Langfæstir ánægðir með Kristján Þór

Mest ánægja er með störf Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra en minnst með störf sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lang­minnst er ánægjan með störf Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, að því er fram kemur í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Mest ánægja er með störf for­sæt­is­ráð­herr­ans, Katrínar Jak­obs­dóttur.

Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í henni segir að rúm­lega 59 pró­sent séu ánægð með störf for­sæt­is­ráð­herra og 54 pró­sent með störf Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra en Lilja er einnig sá ráð­herra sem minnst óánægja er með.

Á eftir þeim koma Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ferða-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra – en 46 pró­sent segj­ast ánægð með þeirra störf. Þá eru 43 pró­sent ánægð með störf Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og 39 pró­sent segj­ast ánægð með Sigurð Inga Jóhanns­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. 37 pró­sent lýsa ánægju með Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

Samkvæmt RÚV koma þar á eftir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sem 35 pró­sent eru ánægð með og jafn mikil ánægja ríkir með störf Ásmundar Einars Daða­sonar félags- og barna­mála­ráð­herra og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herrra, en rúm­lega 10 pró­sent eru ánægð með störf Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra.

Þegar litið er á það hvernig óánægja með ráð­herrana mælist kemur í ljós að lang­flestir eru óánægðir með Kristján Þór eða 62 pró­sent. 35 pró­sent eru óánægð með Áslaugu Örnu og Bjarna Bene­dikts­son. 31 pró­sent er óánægt með störf Guð­mundar Inga umhverf­is­ráð­herra og 28 pró­sent með Guðlaug Þór utan­rík­is­ráð­herra. Þá eru 27 pró­sent óánægð með störf Ásmundar Einars og 26 pró­sent með þau Svandísi Svav­ars­dóttur og Sigurð Inga Jóhanns­son.

Þá kemur fram í frétt RÚV að þeir þrír ráð­herrar sem mest ánægja er með séu líka þeir sem minnst óánægja er með. 21 pró­sent er óánægt með for­sæt­is­ráð­herra, 18 pró­sent með ferða­mála­ráð­herra og 17 pró­sent eru óánægð með mennta­mála­ráð­herra.

Könnunin var net­könnun, gerð dag­ana 8.-19. maí og var spurt hversu ánægður eða óánægður við­kom­andi væri með til­tek­inn ráð­herra og var mis­jafnt í hvaða röð nöfn þeirra birt­ust. Heild­ar­úr­taks­stærð var 3.075 manns og þátt­töku­hlut­fall lið­lega 55,2 pró­sent. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár