Listinn reyndist ekki vera til

Ekki rétt að meiri­hluti fíkni­efna­deildar hafi í sam­ein­ingu gert athuga­semdir við störf lög­reglu­full­trúa.

Þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn greindi Vísir.is frá því að meiri­hluti fíkni­efna­deildar hefði í sam­ein­ingu gert alvar­legar athuga­semdir við störf sam­starfs­manns síns, lög­reglu­full­trúa sem sagður var hafa átt í óeðli­legum sam­skiptum við aðila úr fíkni­efna­heim­inum en hefur nú verið hreins­aður af þeim ásök­unum.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ítrekað vísað til list­ans í umræðum um mál­efni fíkni­efna­deildar. „Hún var alltaf að veifa þessu, að níu starfs­menn – meiri­hluti fíkni­efna­deildar – hefðu skilað til sín und­ir­rit­aðri van­traust­s­til­lögu,“ segir einn af heim­ild­ar­mönnum blaðs­ins. Þremur öðrum við­mæl­endum Stund­ar­innar innan úr lög­reglu ber einnig saman um þetta. 

Fyrr í sumar sendi Kristján B. Thorlacius, lög­maður lög­reglu­full­trú­ans, Sigríði Björk tölvu­póst og fór fram á að list­inn yrði afhentur skjól­stæð­ingi sínum. Benti lög­mað­ur­inn á að ítrekað hefði verið vísað til list­ans við með­ferð máls­ins og til þess að á list­anum væri að finna nöfn og und­ir­skriftir lög­reglu­manna sem kvartað hefðu til lög­reglu­stjóra og óskað eftir að fram færi rann­sókn á meintum brotum lög­reglu­full­trú­ans.

Lög­mað­ur­inn fékk þau svör frá Sigríði um miðjan júlí­mánuð að list­inn væri ekki til. Þetta hefur valdið nokkrum titr­ingi innan emb­ættis lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ekki síst í ljósi þess að fólk í yfir­stjórn lög­regl­unnar stóð í þeirri trú að list­inn væri raun­veru­legur. Mun Sigríður hins vegar hafa vísað til þess að það ríkti trún­aður milli hennar og þeirra sem skrifað hefðu undir. 

Ítarlega var fjallað um mál­efni gömlu fíkni­efna­deild­ar­innar í Stund­inni á dög­unum. Greint var frá því að lög­reglu­menn sem höfðu lög­reglu­full­trúa í fíkni­efna­deild fyrir rangri sök hefðu verið hækk­aðir í tign, fengið óaug­lýsta stöðu og hlotið ann­ars konar fram­gang í starfi. Þeir sem stóðu með lög­reglu­full­trú­anum hefðu hins vegar verið settir út í horn. Í skýrslu­tökum hjá hér­aðs­sak­sókn­ara lýstu lög­reglu­menn ólgu, ósætti og flokka­dráttum og haft var á orði að „smá­kónga­stríð“ geis­aði innan fíkni­efna­deildar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Valdatafl í lögreglunni

FréttirValdatafl í lögreglunni

Rann­sóknir fíkni­efna­mála í lama­sessi og mið­læga deildin sögð „gjör­sam­lega í molum“

Lítið er um frum­kvæð­is­rann­sóknir og lög­reglan ræður ekki lengur við umfangs­mikil fíkni­efna­mál. „Óstarf­hæft“ og „hand­ó­nýtt batt­erí“ eru dæmi um ein­kunnir sem lög­reglu­menn gefa vinnu­staðnum. Yfir­maður mið­lægu deild­ar­innar hættir og hverfur aftur til fyrri starfa hjá sér­sveit­inni.

21 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár