Rósa Björk sækist eftir oddvitasæti í Suðvesturkjördæmi

Nýjasti þing­maður Sam­fylk­ingar sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem Guð­mundur Andri Thorsson leiddi í kosn­ing­unum árið 2017. Rósa Björk fer því ekki fram í Reykja­vík, þrátt fyrir að hafa tekið þátt í skoð­ana­könnun þar.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir sækist eftir efsta sæti hjá Samfylkingunni í Suðvesturkjördæmi.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir sæk­ist eftir efsta sæti hjá Sam­fylk­ing­unni í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Frá þessu greinir hún í til­kynn­ingu.

Hún er núver­andi þing­maður kjör­dæm­is­ins og leiddi lista Vinstri grænna þar í kosn­ing­unum árið 2017. Rósa Björk sagði sig úr VG í sept­em­ber á síð­asta ári og var utan flokka í nokkra mán­uði áður en hún gekk til liðs við þing­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar um miðjan des­em­ber.

„Ég hef fulla trú á að stefna og sýn Sam­fylk­ing­ar­innar eigi mik­inn hljóm­grunn hjá kjós­endum í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem og ann­ars staðar og mun ég leggja mig alla fram um að vinna vel í þágu þeirra, nú sem áður. Ég hlakka til að takast á við krefj­andi en spenn­andi verk­efni á næsta kjör­tíma­bili,“ segir Rósa Björk í til­kynn­ingu.

Fer ekki fram í Reykjavík

Þing­mað­ur­inn tók þátt í umtal­aðri leyni­legri skoð­ana­könnun Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík nýlega. Samkvæmt nið­ur­stöðum þeirrar könn­unar, sem sagt var frá að hluta í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku, var hún á meðal þeirra fimm ein­stak­linga sem flestir þátt­tak­endur vildu sjá skipa efstu sæti lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur.

[adspot]

Nú er hins vegar ljóst að hún mun ekki fara fram í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna, heldur sækj­ast eftir efsta sæt­inu á lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins.

Guð­mundur Andri Thorsson þing­maður leiddi lista Sam­fylk­ing­ar­innar þar í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum. Sam­fylk­ingin fékk ein­ungis einn þing­mann kjör­inn í kjör­dæm­inu og 12,15 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár