Mynd: Bára Huld Beck

Uppgjör: Kannanir almennt nálægt úrslitunum og þessir náðu þingsæti

Kjarninn og Baldur Héð­ins­son gerðu allskyns spár í aðdrag­anda kosn­inga sem byggðu á nið­ur­stöðum þeirra skoð­ana­kann­ana sem fram­kvæmdar voru. Hér eru þessar spár gerðar upp.

Þjóð­ar­púls Gallup komst næst kosn­inga­úr­slit­unum, sam­kvæmt útreikn­ingum Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings sem vinnur kosn­inga­spár í sam­starfi við Kjarnann. Með­al­frá­vik Þjóð­ar­púls Gallup sem fram­kvæmdur var 20-24. sept­em­ber, og vigtaði 28,8 pró­sent inn í síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, var 1,3 pró­sent sam­kvæmt útreikn­ingum.

Baldur hefur reiknað með­al­frá­vik allra þeirra kann­ana sem voru hluti af loka­spá hans og Kjarnans fyrir nýliðnar kosn­ingar fyrir níu stærstu fram­boðin.

Næst á eftir Gallup kom MMR sem birti sínar nið­ur­stöður nú í sam­vinnu við Morg­un­blaðið og var gerð dag­anna 22-23. sept­em­ber, en með­al­frá­vik síð­ustu könn­unar sem fyr­ir­tækið gerði fyrir kosn­ing­arnar var 1,8 pró­sent frá kosn­inga­fylgi flokk­anna, miðað við útreikn­inga Baldurs og ofan­greindar for­sendur. Síðasta MMR-könn­unin vigtaði 18,3 pró­sent inn í loka­spá Kjarnans.

Kannanir almennt nálægt úrslitum

Skoð­ana­könnun Maskínu, sem var unnin í sam­starfi við fjöl­miðla Sýnar, mæld­ist með 2,1 pró­sent í með­al­frá­vik og Net­pan­ell Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar og Félags­vís­inda­stofn­unar mæld­ist með 2,3 pró­sent í með­al­frá­vik. Lestina rak svo Prósent, sem vann sínar kann­anir í sam­starfi við Frétta­blaðið, en með­al­frá­vik síð­ustu könn­unar þess fyr­ir­tækis var 3,2 pró­sent. Vert er þó að taka fram að síð­asta könnun Prósents var gerð dag­anna 17-21. sept­em­ber, eða fyrr en hinar lokakann­an­irnar.

Af þessu má sjá að kann­anir voru almennt nálægt kosn­inga­úr­slitum og mældu nokkuð skýrt hækkun á fylgi sem var að rísa síð­ustu dag­anna fyrir kosn­ingar, sér­stak­lega hjá Fram­sókn­ar­flokknum.

Í umfjöllun Gallup um nið­ur­stöður kann­ana kemur fram að mæl­ingar fyr­ir­tæk­is­ins sýni að stórt hlut­fall kjós­enda ákveði á kjör­dag hvað það kýs, eða 26-29 pró­sent. „Það er því ljóst að breyt­ingar geta orðið á við­horfi fólks frá því síð­asta könnun er gerð og þar til kosið er. Leiða má líkum að því að meiri breyt­ingar geti orðið á hug kjós­enda eftir því sem flokkar í fram­boði eru fleiri og liggja nær hver öðrum mál­efna­lega.“

Í úttekt Baldurs kemur fram að sömu könn­un­ar­að­ilar komust næst­kosn­inga­úr­slitum nú og í Alþing­is­kosn­ingum 2017. Þjóð­ar­púls Gallup er næst úrslitum kosn­inga, skoð­ana­könnun MMR fylgir í kjöl­farið. Fyrir fjórum árum var með­al­frá­vik síð­ustu könn­unar Gallup frá úrslit­inum 1,3 pró­sent og MMR 1,4 pró­sent.

Spár sem byggja á 100 þúsund sýndarkosningum

Kjarninn og Baldur fram­kvæmdu einnig þing­manna- og þing­sæta­spá í aðdrag­anda kosn­inga. Þær eru fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í síð­ustu gerðu kosn­inga­spá. ­Reikni­líkanið úthlutar svo kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­un­um. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Rauðu kassarnir sýna þann þingmannafjölda sem hver flokkur náði, en inni í þeim er hægt að sjá líkur þess að þeir myndu fá þann fjölda miðað við niðurstöðu 100 þúsund sýndarkosninga.
Rauðu kass­arnir sýna þann þing­manna­fjölda sem hver flokkur náði, en inni í þeim er hægt að sjá líkur þess að þeir myndu fá þann fjölda miðað við nið­ur­stöðu 100 þús­und sýnd­ar­kosn­inga.

Hér að neðan má svo sjá síð­ustu gerðu þing­manna­spá Kjarnans og Baldurs. App­el­sínu­gulur þrí­hyrn­ingur er við mynd þeirra sem á end­anum náðu þing­sæti.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi voru óvænt­ustu tíð­indin þau að Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þriðji maður Fram­sókn­ar­flokks, náði inn en Einar Brynj­ólfs­son, fyrsti maður Pírata, ekki þrátt fyrir að síð­asta þing­manna­spá sýndi 71 pró­sent líkur hans á þing­sæti.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn átti óvænt­ustu tíð­indin í Norð­vest­ur­kjör­dæmi líka þar sem Halla Signý Krist­jáns­dóttir, þriðji maður á lista flokks­ins sem mæld­ist með ein­ungis fimm pró­sent líkur á þing­sæti, flaug inn á þing. Val­garður Lyndal Jónsson, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, sat hins vegar eftir með sárt ennið þótt líkur hans á þing­sæti hafi verið metnar á 93 pró­sent dag­inn fyrir kjör­dag.

Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fór meira og minna eins og við var að búast miðað við síð­ustu gerðu kosn­inga­spá. Gunnar Smári Egilsson, odd­viti Sós­í­alista­flokks hafði mælst með 46 pró­sent líkur á þing­sæti líkt og Brynjar Níelsson, þriðji maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks, en Steinunn Þóra Árna­dóttir, sem var í öðru sæti á lista Vinstri grænna, náði inn í þeirra stað þrátt fyrir að líkur hennar hefðu mælst aðeins lægri, eða 35 pró­sent.

Í hinu Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu varð svipað upp á ten­ingnum. Daði Már Krist­ó­fers­son, vara­for­maður Við­reisnar, og Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, höfðu bæði mælst með 52 pró­sent líkur á þing­sæti en náðu hvorug inn. Upp­bót­ar­þing­menn­irnir í kjör­dæm­inu, Arndís Anna Gunn­ars­dóttir frá Pírötum og Orri Páll Jóhann­es­son frá Vinstri grænum, voru þó að mæl­ast með svip­aðar líkur og þau, eða 53 og 47 pró­sent.

Líkt og í hinum lands­byggð­ar­kjör­dæm­unum kom Framsókn á óvart í Suð­ur­kjör­dæmi með því að ná inn þriðja þing­mann­inum, Hafdísi Hrönn Haf­steins­dóttur. Hún hafði mælst með ein­ungis 23 pró­sent líkur á þing­sæti í síð­ustu gerðu þing­manna­spá. Þá hafði Ásmundur Frið­riks­son, þriðji maður Sjálf­stæð­is­flokks, mælst með 46 pró­sent líkur en hann flaug hins vegar inn á þing. Álf­heiður Eymars­dóttir, odd­viti Pírata (70 pró­sent líkur), og Hólm­fríður Árna­dóttir, odd­viti Vinstri grænna (79 pró­sent), sátu hins vegar eftir með sárt ennið þrátt fyrir að hafa mælst með góðar líkur á þing­sæti.

Líkt og í hinum þétt­býl­is­kjör­dæm­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór flest eftir bók­inni, eða rétt­ara sagt spánni, í Kraganum. Það er helst að Karl Gauti Hjalta­son, odd­viti Mið­flokks­ins, geti verið súr en hann var til­kynntur upp­bót­ar­þing­maður áður en taln­ing­armis­tök í Norð­vest­ur­kjör­dæmi settu af stað hringekju breyt­inga síð­degis á sunnu­dag. Í hans stað mun Píratinn Gísli Rafn Ólafsson verða upp­bót­ar­þing­maður Suð­vest­ur­kjör­dæmis þrátt fyrir að líkur hans á þing­sæti hafi ein­ungis mælst 36 pró­sent í síð­ustu þing­manna­spánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár