Mynd: Bára Huld Beck

Svona eru líkur frambjóðenda á að komast inn á Alþingi

Hrær­ingar eru í nokkrum kjör­dæmum og sitj­andi þing­menn eru í mik­illi fall­hættu. Afar mjótt er á mun­unum víða en líkur nokk­urra þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna á að ná þing­sæti hafa dreg­ist saman. Kjarninn birtir nýja þing­sæta­spá.

Kjarninn og Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Frá árinu 2014 hefur spáin verið keyrð tví­vegis fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og 2020, og þing­kosn­ingar 2016 og 2017. Hún er því keyrð nú, í aðdrag­anda kosn­inga 2021, í sjö­unda sinn.

Samhliða er keyrð þing­sæta­spá sem byggir á reikni­lík­ani Baldurs. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var í gær­morgun, 15. sept­em­ber. Reikni­líkanið úthlutar svo kjör­dæma- og jöfn­un­ar­sætum út frá nið­ur­stöð­unum. Líkur fram­bjóð­anda á að ná kjöri er þess vegna hlut­fall „sýnd­ar­kosn­inga“ þar sem fram­bjóð­and­inn nær kjöri.

Í stuttu máli er aðferða­fræðin sú að fylgi fram­boða í skoð­ana­könn­unum er talin lík­leg­asta nið­ur­staða kosn­inga að við­bættri óvissu sem byggir á sögu­legu frá­viki kann­ana frá kosn­inga­úr­slitum. Söguleg gögn sýna að fylgni er á milli þess að ofmeta/van­meta fylgi flokks í einu kjör­dæmi og að ofmeta/van­meta fylgi flokks­ins í öðrum kjör­dæmum. Frávikið frá lík­leg­ustu nið­ur­stöðu fyrir flokk er því ekki óháð milli kjör­dæma. Ef frá­vikið er nei­kvætt í einu kjör­dæmi fyrir ákveð­inn flokk aukast lík­urnar á að það sé sömu­leiðis nei­kvætt í öðrum kjör­dæmum.

Í síð­ustu þing­sæta­spá sem birt var á Kjarn­anum var hægt að merkja þá þing­menn hvers kjör­dæmis sem mæl­ast með mestar líkur á að ná þeim þing­sætum sem eru í boði með app­el­sínu­gulum þrí­hyrn­ingi. Það er ekki hægt í þeirri þing­sæta­spá sem nú birt­ist í ljósi þess að einn flokkur hefur bæst við sem hefur meira en fimm pró­sent fylgi, Flokkur fólks­ins, og myndi þar með alltaf ná að minnsta kosti einum kjör­dæma­kjörnum þing­manni og fá úthlutað jöfn­un­ar­þing­mönnum.

Auk þess er það mat rit­stjórnar Kjarnans að svo mjótt sé á mun­unum í nokkrum kjör­dæmum að ekki for­svar­an­legt að gera upp á milli fram­bjóð­enda sem eru nán­ast með sömu líkur á að ná inn.

Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi er til að mynda sá fram­bjóð­andi sem á mestar líkur að ná átt­unda, og síð­asta, þing­sæti kjör­dæm­is­ins með 45 pró­sent líkur á því og sá sem er næstur fyrir ofan hann með 48 pró­sent. Þeir tveir fram­bjóð­endur sem eftir koma mæl­ast með 41 til 44 pró­sent líkur og því má ljóst vera að líkur þess­ara fram­bjóð­enda á að ná inn eru afar svip­aðar. Sömu sögu er að segja í Suð­vest­ur­kjör­dæmi þar sem þrír fram­bjóð­endur mis­mun­andi flokka mæl­ast með 42 til 45 pró­sent líkur á að ná inn.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi eru tíu þing­sæti í boði. Þeir tíu fram­bjóð­endur sem eru með mestar líkur á að ná þeim mæl­ast með 58 til næstum 100 pró­sent líkur á því að ná kjöri. Sá fram­bjóð­andi sem mælist með mestar líkur á að ná inn fyrir utan þann hóp er Jódís Skúla­dóttir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, með 42 pró­sent líkur.

Fast á hæla hennar kemur Hilda Jana Gísla­dóttir, sem situr í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar, með 41 pró­sent líkur en hún bætir umtals­vert við líkur sínar frá síð­ustu þing­manna­spá, þegar þær mæld­ust 34 pró­sent. Jakob Frímann Magn­ús­son, odd­viti Flokks fólks­ins, er þó sá sem bætir mest við líkur sínar milli spáa, en þær fara úr 26 í 34 pró­sent.

Oddviti Sós­í­alista­flokks, Helga J. Thorberg, á nú meiri líkur á að ná inn en annar þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, Lilja Rannveig Sig­urð­ar­dóttir. Það munar þó ein­ungis einu pró­sentu­stigi.

Eyjólfur Ármanns­son, odd­viti flokks fólks­ins, bætir mark­tækt við sig líkum en er enn ósenni­legur inn á þing með 38 pró­sent líkur. Bjarni Jónsson, odd­viti Vinstri grænna, lækkar um fimm pró­sentu­stig frá síð­ustu þing­sæta­spá en á samt sem áður 82 pró­sent líkur á því að ná þing­sæti. Það er hins vegar á brattan að sækja fyrir Lilju Rafney Magn­ús­dóttur, sitj­andi þing­manni Vinstri grænna í kjör­dæm­inu, en lík­urnar á því að hún nái inn eru ein­ungis ell­efu pró­sent.

Sex fram­bjóð­endur í kjör­dæm­inu mæl­ast með 69 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná kjöri, en alls eru átta þing­sæti í boði í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Næstu fjórir fram­bjóð­endur mæl­ast svo með 41-48 pró­sent líkur og eru því allir með svip­aðar líkur á að ná þeim tveimur þing­sætum sem eftir standa.

Í því kjör­dæmi Reykja­víkur sem liggur norðan Vest­ur­lands­vegar, Miklu­brautar og Hring­brautar eru miklar vær­ingar á milli þing­sæta­spáa. Sú mesta líkur Stein­unnar Þóru Árna­dóttur, ann­ars þing­manns Vinstri grænna, á því að ná kjöri hrapa úr 46 í 37 pró­sent. Það færir hana niður fyrir þrjá aðra þing­menn sem berj­ast um ell­efta og síð­asta þing­sæti kjör­dæm­is­ins. Sem stendur eru mestar líkur á að Jón Steindór Valdi­mars­son, annar maður á lista Við­reisnar, nái því en þær mæl­ast 43 pró­sent. Á nán­ast sömu slóðum eru þó Brynjar Níelsson, þriðji maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem lækkar um fimm pró­sentu­stig milli spáa og er með 40 pró­sent líkur, og Tómas A. Tómasson, odd­viti flokks fólks­ins, en líkur hans á að ná inn rísa úr 31 í 39 pró­sent milli þing­sæta­spáa.

Þeir tíu þing­menn sem mæl­ast með mestar líkur mæl­ast með 63 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná inn. Neðstur í þeim hóp eru Jóhann Páll Jóhanns­son, sem situr í öðru sæti hjá Sam­fylk­ing­unni, en líkur hans á að ná þing­sæti aukast úr 56 í 63 pró­sent. Þar á eftir kemur Gunnar Smári Egilsson, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, með 65 pró­sent líkur en gott gengi flokks hans í kosn­inga­spánni hefur aukið líkur hans á að ná inn.

Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður eru ekki síður vend­ingar. Orri Páll Jóhanns­son, annar maður á lista Vinstri grænna, hríð­fellur í líkum milli þing­sæta­spáa, úr 45 í 36 pró­sent líkur. Það þýðir að Daði Már Krist­ó­fers­son, vara­for­maður Við­reisnar og annar maður á lista þess flokks í kjör­dæm­inu, er nú lík­leg­astur til að ná síð­asta þing­sæt­inu með 43 pró­sent líkur. Það stefnir þó í æsispenn­andi bar­áttu um það sæti þar sem nokkrir aðrir fram­bjóð­endur eru með svip­aðar líkur á að ná inn og hann. Þar ber fyrst að nefna Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, sem hækkar sig úr 30 í 38 pró­sent líkur. Fjóla Hrund Björns­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins, mælist líka með 38 pró­sent líkur og Birgir Ármanns­son, þriðji maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks, mælist með 37 pró­sent, en hann lækkar um sex pró­sentu­stig milli spáa.

Þeir tíu fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mestar líkur á að ná inn á þing í kjör­dæm­inu mæl­ast með 56 til næstum 100 pró­sent líkur. Minnstar eru líkur Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, sem situr í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar (56 pró­sent), Arndísar Önnu Helga­dóttur, sem situr í öðru sæti á lista Pírata (62 pró­sent) og Katrínar Bald­urs­dóttur, odd­vita Sós­í­alista­flokks Íslands (64 pró­sent). Þeir sex sem mæl­ast með mestar líkur á að ná inn mæl­ast allir með yfir 90 pró­sent líkur.

Í Suð­ur­kjör­dæmi eru tíu þing­sæti í boði. Sjö fram­bjóð­endur mæl­ast með 83 til næstum 100 pró­sent líkur á að ná inn miðað við nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans en þar á eftir er nokkuð jafn­ræði með nokkrum fram­bjóð­endum. Oddviti Við­reisnar, Guð­brandur Ein­ars­son, mælist með 70 pró­sent líkur, Guð­mundur Auð­uns­son, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, mælist með 53 pró­sent líkur og Birgir Þór­ar­ins­son, sitj­andi þing­maður og odd­viti Mið­flokks­ins, með 52 pró­sent líkur, en hann lækkar um fjögur pró­sentu­stig milli spáa.

Hástökkvar­inn í kjör­dæm­inu frá því að síð­asta spá var keyrð er Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, odd­viti Flokks fólks­ins, en líkur hennar hafa farið úr 41 í 48 pró­sent.

Líkur fram­bjóð­enda tveggja stjórn­ar­flokka í kjör­dæm­inu, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, lækka nokkuð milli spáa. Þannig fara líkur Ásmundar Frið­riks­sonar, þriðja manns á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sitj­andi þing­manns, úr 35 í 39 pró­sent og líkur Hólm­fríður Árna­dóttur, odd­vita Vinstri grænna, úr 88 í 83 pró­sent.

Mikil hreyf­ing er í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, fjöl­menn­asta kjör­dæmi lands­ins sem skilar 13 þing­mönnum, líkt og hinum kjör­dæm­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Átta þing­menn mæl­ast með 85 pró­sent eða meiri líkur á að ná inn og fjórir aðrir mæl­ast með 58 til 73 pró­sent líkur. Í síð­ar­nefnda hópnum bætir María Pét­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins, við sig þremur pró­sentu­stigum milli spáa og er nú með 62 pró­sent líkur á að ná inn. Guð­mundur Andri Thorsson, annar maður á lista Sam­fylk­ing­ar­innar, eykur sömu­leiðis líkur sínar umtals­vert og fer úr 55 í 61 pró­sent.

Óli Björn Kárason, fjórði maður á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þessu kjör­dæmi for­manns hans, lækkar hins vegar um fimm pró­sentu­stig milli spáa og mælist nú með 45 pró­sent líkur á að ná inn. Skammt á hæla hans koma Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, sitj­andi þing­maður og odd­viti Flokks fólks­ins, sem bætir við sig heilum níu pró­sentu­stigum milli spáa og mælist nú með 43 pró­sent líkur á að ná inn, og Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, sem mælist með 42 pró­sent líkur. Una Hild­ar­dóttir, sem situr í öðru sæti á lista Vinstri grænna, mælist nú með 35 pró­sent líkur á að ná inn en þær mæld­ust 42 pró­sent síð­ast þegar þing­sæta­spáin var keyrð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár