Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sá þingmaður sem flaug mest innanlands árið 2020

Kostn­aður vegna inn­an­lands­flugs þing­manna dróst saman um þriðj­ung á árinu 2020. Einungis þrír þing­menn flugu fyrir meira en milljón króna. Einn þing­maður var með annan kostnað en laun og fastan kostnað upp á 347 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna flug­ferða þing­manna inn­an­lands á síð­asta ári var 9,5 millj­ónir króna. Hann dróst saman um næstum þriðj­ung frá árinu 2019 þegar flug­kostn­að­ur­inn var rúm­lega 14 millj­ónir króna. Þetta má lesa út úr tölum um greiðslur til þing­manna á síð­asta ári, en þær voru upp­færðar í lok síð­ustu viku.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur án efa spilað stóra rullu í því að þing­menn flugu minna inn­an­lands en áður enda að mestu um að ræða ferðir lands­byggð­ar­þing­manna til og frá heima­högum sínum. Far­ald­ur­inn hefur enda tak­markað störf þing­manna eins og ann­arra lands­manna og til að mynda gert það að verkum að flestir nefnd­ar­fundir hafa farið fram í gegnum fjar­fund­ar­búnað.

Bjarkey flaug mest

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, er sá þing­maður sem safn­aði upp mestum kostn­aði vegna inn­an­lands­flugs á síð­asta ári, eða um 1,5 millj­ónum króna. Næst á eftir henni kemur Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, með 1,3 millj­ónir króna og í þriðja sæti var Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, með tæp­lega 1,1 milljón króna. Þessi þrjú, sem öll eru þing­menn Norð­aust­ur­kjör­dæmis, eru einu þing­menn­irnir sem flugu inn­an­lands fyrir meira en eina milljón króna á síð­asta ári.

[adspot]Árið 2019 flugu sjö þing­menn fyrir meira en eina milljón króna. Þá var Albertína Frið­björt Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, efst á blaði með tæp­lega 1,8 milljón króna kostnað. Flug­kostn­aður hennar helm­ing­að­ist hins vegar á milli ára. Bjarkey var í öðru sæti árið 2019 með kostnað upp á tæp­lega 1,7 millj­ónir króna og Líneik var í því þriðja með rúm­lega 1,6 millj­ónir króna. Eini þing­mað­ur­inn sem flaug fyrir meira en eina milljón króna árið 2019 og er ekki þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis var Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Flug­kostn­aður hennar helm­ing­að­ist hins vegar milli áranna 2019 og 2020.

Aksturskostnaður dróst saman um fimmtung

Kjarninn greindi frá því um helg­ina að akst­urs­kostn­aður þing­manna hafi líka dreg­ist tölu­vert saman á síð­asta ári. Samtals keyrðu þing­menn lands­ins fyrir 23,9 millj­ónir króna í fyrra. Árið 2019 kost­aði akstur þeirra sem greiddur var úr sam­eig­in­legum sjóðum 30,2 millj­ónir króna. Kostn­að­ur­inn var mjög svip­aður árið 2018, eða 30,7 millj­ónir króna, og árið 2017, þegar hann var 29,2 millj­ónir króna. Hann dróst því saman um rúm­lega 20 pró­sent á árinu 2020 miðað við árið áður.

Líklegt verður að telj­ast að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, sem hefur leitt af sér umfangs­miklar sam­komu­tak­mark­anir og kröfur um ýmis konar sótt­varna­ráð­staf­anir þegar fólk hitt­ist, skipti þar miklu á sama hátt og þegar kemur að flug­kostn­aði. Auk fjölg­unar fjar­funda hafa þing­menn ekki getað hitt vænt­an­lega kjós­endur á sama hátt og áður.

Bjarkey með mestan sameiginlegan kostnað

Sá þing­maður sem var með mestan akst­urs­kostnað í fyrra var Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, sem leitt hefur lista yfir akst­urs­kostnað á und­an­förnum árum. Frá því að Ásmundur sett­ist á þing 2013 hefur akst­urs­kostn­aður hans verið 31,4 millj­ónir króna.

Upp­runa­lega var greint frá því að Guðjón S. Brjáns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, hefði verið í fyrsta sæti. Það reynd­ist ekki rétt, mis­tök voru gerð á fjár­mála­skrif­stofu Alþingis sem leiddu til þess að kostn­aður vegna akst­urs Guðjóns á árunum 2018 og 2019 var gjald­færður í fyrra.

Í þriðja sæti á list­anum yfir þá þing­menn sem keyrðu mest var svo Bjarkey, sem keyrði fyrir rúm­lega 1,8 millj­ónir króna á síð­asta ári. Hún er eini þing­mað­ur­inn sem kemst í efstu sætin yfir bæði þá þing­menn sem flugu og keyrðu mikið. Sam­an­lagður akst­urs- og flug­kostn­aður hennar sem greiddur var úr rík­is­sjóði var á síð­asta ári var 3.329 þús­und krónur, eða fyrir 227 þús­und krónur á mán­uði.

[links]Vert er að taka fram að í þessum tölum, um flug- og akst­urs­kostnað, er ekki fastur ferða­kostn­aður í kjör­dæmi. Hann var 360 þús­und krónur í fyrra.

Bjarkey er líka sá þing­maður sem er í efsta sæti yfir allan annan kostnað en launa­greiðslur og fastar kostn­að­ar­greiðslur sem Alþingi greiðir til þing­manna. Alls nam annar kostn­aður hennar 4.160 þús­und krónur í fyrra. Auk flug- og akst­urs­kostn­aðar er þar um að ræða starfs­kostn­aður, ferða­kostnað utan­lands, síma og net­kostnað og gisti- og fæð­is­kostnað inn­an­lands.

Það þýðir að annar kostn­aður Bjarkeyjar, fyrir utan laun og fastar kostn­að­ar­greiðslur, var 346.683 krónur á mán­uði að með­al­tali í fyrra, eða rúmri einni milljón meira en annar kostn­aður flokksystur hennar, Lilju Raf­n­eyjar Magn­ús­dóttur, sem var 3,1 millj­ónir króna. Guðjón S. Brjáns­son og Ásmundur Frið­riks­son voru svo saman með annan kostnað upp á um 2,9 milj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár