Alls 306 atvinnuhúsnæði nýtt sem mannabústaðir á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldi atvinnu­hús­næðis sem nýtt er sem íbúð­ar­hús­næði án leyfis er nán­ast sá sami í dag og hann var fyrir þremur árum. Áætlað er að um fjögur þús­und manns búi í atvinnu­hús­næði í Reykja­vík og nágrenni.

Talið er að alls séu 306 atvinnu­hús­næði nýtt undir óleyf­is­bú­setu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu. Þar af eru flest í Reykja­vík, eða 130.

Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hefur tekið saman fyrir Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) og Kjarninn hefur fengið.

Samkvæmt svari sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, veitti við skrif­legri fyr­ir­spurn á Alþingi í upp­hafi júní­mán­aðar er áætlað að um fjögur þús­und manns hafi búið í atvinnu­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt nýlegri end­ur­skoðun á tölum sem safnað var í vett­vangskönnun árið 2017. Í þeirri könnun var áætlað að 312 atvinnu­hús­næði væru nýtt undir óleyf­is­bú­setu. Fjölgun á slíkri nýt­ingu á atvinnu­hús­næði var 84 pró­sent frá árinu 2008. Áætlað var að 3.646 manns byggju í slíku hús­næði árið 2017, þar af 860 börn.

[adspot]Ljóst er á þessum tölum að lítil sem engin breyt­ing hefur átt sér stað á fjölda þess atvinnu­hús­næðis sem notað er sem manna­bú­staður á síð­ustu þremur árum.

Kastljós eftir bruna

Óboð­legar hús­næð­is­að­stæður fjölda manns á Íslandi, sem búa annað hvort í atvinnu­hús­næði sem er ekki ætlað til búsetu eða í íbúð­ar­húsum sem upp­fylla ekki skil­yrði sem gerð eru til slíks, hafa verið mikið í umræð­unni síð­ustu daga eftir að elds­voði á Bræðra­borg­ar­stíg 1 leiddi til þess að þrír íbúar í hús­inu lét­ust.

Grunur leikur á að bruna­vörnum í hús­inu, þar sem leigð voru út 18 her­bergi og ein tveggja her­bergja íbúð að mestu til erlends verka­fólks, hafi verið ábóta­vant en í alls voru 73 ein­stak­lingar skráðir með lög­heim­ili þar.

Athuga­semdir voru gerðar við bág­borið ástand húss­ins í kjöl­far umfjöll­unar Stund­ar­innar um það í des­em­ber 2015. Samkvæmt frétt RÚV frá því í upp­hafi viku var þeim athuga­semdum ekki svarað og þeim ekki fylgt eftir.

Þess í stað höfðu eig­endur húss­ins óskað eftir því að fá að breyta fyrstu hæð Bræðra­borg­ar­stígs 1, sem er skráð sem leik­skóli og þar af leið­andi atvinnu­hús­næði. í litlar íbúðir og gisti­heim­ili. Sú umsókn hafði ekki verið afgreidd hjá Reykja­vík­ur­borg þegar húsið brann, og fólkið lést.

Farið í átak og störfum fjölgað á Sauðárkróki

Ásmundur Einar fól HMS í lok maí­mán­uðar síð­ast­lið­ins að fara í sér­stakt átak á sviði bruna­mála. Í átak­inu fel­ast ýmsar aðgerðir. Ein þeirra felur í sér að fjölga starfs­mönnum sem sinna bruna­vörnum. Sú fjölgun verður öll á starfs­stöð HMS á Sauð­ár­króki, þar sem bruna­varna­eft­ir­lit stofn­un­ar­innar verður stað­sett, þar sem átta ný störf verða til.

Í kjöl­far brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg fund­aði HMS með með slökkvi­liðs­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Jóni Viðari Matth­í­assyni og Nikulási Úlfari Mássyni, bygg­ing­ar­full­trúa í Reykja­vík þar sem farið var yfir stöðu bruna­eft­ir­lits og bruna­varna.

[links]Í til­kynn­ingu sem send var út í kjöl­far þess fundar sagði meðal ann­ars: „Sam­hljómur var á fund­inum um mik­il­vægi bruna­varna og að fullt til­efni sé til að vinna saman að frek­ari úrbótum á reglu­verki og verk­lagi. Þá var rætt að fyr­ir­huguð skrán­ing leigu­samn­inga væri mik­il­vægt skref og sam­keyrsla leigu­skrár við lög­heim­il­is­skrán­ingar. Einnig voru ræddar auknar heim­ildir til slökkvi­liða og bygg­inga­full­trúa við eft­ir­lit og aukið sam­starf við trygg­inga­fé­lög. Þá kom fram að nýta mætti árangur í öðrum mála­flokkum líkt og umferð­ar­ör­yggi þar sem gengið hefur vel að draga úr alvar­legum slysum með sam­stilltu átaki. Einnig var rætt að leggja þyrfti áherslu á að bygg­ingar­ör­ygg­is­gjaldið sem inn­heimt er af rík­inu skili sér til bruna­varna.“

Næstu skref í kjöl­far fund­ar­ins yrðu að hefja vinn­una og fá fleiri aðila að borð­inu til að ræða úrbætur. Sér­stak­lega yrði horft til Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og félags­mála­ráðu­neyt­is­ins en Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra lýsti því yfir á þriðju­dag að hann vilji skoða laga­breyt­ingar til að efla bruna­eft­ir­lit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár