Þorsteinn Már sest aftur í forstjórastólinn hjá Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur ákveðið að setj­ast aftur í for­stjóra­stól­inn hjá Samherja og starfar þar við hlið Björg­ólfs Jóhanns­sonar þar til annað verður ákveðið.

Stjórn Samherja ákvað í dag að Þor­steinn Már Bald­vins­son snúi aftur til starfa og verði for­stjóri við hlið Björg­ólfs Jóhanns­sonar sem gegnir for­stjóra­starfi sínu áfram þar til annað verður ákveðið.

Í til­kynn­ingu á vef Samherja segir Eiríkur S. Jóhanns­son, stjórn­ar­for­maður Samherja, að Þor­steinn Már fái það verk­efni að leiða aðgerðir Samherja vegna þeirra fáheyrðu aðstæðna sem eru uppi vegna útbreiðslu COVID-19. „Stjórn Samherja telur að sterk for­ysta með ítar­lega þekk­ingu á mannauði, veiðum, vinnslu, sölu, flutn­ingum og öllum öðrum rekstri sam­stæð­unnar muni skipta sköpum í þeim aðgerðum sem ráð­ast þarf í. Þor­steinn Már hefur áður stýrt Samherja í gegnum íslenska banka­hrunið og alþjóð­legu fjár­málakrepp­una með fram­úr­skar­andi árangri. Stjórn Samherja telur því að eng­inn sé betur í stakk búinn að takast á við núver­andi aðstæður.“

Þor­steinn Már er einn helsti eig­andi Sam­herja ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dóttur og frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni. Stjórn Sam­herja situr í umboði eig­end­anna.

Steig til hliðar eftir umfjöllum um meint brot tengd Namibíustarfsemi

Björgólfur tók við for­stjóra­starf­inu tíma­bundið eftir að Þor­steinn Már ákvað að stíga til hliðar í nóv­em­ber. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Kveik­­ur, Stund­in, Wik­i­­leaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu. Í umfjöll­un­inni steig fram upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Sam­herja í Namib­íu, sem sagði að öll ætluð mútu­brot Sam­herja í land­inu hefði verið fram­kvæmd með vit­und og vilja for­stjór­ans, Þor­steins Más.

[adspot]Sam­herji réð norsku lög­manns­stof­una Wik­borg Rein til að fram­kvæma á við­skipta­háttum sín­um eftir að upp um þá komst. Auk rann­sóknar Wik­borg Rein á málum Sam­herja eru yfir­­­völd í Namib­­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­­a­­máls­ins, meðal ann­­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­­is­­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn á mál­inu hér­lendis enn sem komið er og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur hún verið í fullum gangi und­an­farna mán­uð­i.

Í til­kynn­ingu Samherja í dag segir að rann­sókn á starf­sem­inni í Namibíu muni halda áfram óháð breyt­ingum á yfir­stjórn sam­stæð­unnar. „Wikborg Rein mun áfram heyra beint undir stjórn Samherja og Björgólfur Jóhanns­son mun áfram veita lög­manns­stof­unni allar þær upp­lýs­ingar og þá aðstoð sem hún þarf. Þótt reikna megi með töfum á rann­sókn­inni vegna þeirrar fáheyrðu stöðu sem er uppi er enn stefnt að því að ljúka henni í vor. Verða nið­ur­stöð­urnar kynntar fyrir stjórn Samherja og þar til bærum stjórn­völdum strax í kjöl­farið.“

Auk rann­sóknar Wik­borg Rein á málum Sam­herja eru yfir­­­völd í Namib­­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­­a­­máls­ins, meðal ann­­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­­is­­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn á mál­inu hér­lendis enn sem komið er og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur hún verið í fullum gangi und­an­farna mán­uð­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár