ASÍ kallar eftir ítarlegri rannsókn á aðdraganda og orsökum brunans á Bræðraborgarstíg

Vitað er um fleiri til­felli þar sem grunur leikur á að fjöldi fólks haf­ist við í óvið­un­andi hús­næði, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu ASÍ.

Alþýðu­sam­band Íslands kallar eftir ítar­legri rann­sókn á aðdrag­anda og orsökum brun­ans á Bræðra­borg­ar­stíg sem átti sér stað í gær. Samkvæmt fréttum eru 73 ein­stak­lingar með skráð lög­heim­ili í hús­inu og langstærstur hluti þeirra er erlent fólk. Það leiðir líkum að því að um sé að ræða erlent verka­fólk sem atvinnu­rek­and­inn hefur útvegað hús­næði.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu ASÍ vegna brun­ans en stað­fest hefur verið að þrír ein­stak­lingar hafi látið lífið í brun­anum á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og tveir eru nú á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. „Aðstand­endum lát­inna eru vott­aðar djúpar sam­úð­ar­kveðjur,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá segir að verka­lýðs­hreyf­ingin hafi um langt skeið kallað eftir sam­hæfðum aðgerðum stjórn­valda til að tryggja aðbúnað erlends verka­fólks á Íslandi, sporna gegn man­sali og koma í veg fyrir félags­leg und­ir­boð. Enn skorti á að staðið sé við fyr­ir­heit Lífs­kjara­samn­ing­anna þar að lút­andi. Sér­stak­lega hafi verka­lýðs­hreyf­ingin farið fram með kröfur til að tryggja aðbúnað verka­fólks sem dvelur í hús­næði á vegum atvinnu­rek­anda og að atvinnu­rek­endur séu kall­aðir til ábyrgðar ef hús­næði er óvið­un­andi. Vitað sé um fleiri til­felli þar sem grunur leikur á að fjöldi fólks haf­ist við í óvið­un­andi hús­næði.

„Hugur okkar er nú fyrst og fremst hjá því fólki sem var í hús­inu þegar eld­ur­inn braust út og aðstand­endum þess. Við köllum eftir því að málið sé rann­sakað af fullum þunga. Enn er óljóst á hvers vegum fólkið dvaldi í hús­inu og hvers vegna svo margt fólk var þar með skráð lög­heim­ili. Við vitum að ítrekað hefur verið kallað eftir að þetta hús­næði – og annað sam­bæri­legt – væri tekið til skoð­unar vegna ástands þess. Bruninn á Bræðra­borg­ar­stíg kallar á ítar­lega og fum­lausa rann­sókn og það er krafa ASÍ að þar sé hverjum ein­asta steini velt við. Svona má aldrei ger­ast aftur,“ segir Drífa Snædal, for­seti ASÍ, í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár