Forysta Pírata, VG og Samfylkingar útilokar samstarf við Sjálfstæðisflokk

For­ystu­fólk Pírata, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar úti­loka sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir næstu kosn­ingar. Formaður VG og þing­flokks­for­maður Pírata segja flokk­inn hafa stimplað sig frá sam­starfi með því að úti­loka kerf­is­breyt­ingar.

Birgitta Jónsdóttir, Oddný Harðardóttir og Katrín Jakobsdóttir útiloka allar samstarf við Sjálfstæðisflokk eftir næstu kosningar.
Birgitta Jóns­dóttir, Oddný Harð­ar­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir úti­loka allar sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk eftir næstu kosn­ingar.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, og Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, úti­loka allar sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir næstu kosn­ingar. Þær gagn­rýna allar harð­lega skrif Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um að ekki eigi að kjósa í haust. Birgitta und­ir­strikar að hún geti þó ekki talað fyrir alla Pírata.

Stimplaði sig frá samstarfi

Birgitta segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa stimplað sig út úr mögu­leikum á sam­starfi með Pírötum þegar hann hafn­aði til­lögum um kerf­is­breyt­ingar.

„Mál eins og Stjórn­ar­skráin, hvernig þingið fún­kerar, hvernig stjórn­sýslan virkar og breyt­ingar á henni, sem og und­ir­stofn­unum ráðu­neyta,“ segir Birgitta í sam­tali við Kjarnann. Hún segir flokka eiga að ganga til kosn­inga þannig að menn viti hverjir vilji vinna saman.

Vilja vinna til vinstri

Katrín Jak­obs­dóttir tekur í sama streng og Birgitta.

„Við höfum verið algjör­lega afdrátt­ar­laus með það allan tím­ann að við viljum vinna til vinstri. Þannig viljum við vinna og ég tel eðli­legt að ef stjórn­ar­and­staðan fær til þess um umboð þá er eðli­legt að hún myndi rík­is­stjórn byggða á mál­efnum,“ segir Katrín við Kjarnann. Hún nefnir þar efna­hags- og atvinnu­líf, jöfnuð, öfl­ugt vel­ferð­ar­kerfi og sjálf­bæra atvinnu­stefnu með hags­muni nátt­úr­unnar í for­gangi. „Við liggjum lengst frá Sjálf­stæð­is­flokknum í okkar stefnu,“ segir hún.

„Hann stimpl­aði sig frá sam­starfi við stjórn­ar­and­stöð­una þegar hann lýsti því yfir að hann muni berj­ast gegn öllum kerf­is­breyt­ingum.“

„Aldrei samstarf við Sjálfstæðisflokkinn“

Oddný Harð­ar­dóttir er afdrátt­ar­laus.

„Það verður aldrei sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn,“ segir hún. „Það er of stutt síðan við vorum með þeim í rík­is­stjórn og það fór ekki vel. Framsókn er auð­vitað með félags­lega taug en við mundum alltaf snúa okkur að stjórn­ar­and­stöð­unni fyrst,“ segir Oddný.

Nær Viðreisn en VG

Birgitta segir að Viðreisn sé flokkur sem Píratar gætu fundið sam­hljóm með.

„Að mörgu leyti erum við nær þeim heldur en VG um margt - en það er ómögu­legt að sjá hvernig þetta fer. Ég hef aldrei séð jafn mikla óvissu í kring um nokkrar kosn­ingar, þegar það er svona stutt í kosn­ingar, ef þær verða þá í haust,“ segir hún. „Þetta eru ein­hverjar mik­il­væg­ustu kosn­ingar í sögu lands­ins.“

„Þá eru þeir bara svikarar“

Sig­mundur Davíð boð­aði end­ur­komu sína í stjórn­málin í gær og sagði þar að kosn­ingar í haust væru glapræði.

Oddný segir Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafa staðið í tröppum þing­húss­ins og lofað að stytta kjör­tíma­bilið um eitt þing.

„Í stefnu­ræðu sinni tal­aði for­sæt­is­ráð­herra um þrjú mál sem þurfi að klára: gjald­eyr­is­höftin, hús­næð­is­málin og gjald­töku fyrir heil­brigð­is­kerfið. Það er frá­gengið,“ segir hún. „Það er ekk­ert hægt að bæta við. Þá eru þeir bara svik­arar og eru að svíkja fólkið í land­inu enn einu sinni.“

Táknmynd um það sem koma skal

Birgitta segir að það sé ekki hægt að breyta yfir­lýs­ingum frá for­sæt­is­ráð­herra um kosn­ingar í haust.

„Ef þeir geta ekki staðið við þetta lof­orð, þá er það tákn­mynd um það hvað þeir eiga erfitt með að standa við yfir­lýs­ingar eftir kosn­ingar. Orð skulu standa. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á þetta,“ segir hún. „Það er ótrú­legt að for­seti Alþingis hafi ekki meira bein í nef­inu en svo að hann sendi frá sér skýr skila­boð að ef fólk kemur ekki með mál í upp­haf þings mundu þau ekki fara á dag­skrá. Það mundi auka virð­ingu Alþingis.“

Aldrei hægt að gefa sér fjögur ár

Katrín segir enga rík­is­stjórn geta gefið sér það að hún hafi nákvæm­lega fjögur ár til að ljúka verk­efnum.

„Það hefði verið eðli­legt að kjósa síð­asta vor,“ segir hún. „Það er skrýtið að fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra átti sig ekki á ástæð­unni fyrir því að það var ákveðið að ganga til kosn­inga. Starfs­á­ætlun Alþingis var breytt til að kjósa í haust og það eru allir aðrir að miða við þetta.“

Uppfært klukkan 11:30

Ekki náð­ist í Óttarr Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, við vinnslu þess­arar fréttar. Viðbrögð hans og Bene­dikts Jóhann­es­sonar, for­svars­manns Við­reisnar, má sjá hér.

Ekki náð­ist í Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks, eða Sigurð Inga Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár