„Mig langar að halda áfram“

Guð­mundur Andri Thorsson ætlar að bjóða fram krafta sína fyrir Sam­fylk­ing­una fyrir næstu kosn­ingar.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir Suð­vest­ur­kjör­dæmi, seg­ist langa að halda áfram þing­mennsku. „Mér fynd­ist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þing­sætum okkar og gera jafn­að­ar­menn aftur að því afli í kjör­dæm­inu sem vera ber.“

Frá þessu greinir þing­mað­ur­inn í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag. Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar greindi frá því í gær að hún sæk­tist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um.

Guð­mundur Andri rekur atburða­rás­ina þegar hann var beð­inn um að leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í þing­kosn­ing­unum 2017. Þá hafi staðan verið þannig að Sam­fylk­ingin átti engan þing­mann í kjör­dæm­inu. „Með sam­stilltu átaki hjá góðri áhöfn í skemmti­legri kosn­inga­bar­áttu tókst okkur að end­ur­heimta þing­sætið – og mun­aði grát­lega litlu að Margrét Tryggva­dóttir næði að kom­ast inn líka.

Síðan hafa árin þotið áfram, hver dagur boðið upp á fjöl­breytt og krefj­andi verk­efni og ég hef smám saman náð tökum á þessu starfi. Það er mikil veg­semd að vera þing­maður, að vera trúað fyrir því að sitja á lög­gjaf­ar­sam­kom­unni og starfa þar við laga­setn­ingu og mál­flutn­ing í anda og umboði þús­unda fólks sem aðhyllist sömu lífs­við­horf og maður sjálfur. Ég tel að jafn­að­ar­stefnan sé mik­il­væg­ari en nokkru sinni því að hún ein hefur úrræði til að vinna gegn vax­andi mis­skipt­ingu og lotu­græðgi kap­títal­ism­ans um leið og gagn­kvæmt umburð­ar­lyndi og virð­ing fyrir ein­stak­ling­unum og vali þeirra er inn­byggð í þessa stefnu,“ skrifar hann.

[adspot]

Mun una niðurstöðu uppstillingarnefndar

[links]Guð­mundur Andri segir að honum finn­ist hann hafa erindi í póli­tík og í þing­flokki jafn­að­ar­manna. „Fyrir utan það að vera tals­maður hug­sjóna og stefnu­mála lít ég á það sem hlut­verk mitt að stuðla að sáttum og góðu and­rúms­lofti og held að ég hafi lagt mitt af mörkum til þess að þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur verið á þessu kjör­tíma­bili býsna öfl­ugur og mál­efna­legur. Og mig langar að halda áfram. Mér fynd­ist gaman að vera með í því liði sem myndi fjölga þing­sætum okkar og gera jafn­að­ar­menn aftur að því afli í kjör­dæm­inu sem vera ber.

Þessu ræður upp­still­ing­ar­nefndin. Hún er skipuð val­in­kunnu og góðu fólki úr kjör­dæm­inu og ég veit að þau kom­ast að góðri nið­ur­stöðu fyrir kjör­dæmið og flokk­inn. Og hvernig sem nið­ur­staðan verður mun ég una henni og halda áfram að leggja mitt af mörkum,“ skrifar þing­mað­ur­inn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár