Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólksins á mikilli siglingu og mælist nú nánast í kjörfylgi

Á örfáum dögum hefur fylgi Flokks fólks­ins auk­ist um meira en 50 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki mælst hærri í kosn­inga­spánni og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist vera búinn að ná botni sínum.

Flokkur fólks­ins tekur stökk upp á við í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og mælist nú með 6,8 pró­sent fylgi. Flokkur Ingu Sæland mælist nú sjö­undi stærsti flokkur lands­ins eftir að hafa mælst sá minnsti allan þann tíma sem spáin hefur verið keyrð í aðdrag­anda kom­andi kosn­inga, en hún var fyrst keyrð í apríl. Á einni viku hefur Flokkur fólks­ins bætt við sig 2,3 pró­sentu­stigum og aukið fylgi sitt um meira en 50 pró­sent. Í ljósi þess að Flokkur fólks­ins mæld­ist fyrst yfir hinu margrædda fimm pró­sent marki, sem tryggir flokkum jöfn­un­ar­menn, í kosn­inga­spá sem gerð var um helg­ina þá má segja að flokk­ur­inn sé að toppa á réttum tíma, tveimur dögum fyrir kosn­ingar. Sem stendur er Flokkur fólks­ins í nán­ast sama fylgi og hann fékk 2017, þegar 6,9 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn.

Líkurnar á því að Flokkur fólks­ins nái ekki inn manni mæl­ast nú ein­ungis 16 pró­sent, en mæld­ust 44 pró­sent fyrir örfáum dögum síðan.

Ekki er aug­ljóst hvaðan þetta fylgi er að koma en þó liggur fyrir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur misst 0,8 pró­sentu­stig á síð­ustu dögum. Hann mælist nú með 6,5 pró­sent fylgi og hefur ekki mælst minni síðan um miðjan ágúst.

Mið­flokk­ur­inn er hins vegar sá flokkur sem er í mestum vanda. Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar mælist með ein­ungis 5,8 pró­sent fylgi, er minnsti flokk­ur­inn sem mælist inni á þingi og lítið virð­ist ganga að hressa stöð­una við.

Vinstri græn í vanda

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist hafa fundið botn­inn sinn eftir að hafa lækkað í öllum kosn­inga­spám sem keyrðar hafa verið í mán­uð­inum þangað til núna. Flokk­ur­inn bætir við sig 0,3 pró­sentu­stigum og mælist með 21,8 pró­sent fylgi. Það liggur þó fyrir að hann er enn 3,5 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi og 1,9 pró­sentu­stigi undir sinni verstu útkomu í sög­unni í kosn­ingum, sem var árið 2009 þegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 23,7 pró­sent atkvæða.

Annar flokkur sem virð­ist ekki ætla að ná vopnum sínum eru Vinstri græn. Þrátt fyrir að 41 pró­sent þeirra sem tóku þátt í könnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS) síð­ast­liðnar tvær vikur vilji helst sjá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann flokks­ins, sem for­sæt­is­ráð­herra, hafa Vinstri græn haldið áfram að dala í kosn­inga­spánni. Þau mæl­ast nú með slétt ell­efu pró­senta fylgi sem er það minnsta sem flokk­ur­inn hefur haft frá því í vor. Frá byrjun júlí­mán­aðar hafa Vinstri græn misst 3,1 pró­sentu­stig af fylgi og eru nú 5,9 pró­sentu­stigum frá kjör­fylgi sínu.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er hins vegar á sigl­ingu og hefur ekki mælst með meira fylgi í kosn­inga­spánni. Það mælist nú 13 pró­sent sem er 2,3 pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi. Vert er að hafa í huga að í síð­ustu kosn­inga­spánni sem var keyrð fyrir þing­kosn­ing­arnar 2017 mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með einu pró­sentu­stigi undir því sem hann fékk þegar atkvæðin voru talin en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn heilum 2,5 pró­sentu­stigum. Vinstri græn mæld­ust hins vegar með 2,1 pró­sentu­stigum meira fylgi en þau fengu á end­anum.

Frjálslynda miðjan dalar

Af stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum hefur Sam­fylk­ingin bætt hægt og rólega við sig síð­ustu vikur þótt hún dali lít­il­lega á milli spáa. Sem stendur segj­ast 13 pró­sent ætla að kjósa hana sem gerir flokk­inn að næst stærsta flokki lands­ins ásamt Framsókn.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBPCSBDVVPSBVPSCDBMF
>=410.000.000.000.000.000.00
>=420.000.000.000.000.000.00
>=410.000.010.000.010.000.00
>=400.010.010.000.020.000.01
>=390.010.020.000.030.010.01
>=380.020.040.000.050.010.02
>=370.040.060.000.090.020.04
>=360.080.100.000.140.040.07
>=350.120.160.000.210.080.12
>=340.190.240.000.300.120.18
>=330.270.330.000.400.190.26
>=320.370.440.000.510.270.35
>=310.490.550.000.620.370.46
>=300.600.650.010.720.480.57
>=290.700.750.020.800.590.68
>=280.800.830.040.870.700.77
>=270.870.890.070.920.790.84
>=260.920.940.120.960.860.90
>=250.960.960.200.980.910.94
>=240.980.980.290.990.950.97
>=230.990.990.410.990.970.98
>=220.991.000.531.000.980.99

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Viðreisn dalar um 0,7 pró­sentu­stig milli spáa og mælist með 10,1 pró­sent en er samt vel yfir kjör­fylgi og hefur bætt við sig 3,4 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu. Einungis Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur tekið meira nýtt fylgi til sín frá síð­ustu kosn­ingum.

Píratar lækka líka frá síð­ustu kosn­inga­spá, um 0,6 pró­sentu­stig, og mæl­ast með 11,8 pró­sent stuðn­ing.

Fjórir eða fimm flokkar í næstu ríkisstjórn

Líkurnar á að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, saman sett úr Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki, haldi velli voru yfir 60 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Þær næstum helm­ing­uð­ust þegar leið á sept­em­ber­mánuð og voru 31 pró­sent í byrjun viku. Nú hafa þær líkur auk­ist lít­il­lega og mæl­ast 37 pró­sent. Rík­is­stjórnin hefur þó þann skýra mögu­leika að bæta við fjórða flokknum í sam­starfið og halda með því meiri­hluta. Þar koma ein­ungis Viðreisn (93 pró­sent líkur á meiri­hluta) eða Flokkur fólks­ins (77 pró­sent líkur á meiri­hluta) í raun til greina. Ef hægt yrði að fá Mið­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn til að starfa saman eru 35 pró­sent líkur á að sú fjög­urra flokka stjórn næði naumasta meiri­hluta.

Sú rík­is­stjórn sem er senni­leg­ust eins og er, að teknu til­liti til úti­lok­unar sumra flokka á sam­starfi með öðrum og raun­sæju mati á að ekki sé ger­legur sam­starfs­grund­völlur vegna per­sónu­legra aðstæðna hjá ákveðnum flokkum, er rík­is­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Fram­sókn­ar­flokks, en þær eru 51 pró­sent. Skammt á eftir kemur rík­is­stjórn fjög­urra miðju­flokka: Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata og Við­reisnar. Líkurnar á því að þeir flokkar nái meiri­hluta, eru nú 44 pró­sent en lækka tölu­vert milli spáa. Reykja­vík­ur­mód­elið svo­kall­aða mælist svo með 27 pró­sent líkur en var með 41 pró­sent líkur í byrjun viku, enda hafa allir fjórir flokk­arnir sem það inni­heldur lækkað í fylgi milli spáa.

Fimm flokka stjórn áður­nefndra flokka allra flokka sem nefndir eru hér að ofan á 96 pró­sent mögu­leika á því að ná meiri­hluta og gæti verið einn skýr­asti val­kost­ur­inn sem í boði verður, nái níu flokkar inn á þing og ógjörn­ingur verður að mynda fjög­urra flokka stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks.

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 10 – 21. sept­em­ber (24,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 20 – 21. sept­em­ber (vægi 33,4 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 13 -19. sept­em­ber (vægi 42,3 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að nær engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Einungis tvö mynstur ná eitt pró­sent líkum, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks, sem er póli­tískur ómögu­leiki, og stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár