„Óviðunandi tap“ HB Granda

For­stjór­inn segir sterkt gengi krón­unnar og hækk­andi kostnað ráða miklu um ekki nægi­lega góða afkomu.

Tap HB Granda, næst stærsta útgerð­ar­fé­lags lands­ins á eftir Samherja, nam 252 þús­und evrum á öðrum árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt árs­hluta­upp­gjöri HB Granda, sem til­kynnt var um í gær. 

Tapið er um 30 millj­ónir króna, en Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri og stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, segir afkom­un­andi „óvið­un­andi“.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands segir Guð­mundur að það hafi einnig slæm áhrif á afkom­una að veiði­gjöldin skuli miðuð við afkomu í grein­inni árið 2015. „Skýr­ing­ar eru m.a. hátt gengi ís­lensku krón­unn­ar sem dró úr arð­semi fisk­vinnsl­unn­ar. Þá taka veiði­gjöld ekki til­lit til arð­semi af veiðum ein­stakra fisk­teg­unda, því grunn­ur veiði­gjalds­ins er af­koma grein­ar­inn­ar árið 2015,“ segir í Guð­mundur í til­kynn­ingu. „Veiðar má auka með aukn­um veiði­heim­ild­um og arð­sem­ina má bæta með breyt­ing­um á skip­um og flota. Verið er að skoða fjár­fest­ing­ar í vinnslu og tækni­bún­aði sem ættu að hafa já­kvæð áhrif á rekst­ur­inn þegar fram í sæk­ir,“ seg­ir Guð­mundur, og nefn­ir einnig að í at­hug­un sé að auka sam­starf á sviði mark­aðs- og sölu­mála og jafn­vel fjár­festa í er­lend­um sölu­fé­lög­um.

HB Grandi er eina útgerð­ar­fé­lagið á Íslandi sem skráð er á markað aðal­l­ista kaup­hall­ar­innar en mark­aðsvirði félags­ins nemur nú tæp­lega 60 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár