Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Breytir breytingum
Breytir breyt­ingum Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst leggja til hærri fasta nið­ur­greiðslu á hvern flug­legg en upp­haf­lega stóð til. Mynd: Víkingur

Þóroddur Bjarna­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, gagn­rýnir for­sendur fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á Loft­brúnni og kallar eftir mati á árangri verk­efn­is­ins áður en fyr­ir­komu­lagi þess verði breytt. Aðgreina þurfi ákvörðun um umfang stuðn­ings­ins frá spurn­ing­unni um hvernig honum sé best varið.

„Það kemur sér sér­stak­lega illa nú þegar til stendur að gera rót­tækar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi Loft­brú­ar­innar á grund­velli hálf­gerðra ágisk­ana um kosti og galla núver­andi fyr­ir­komu­lags,“ skrifar Þóroddur í pistli á vef­síðu sinni, Lands­byggðalatté.

Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra kynnti á föstu­dag breyt­ingu sem átti að taka gildi um ára­mót. Í stað þess að greiða niður 40 pró­sent far­gjalds á hverjum flug­legg yrði stuðn­ing­ur­inn föst fjár­hæð, 7.000 krónur. Loft­brúin veitir íbúum til­tek­inna land­svæða rétt á sex nið­ur­greiddum flug­leggjum inn­an­lands á ári.

Breyt­ingin hefur mælst illa fyrir á lands­byggð­inni og sætt harðri gagn­rýni íbúa og sveit­ar­stjórn­ar­fólks. Efa­semdir eru einnig bæði innan þing­flokks Við­reisnar og þing­flokks Flokks fólks­ins.

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár