Mynd: Bára Huld Beck

Lokaspá: Líkur frambjóðenda á að komast inn á Alþingi

Kjarninn birtir síð­ustu þing­manna­spá sína í aðdrag­anda kosn­inga. Ljóst er að margir fram­bjóð­endur eiga fyrir höndum langar nætur til að sjá hvort þeir nái inn eða ekki og tölu­verðar svipt­ingar hafa orðið á líkum ýmissa frá byrjun viku.

Kjarninn og Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tví­vegis fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og 2020, og þing­kosn­ingar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdrag­anda kosn­inga 2021, í sjö­unda sinn.

Samhliða er keyrð þing­sæta­spá sem byggir á reikni­lík­ani Baldurs. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var í gær­morgun, 15. sept­em­ber. Reikni­líkanið úthlutar svo kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eru tíu þing­sæti í boði. Þeir tíu fram­bjóð­endur sem eru með mestar líkur á að ná þeim mæl­ast með 47 til næstum 100 pró­sent líkur á því að ná kjöri. Af þeim mæl­ast átta á bil­inu 70 til næstum 100 pró­sent. Sá fram­bjóð­andi sem mælist með mestar líkur á að ná inn fyrir utan þann hóp er Jakob Frímann Magn­ús­son, odd­viti Flokks fólks­ins, með 41 pró­sent líkur.

Fast á hæla hans koma Jódís Skúla­dóttir, sem situr í öðru sæti hjá Vinstri grænum, með 38 pró­sent og Hilda Jana Gísla­dótt­ir, sem situr í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, með 37 pró­sent.

Miklar svipt­ingar eru á líkum fram­bjóð­enda á að ná inn frá síð­ustu þing­manna­spá. Líkur Líneikar Önnu Sæv­ars­dóttur, sitj­andi þing­manns sem er í öðru sæti hjá Framsókn, þjóta upp úr 56 í 87 pró­sent. Líkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, á að ná inn aukast sömu­leiðis úr 60 í 70 pró­sent. Anna Kolbrún Árna­dóttir, sem er sitj­andi þing­maður flokks­ins, á þó ein­ungis 11 pró­sent líkur á að halda því sæti.

Þeir sem tapa á milli spáa í kjör­dæm­inu eru Haraldur Ingi Har­alds­son frá Sós­í­alista­flokki, sem fer úr 62 í 47 pró­sent líkur, Einar Brynj­ólfs­son, odd­viti Pírata sem mælist nú með 70 pró­sent líkur á að ná inn en var með 84 pró­sent í byrjun viku, og Eiríkur Björn Björg­vins­son, odd­viti Við­reisnar, sem dalar niður í 58 pró­sent líkur.

Líkur á því að annar þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, Lilja Rann­veig Sig­urð­ar­dótt­ir, nái þing­sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi stór­aukast á milli spáa og fara úr 44 í 64 pró­sent. Odd­viti Sós­í­alista­flokks, Helga J. Thor­berg, fer í hina átt­ina en lík­urnar hennar lækka úr 45 í 29 pró­sent.

Eyjólfur Ármanns­son, odd­viti flokks fólks­ins, hefur bætt mark­tækt við sig líkum í öllum gerðum spám og mælist nú með 47 pró­sent. Það er hins vegar á brattan að sækja fyrir Lilju Raf­ney Magn­ús­dótt­ur, sitj­andi þing­manni Vinstri grænna í kjör­dæm­inu, en lík­urnar á því að hún nái inn eru ein­ungis níu pró­sent.

Sex fram­bjóð­endur í kjör­dæm­inu mæl­ast með 65 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná kjöri, en alls eru átta þing­sæti í boði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Næstu fjórir fram­bjóð­endur mæl­ast svo með 37-57 pró­sent líkur til að ná þeim tveimur þing­sætum sem þá stæðu eftir.

Í því kjör­dæmi Reykja­víkur sem liggur norðan Vest­ur­lands­veg­ar, Miklu­brautar og Hring­brautar eru tölu­verðar svipt­ingar frá því að þing­manna­spáin var tekin saman síð­ast. Gunnar Smári Egilsson, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands lækkar veru­lega frá því í byrjun viku þegar lík­urnar á því að hann næði á þing mæld­ust 65 pró­sent. Þær eru nú undir helm­ings­líkum, eða 46 pró­sent. Steinunn Þóra Árna­dóttir, sitj­andi þing­maður Vinstri grænna, er einnig í mik­illi fall­hættu en ein­ungis 34 pró­sent líkur eru á því að hún nái inn að óbreyttu.

Ásmundur Einar Daðason, ráð­herra úr Fram­sókn­ar­flokknum, stendur í stað milli spáa og mælist með 72 pró­sent líkur á að hljóta þing­sæti. Það ætti að duga honum inn.

Brynjar Níelsson hress­ist á milli spáa og mælist með 46 pró­sent líkur, eða þær sömu og Gunnar Smári, á að kom­ast inn. Þeir eru nú senni­leg­astir til að setj­ast í síð­ustu tvö þing­sæti kjör­dæm­is­ins. Stutt er þó í Tómas A. Tómasson, odd­vita Flokks fólks­ins, sem mælist með 44 pró­sent líkur, og Jón Steindór Valdi­mars­son, sitj­andi þing­mann Við­reisnar, sem mælist með 39 pró­sent líkur.

Þeir tíu þing­menn sem mæl­ast með mestar líkur mæl­ast með 70 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná inn. Neðstur í þeim hóp eru Jóhann Páll Jóhanns­son, sem situr í öðru sæti hjá Sam­fylk­ing­unni, en líkur hans á að ná þing­sæti aukast í 83 pró­sent.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður eru ekki síður vend­ing­ar og spenna Daði Már Krist­ó­fers­son, vara­for­maður Við­reisnar og annar maður á lista þess flokks í kjör­dæm­inu, mælist með 52 pró­sent líkur á að kom­ast inn. Það er sama hlut­fall og Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, mælist með í kjör­dæm­inu en þau eru lík­leg­ust til að taka tvö síð­ustu af ell­efu þing­sætum kjör­dæm­is­ins. Rétt fyrir ofan þau, með nán­ast sömu líkur (53 pró­sent), er Arndís Anna Gunn­ars­dóttir, annar maður á lista Pírata, og rétt fyrir neðan eru Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, og Orri Páll Jóhanns­son, annar maður á lista Vinstri grænna, með 47 pró­sent líkur. Skammt á eftir þeim kemur svo mað­ur­inn sem hefur gert óvissu um þing­sæti á kosn­inga­nótt að lífstíl: Birgir Ármanns­son, fjórði maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks.

Fjóla Hrund Björns­dótt­ir, odd­viti Mið­flokks­ins, dalar á milli spáa og mælist nú ólík­leg inn með 30 pró­sent líkur.

Þeir átta fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mestar líkur á að ná inn á þing í kjör­dæm­inu mæl­ast með 60 til næstum 100 pró­sent lík­ur. Minnstar eru líkur Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dótt­ur, sem situr í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar (60 pró­sent), og Lilju Alfreðs­dóttur, vara­for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins (72 pró­sent).

Í Suð­ur­kjör­dæmi eru tíu þing­sæti í boði. Sex fram­bjóð­endur mæl­ast með 79 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná inn miðað við nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans en þar á eftir er nokkuð jafn­ræði með nokkrum fram­bjóð­end­um.

Álf­heiður Eymars­dóttir, odd­viti Pírata, mælist svo með 70 pró­sent líkur, en skammt á hæla hennar kemur Ást­hildur Lóa Þórs­dótt­ir, odd­viti Flokks fólks­ins, en líkur hennar hafa farið úr 41 í 66 pró­sent á tveimur vikum. Líkur Álf­heiðar lækka skarpt á milli spáa, fara úr 83 í 70 pró­sent.

Odd­viti Við­reisn­ar, Guð­brandur Ein­ars­son, mælist með 64 pró­sent lík­ur og sem stendur eru mestar líkur á að Birgir Þór­ar­ins­son, sitj­andi þing­maður og odd­viti Mið­flokks­ins, hreppi tíunda og síð­asta þing­sæti kjör­dæm­is­ins með 58 pró­sent líkur.

Líkur Ásmundar Frið­riks­son­ar, þriðja manns á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sitj­andi þing­manns, eru komnar upp í 46 pró­sent og Guð­mundur Auð­uns­son, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, mælist með 44 pró­sent líkur.

Líkt og áður er mikil hreyf­ing er í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins sem skilar 13 þing­mönn­um. Átta þing­menn mæl­ast með 85 pró­sent eða meiri líkur á að ná inn og sex aðrir mæl­ast með 50 til 64 pró­sent lík­ur. Það er því æsispenn­andi nótt framundan hjá þeim en ljóst að einn þeirra hið minnsta mun sitja eftir með sárt ennið. Ágúst Bjarni Garð­ars­son, annar maður á lista Fram­sóknar, bætir mestu við sig milli spáa og fer úr 37 í 55 pró­sent líkur á því að verða þing­maður. Óli Björn Kárason, fjórði maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rís sömu­leiðis skarpt úr 45 í 59 pró­sent líkur.

Líkur Sigmars Guð­munds­sonar, ann­ars manns Við­reisnar, lækka um níu pró­sentu­stig milli þing­manna­spáa og standa í 64 pró­sent og líkur Guð­mundar Andra Thors­sonar, sitj­andi þing­manns Sam­fylk­ingar, fara úr 61 í 51 pró­sent. Þá lækkar María Pét­urs­dótt­ir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, úr 62 pró­sent líkum í 50. Á svip­uðum slóðum og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, sitj­andi þing­maður og odd­viti Flokks fólks­ins, sem hefur bætt við sig heilum 16 pró­sentu­stigum á tveimur vikum og á helm­ings­líkur á þing­sæti. Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, mælist með 52 pró­sent lík­ur.

Mest allra lækkar annar maður á lista Pírata í kjör­dæm­inu, Gísli Rafn Ólafsson, sem átti 58 pró­sent líkur á að verða þing­maður í byrjun viku en sá draumur er nú orð­inn æði langsóttur með 38 pró­sent líkur.

Una Hild­ar­dótt­ir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, mælist nú með 36 pró­sent líkur á að ná inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár