnuðu mögu­leikar heim­ila til að verða sér úti um hús­næði á fast­eigna- og leigu­mark­aði, sam­kvæmt skýrslu HMS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár