Mynd: Bára Huld Beck

Lokaspá: Meiri líkur en minni á að ríkisstjórnin haldi velli

Samkvæmt síð­ustu kosn­inga­spánni mun Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verða í lyk­il­stöðu í fyrra­málið þegar kemur að myndun rík­is­stjórnar, og end­ur­heimtir þar með það hlut­verk sem flokk­ur­inn hefur sögu­lega haft í íslenskum stjórn­málum.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast með sam­an­lagt 47,6 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fyrir kom­andi kosn­ingar. Hún fékk 52,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og er því að tapa 5,3 pró­sentu­stigum milli kosn­inga. Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur á þrátt fyrir það ágæta mögu­leika á því að lifa af og mynda meiri­hluta að nýju, kjósi for­menn flokk­anna það.

Líkur hennar á því að ná því mark­miði eru nú metnar 54 pró­sent sam­kvæmt loka­kosn­inga­spá Kjarnans. Þær juk­ust skarpt undir lok kosn­inga­bar­átt­unnar en í fyrra­dag mæld­ust þær 33 pró­sent. Líkurnar eru þó enn minni en þær mæld­ust um mið­bik ágúst­mán­aðar þegar um 60 pró­sent líkur voru á að rík­is­stjórn Katrínar myndi geta setið áfram með þing­meiri­hluta á bak­við sig.

Lík­urnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ing­ar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi en ekki stöðu sinni

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun sam­kvæmt síð­ustu kosn­inga­spánni fá 22,2 pró­sent atkvæða á morgun og tapa 3,1 pró­sentu­stigi frá kosn­ing­unum 2017. Verði það nið­ur­staðan mun Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sína sístu nið­ur­stöðu í kosn­ingum á lands­vísu frá því að hann var stofn­aður. Vert er þó að taka fram að stjórn­málaum­hverfið í dag er gjör­breytt frá því sem áður var, þegar íslensk stjórn­mál sam­an­stóðu af fjórum megin flokkum og endrum og sinnum af einum til. Nú stefnir í, sam­kvæmt kosn­inga­spánni, að flokk­arnir á þingi geti orðið níu í fyrsta sinn.

Þá hefur það oft verið þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái aðeins meira fylgi en síð­ustu spár bentu til. Árið 2017 fékk flokk­ur­inn til að mynda einu pró­sentu­stigi meira en í síð­ustu kosn­inga­spánni, sem er innan skekkju­marka en skiptir samt máli þegar flokka­kraða­kið er mikið. Þar nýtur hann þess að vera stærsta fjölda­hreyf­ingin í íslenskum stjórn­málum og ára­tuga reynslu við að koma sínu fólki á kjör­stað.

Þriðjungur fylgisins farinn hjá Vinstri grænum

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans, virð­ast ætla að verða sá stjórn­ar­flokkur sem fer verst út úr stjórn­ar­sam­starf­inu. Flokk­ur­inn mælist með ell­efu pró­sent fylgi þrátt fyrir að um 42 pró­sent lands­manna vilji Katrínu áfram sem for­sæt­is­ráð­herra. Þær vin­sældir eiga sér enga hlið­stæðu en næstur í röð­inni sam­kvæmt könnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar kemur Bjarni Bene­dikts­son með 12,8 pró­sent stuðn­ing í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn. Nýleg könnun MMR sýndi sömu­leiðis yfir­burða­stöðu Katrínar hvað þetta varðar þar sem 55,5 pró­sent lands­manna sögð­ust treysta henni vel en 22,7 pró­sent treysta henni illa. Enginn for­maður nýtur meira trausts eða minna van­trausts. Alls sögð­ust 29,1 pró­sent treysta Bjarna en heil 55,5 pró­sent segj­ast treysta honum illa. Enginn for­maður flokks sem mælist með um og yfir tíu pró­sent fylgi nýtur við­líka van­trausts.

Fari sem horfir mun VG tapa rúm­lega þriðj­ungi atkvæða sinna frá síð­ustu kosn­ingum og fyrir vikið má ætla að staða flokks­ins við stjórn­ar­mynd­un­ar­borðið, muni veikj­ast.

Framsókn enn og aftur í kjörstöðu

Sama verður ekki sagt um Fram­sókn­ar­flokk­inn og kosn­inga­spáin bendir raunar til þess að þessir tveir flokkar sem ein­kenna sig með græna litnum muni hafa sæta­skipti í íslenskum stjórn­málum, Gamli bænda­flokk­ur­inn stefnir í að verða næst stærsti flokkur lands­ins og end­ur­heimta þá stöðu sína að vera límið í íslenskum stjórn­málum,

Með Framsókn í 14,4 pró­sent fylgi, 3,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk 2017, er nær ógjörn­ingur að sjá hvernig rík­is­stjórn verði mynduð án flokks­ins. Slag­orðið „Er ekki bara best að kjósa Framsókn“ virð­ist hafa skilað þeim árangri að miklu fleiri sögðu „jú“ en mæld­ust á þeim vagni um miðjan ágúst, þegar fylgi flokks­ins var í kringum kjör­fylgi frá síð­ustu kosn­ingum.

Of lítill ávinningur andstöðuflokka til að breyta stöðunni mikið

Stjórn­ar­and­staðan virð­ist ekki ætla að ríða feitum hesti frá kom­andi kosn­ingum, þrátt fyrir að hafa fengið það verk­efni að takast á við afar óvenju­lega rík­is­stjórn frá hægri, yfir miðju og til vinstri þar sem allir stjórn­ar­flokk­arnir þurftu að gefa, þó mis­mikið, eftir af málum sem segja má að skil­greini þá. Svo virð­ist vera sem að and­stöðu­flokk­unum hafi ekki tek­ist að nýta sér þá stöðu sem neinu nemur.

Sam­fylk­ingin mælist með 13 pró­sent fylgi, sem er bæt­ing frá síð­ustu kosn­ingum en er langt frá þeim stað sem jafn­að­ar­manna­flokkar á hinum Norð­ur­lönd­unum eru á. Langt er síðan að flokk­ur­inn var það mót­væg­is­afl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn á lands­vísu sem hann var stofn­aður til að vera. Síðan í kosn­ing­unum 2009 hefur Sam­fylk­ingin ekki farið yfir 13 pró­sent fylgi í þing­kosn­ingum.

Píratar hafa dalað á loka­metr­unum og mæl­ast nú með 10,7 pró­sent stuðn­ing, sem er bæt­ing frá 2017 en ein­ungis um 1,5 pró­sentu­stig. Flokk­ur­inn sækir fylgi sitt að uppi­stöðu til yngri kjós­enda sem skila sér síst á kjör­stað og til­hneig­ingin hjá Pírötum hefur verið sú að fá minna upp úr kjör­köss­unum en síð­ustu spár gerðu ráð fyrir.

Viðreisn mælist með 9,9 pró­sent fylgi sem er í lægri mörkum þess sem flokk­ur­inn hefur fengið í kosn­inga­spánni í aðdrag­anda kosn­inga. Hann end­ur­heimtir þorra þess fylgis sem hann tap­aði í kosn­ing­unum 2017, alls 3,2 pró­sent, en endar samt sem áður rétt undir þeim stað sem Viðreisn var á eftir kosn­ing­arnar 2016, sem voru þær fyrstu í sögu flokks­ins.

Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka, sem kenna sig við hina frjáls­lyndu miðju, endar í 33,6 pró­sent, eða 5,6 pró­sent yfir því sem þeir fengu fyrir fjórum árum.

Nokkuð ljóst er þó að íslenskir kjós­endur eru að flykkj­ast inn á miðju stjórn­mál­anna. Ef fylg­is­aukn­ing Fram­sókn­ar­flokks­ins er lögð við ofan­greint þá liggur fyrir að miðju­flokk­arnir fjórir bæta við sig 9,3 pró­sentu­stigum af fylgi á kjör­tíma­bil­inu. Svo er að sjá hvort það skili því að fram­tíðin ráð­ist á miðj­unni.

Þrír í botnbaráttunni

Þrír flokkar eiga á hættu að ná ekki inn á þing, þótt þeir mælist allir inni í síð­ustu kosn­inga­spánni. Sós­í­alista­flokkur Íslands átti sviðið framan af kosn­inga­bar­átt­unni og mæld­ist um tíma með átta pró­sent fylgi. Þá tal­aði for­víg­is­maður flokks­ins um að á loka­sprett­inum væri hægt að auka það fylgi veru­lega og skila honum yfir tveggja stafa tölu. Raunin hefur orðið önnur og síð­ustu vikur hefur Sós­í­alista­flokk­ur­inn dalað skarpt í kosn­inga­spánni. Nú, á kjör­dag, mælist fylgi 5,8 pró­sent og flokk­ur­inn er minnstur þeirra sem mæl­ast inni á þingi.

Af þeim flokkum sem berjast í neðsta þriðjungi íslenskra stjórnmála hefur Flokkur fólksins átt besta endasprettinn.
Af þeim flokkum sem berj­ast í neðsta þriðj­ungi íslenskra stjórn­mála hefur Flokkur fólks­ins átt besta enda­sprett­inn.

Mið­flokk­ur­inn hefur ekki náð neinu flugi og endar í 6,2 pró­sent í kosn­inga­spánni. Skoð­ana­kann­anir hafa mælt hann mis­mun­andi síð­ustu daga og jafn­vel út af þingi. Nokkuð öruggt verður þó að telj­ast að for­mað­ur­inn, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son nái hið minnsta inn sem kjör­dæma­kjör­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og senni­legt að hann dragi með sér ein­hverja jöfn­un­ar­þing­menn. Sú staða sem Mið­flokk­ur­inn hafði eftir síð­ustu kosn­ingar, þegar hann var sig­ur­veg­ari þeirra með 10,9 pró­sent atkvæða, er þó horf­inn. Ljóst er að þing­flokk­ur­inn, sem nú telur níu eftir við­bót­ina sem Mið­flokk­ur­inn fékk úr Flokki fólks­ins eftir klaust­ur­málið, mun skerð­ast niður í þrjá eða fjóra.

Flokkur fólks­ins mælist nú með 6,2 pró­sent fylgi eins og Mið­flokk­ur­inn og loka­sprettur Ingu Sæland virð­ist aftur ætla að skila honum inn á þing, en flokk­ur­inn mæld­ist fyrst yfir fimm pró­sent mark­inu á lands­vísu sem tryggir jöfn­un­ar­þing­menn í byrjun viku.

Fleiri möguleikar í boði en áframhaldandi stjórn

Nái rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír ekki meiri­hluta, eða ef þeir telja þann meiri­hluta sem kemur upp úr kjör­köss­unum vera og tæpan, þá geta þeir alltaf kippt einum flokki í við­bót inn í sam­starfi. Sá flokkur verða ekki Sam­fylk­ing eða Píratar, sem hafa úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, en gæti verið Viðreisn eða Flokkur fólks­ins. Líkurnar á því að núver­andi stjórn­ar­flokkar og Viðreisn nái meiri­hluta eru nær algjörir, eða 97 pró­sent. Líkurnar á meiri­hluta með flokk Ingu Sæland um borð eru 83 pró­sent. Líkurnar á því að skipta út til dæmis Vinstri grænum og taka Viðreisn um borð í miðju-hægri stjórn eru einnig ágætar, eða 43 pró­sent.

Ef mynda á fjög­urra flokka rík­is­stjórn án Sjálf­stæð­is­flokks eru mestar líkur á því að mynda slíka frá miðju til vinstri, með aðkomu Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks. Lík­urnar á þeim meiri­hluta eru 54 pró­sent. Ef Vinstri grænum yrði skipt út fyrir Við­reisn fara lík­urnar niður í 48 pró­sent og ef allir fimm miðju- og hægri flokk­arnir myndu ákveða að vinna saman eru 97 pró­sent líkur á því að þeir nái meiri­hluta.

Reykja­vík­ur­mód­elið svo­kall­aða, sem sam­anstendur af Vinstri græn­um, Sam­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn, mælist með ein­ungis 24 pró­sent líkur á því að ná meiri­hluta.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 13 – 23. sept­em­ber (12,2 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu 22. – 24. sept. (29,1%)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 17 – 21. sept­em­ber (11,6 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 20 – 21. sept­em­ber (vægi 18,3 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 20 -24. sept­em­ber (vægi 28,8 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að nær engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Einungis eitt mynstur nær tveggja pró­senta líkum, stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár