Viðreisn, Samfylking og Framsókn hnífjöfn

Þingflokk Pírata skipa þrír í dag. Þingflokkurinn verður hins vegar mun stærri eftir kosningar í haust ef fer sem horfir.
Þing­flokk Pírata skipa þrír í dag. Þing­flokk­ur­inn verður hins vegar mun stærri eftir kosn­ingar í haust ef fer sem horfir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar mæl­ast með mest fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni og njóta stuðn­ings 26,9 pró­sent kjós­enda. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er mælist með 23,8 pró­sent fylgi. Píra­ta­flokk­ur­inn hefur nú mælst stærstur í öllum kosn­inga­spám í rúman mánuð, eða síðan fylgi við Sjálf­stæð­is­menn tók að falla á ný í byrjun júní.

Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð mundi fá 15,6 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Það er örlítið minna en þegar kosn­inga­spáin var gerð síð­ast 7. júlí; fylgi við flokk­inn minnkar um heilt pró­sentu­stig. Fylgi við Vinstri græn minnkar þannig mest allra fram­boð­anna sem hyggj­ast bjóða fram í alþing­is­kosn­ing­unum sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust.

Kosn­inga­spáin sýnir fylgið við Viðreisn, Sam­fylk­ing­una og Fram­sókn­ar­flokk­inn hnífjafnt. Viðreisn og Sam­fylk­ingin mæl­ast með 8,9 pró­sent fylgi hvort um sig og Fram­sókn­ar­flokkur með 8,7 pró­sent. Ekki er mark­tækur munur á fylgi þess­ara fram­boða, eins og gefur að skilja.

[adspot]

Björt fram­tíð og önnur fram­boð mundu öll fá minna en fjögur pró­sent fylgi á lands­vísu ef gengið yrði til kosn­inga nú. Björt fram­tíð mælist með 3,7 pró­sent fylgi og önnur fram­boð myndu fá sam­an­lagt 3,5 pró­sent. Gera má ráð fyrir að fram­boð þurfi um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu í kosn­ingum til þess að ná kjöri. Ekki er enn farið að mæla stuðn­ing við fram­boð til Alþingis eftir kjör­dæmum fyrir fyr­ir­hug­aðar kosn­ingar í haust.

Nýjustu vendingar ekki með

Kosn­inga­spáin tekur ekki til­lit til nýj­ustu vend­inga í stjórn­mál­unum enda var nýjasta könn­unin sem keyrð var í spálíkanið var gerð á dög­unum 15. til 22. júlí síð­ast­lið­inn. Í gær, 25. júlí, til­kynnti Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, svo end­ur­komu sína í stjórn­málin.

Í dag, 26. júlí, lýstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir Píratar, Vinstri græn og Sam­fylk­ingin því yfir að þeir sjái sér ekki fært að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn eftir kosn­ingar, ef sú staða kemur upp. Þær Birgitta Jóns­dóttir, Katrín Jak­obs­dóttir og Oddný G. Harð­ar­dóttir gagn­rýndu einnig skrif Sig­mundar Davíðs. For­svars­menn Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar sögð­ust ekki geta úti­lokað hugs­an­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf við neinn flokk.

Þess má vænta að áhrif yfir­lýs­inga Sig­mundar og stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna muni hafa áhrif á fylgi fram­boð­anna þegar kosn­inga­spáin verður gerð næst. Áhuga­vert verður að sjá hvaða áhrif yfir­lýs­ing­arnar hafa á bæði fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins og hins vegar á fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og Viðreisn.

Muni næsta könnun á fylgi stjórn­mála­flokka sem verður birt taka til þess­ara tveggja daga gætu verið vís­bend­ingar um hvernig kjós­endur taka þessum vend­ingum. Að öllu óbreyttu munu breyt­ingar á fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í næstu kosn­inga­spá lýsa því hvernig almenn­ingur tekur end­ur­komu Sig­mundar Davíðs úr leyfi eftir Wintris-skandal­inn sem skók íslensk stjórn­mál í byrjun apríl. Sigmundi varð, eins og kunn­ugt er, ekki stætt í stóli for­sæt­is­ráð­herra eftir að málið kom upp.

Þá verður spenn­andi að fylgj­ast með því hvernig kjós­endur bregð­ast við yfir­lýs­ingum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og Við­reisnar. Þær yfir­lýs­ingar gætu hugs­an­lega hafa áhrif á fylgi bæði Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hinna flokk­anna.

Um nýjustu kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 25. júlí og er byggð á fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boð­anna sem hyggj­ast bjóða fram í kosn­ing­unum í haust. Nýustu tvær kann­an­irnar vega í þetta sinn ekki þyngst sökum stærðar könn­unar Gallup sem birt var 3. júlí. Áður en könnun er bætt við í kosn­inga­spána hlýtur hún vægi gagn­vart öðrum fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem byggir meðal ann­ars á lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda. Kann­an­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni 25. júlí eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR 15. júlí til 22. júlí (vægi 27,2%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 27. júní til 4. júlí (vægi 19,4%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. maí til 29. júní (vægi 33,8%)
  • Skoð­anak. Félags­vís­ind­ast. HÍ f. Morg­unbl. 19. til 22. júní (vægi 19,6%)

Kosn­­­­­inga­­­­­spálíkan Bald­­­­­urs Héð­ins­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­lýs­ing­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­inga­­­­­spá Bald­­­­­urs fyrir sveit­­­­­ar­­­­­stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­kosn­­­­­ing­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­inga­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­ur­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­leiki könn­un­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­inga­úr­slit­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár