Fleiri kjósendur Sjálfstæðisflokks vilja Katrínu sem forsætisráðherra en Bjarna

Alls segj­ast 45,2 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins að þeir vilji fá for­mann Vinstri grænna til að leiða þá rík­is­stjórn sem mynduð verður eftir kosn­ingar.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Fleiri sem segj­ast ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn á síð­ustu tíu dögum vilja sjá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, sem for­sæt­is­ráð­herra eftir kom­andi kosn­ingar sem fram fara næst­kom­andi laug­ar­dag en Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Alls segj­ast 45,2 pró­sent þeirra vilja sjá Katrínu halda for­sæt­is­ráð­herra­stólnum eftir kosn­ingar en 44,2 pró­sent nefna Bjarna, sem hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2009. Þá segj­ast 6,7 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokk að þeir vilji Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem næsta for­sæt­is­ráð­herra.

Þetta kemur fram í könnun Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS) á því hvern kjós­endur vilji helst sjá sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands eftir kosn­ing­arnar. Byggt er á svörum síð­ustu tíu daga. Í dag var birt nýtt nið­ur­brot á svörum þátt­tak­enda við þeirri spurn­ingu þar sem þau eru skil­yrt á stuðn­ing við flokk. Þar kemur ofan­greint skýrt fram.

Umtals­verður hluti kjós­enda Pírata (43,4 pró­sent), Fram­sókn­ar­flokks (41 pró­sent), Sam­fylk­ingar (33,1 pró­sent) og Við­reisnar (30,1 pró­sent) vilja líka sjá Katrínu sem næsta for­sæt­is­ráð­herra frekar en for­menn þeirra flokka en þar er hlut­fallið ekki jafn hátt og stuðn­ingur við hana er á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

[adspot]Í öllum til­fellum nema hjá kjós­endum Pírata er þó staðan þannig að kjós­end­urnir vilja frekar for­mann þess flokks sem þeir ætla að kjósa sem for­sæt­is­ráð­herra en Katrínu. Kjós­endur Pírata eru nákvæm­lega jafn­hrifnir af því að Halldóra Mogensen, sem verður full­trúi þeirra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum eftir kosn­ingar, verði næsti for­sæt­is­ráð­herra og að Katrín sitji áfram í stjórn­ar­ráð­inu.

Tólf prósent vilja Bjarna sem forsætisráðherra

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 21,5 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og er áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­unum. Samt sem áður nefna ein­ungis 12,2 pró­sent þátt­tak­enda í könn­un­inni síð­ustu tíu daga Bjarna Bene­dikts­son sem þann for­mann sem þeir vilja að verði for­sæt­is­ráð­herra eftir kosn­ingar. Því blasti við að ekki einu sinni allir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks styddu for­mann flokks­ins í for­sæt­is­ráð­herra­starfið. Það hversu margir kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hefur ætið skil­greint sig til hægri í stjórn­málum, vilja fá leið­toga flokks sem er einna mest til vinstri í íslenska stjórn­mála­litrof­inu sem næsta for­sæt­is­ráð­herra vekur þó athygli.

Nær allir kjós­endur Vinstri grænna, alls 96,8 pró­sent, vilja sjá Katrínu Jak­obs­dóttur sem næsta for­sæt­is­ráð­herra, en alls hafa tæp­lega 41 pró­sent þátt­tak­enda í rann­sókn­inni síð­asta tíu daga nefna Katrínu sem þann stjórn­mála­mann sem þeir vilja í stjórn­ar­ráðið.

Einu kjós­endur flokks sem eru jafn ein­huga á bak­við stuðn­ing við sinn for­mann í for­sæt­is­ráð­herra­emb­ættið og kjós­endur Vinstri grænna eru, eru kjós­endur Mið­flokks­ins. Þeir sjá nán­ast engan annan en Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sem mann­inn til að leiða næstu rík­is­stjórn, en 85,9 pró­sent þeirra nefna hann. Litlar sem engar líkur eru þó á því að þeir fái þá ósk sína upp­fyllta þar sem Mið­flokk­ur­inn mælist með ein­ungis sex pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni sem dugar honum vart til að gera kröfu um for­sæt­is­ráð­herra­emb­ættið eftir kom­andi kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár