Kristjaníubúar fá tilboð

Danska ríkið hefur gert íbúum Krist­janíu til­boð sem felur í sér umtals­verðar breyt­ingar frá núver­andi skipu­lagi. Íbúum „frí­rík­is­ins“ myndi fjölga tals­vert ef breyt­ing­arnar ganga eftir. Samn­inga­við­ræður milli íbú­anna og rík­is­ins standa yfir.

Kristjanía er eins konar undraland í miðri Kaupmannahöfn.
Krist­janía er eins konar undra­land í miðri Kaup­manna­höfn. Mynd: Unsplash/Annie Spratt

26. sept­em­ber næst­kom­andi verða 51 ár síðan hópur fólks lagði undir sig 34 hekt­ara svæði í Kaup­manna­höfn og gaf því nafnið Krist­janía. Umrætt svæði var á Krist­jáns­höfn og hafði verið umráða­svæði hers­ins sem ekki nýtti það lengur. Á svæð­inu, sem var í eigu rík­is­ins, voru fjöl­margar bygg­ingar sem höfðu til­heyrt hernum. Á þessum tíma var mikil hús­næðisekla í Kaup­manna­höfn og margir sáu sér leik á borði að setj­ast að í „frí­rík­inu“. Þar var ódýrt hús­næði í boði en jafn­framt mögu­legt að byggja (oft með aðstoð vina og kunn­ingja) íbúð­ar­hús, sem kannski upp­fyllti ekki strangar kröfur bygg­inga­reglu­gerðar, en var þó það sem mestu skipti: þak yfir höf­uðið. Húsa­gerðin ber þess skýr merki að þar hefur hug­mynda­flug og efna­hagur hús­byggj­enda ráðið ferð­inni en ekki strangar reglur um sam­ræmdar götu­línur og útlit. Útkoman er enda eftir því: sund­ur­gerð­ar­stíll sem er í algjörri mót­sögn við það sem sjá má víð­ast hvar ann­ars staðar.

[adspot]Auðvelt að ná í „grasið“

„Yfir­takan“ á Krist­jan­í­u­svæð­inu kom stjórn­völdum í opna skjöldu og þetta nýja ,,frí­ríki“ vakti strax mikla athygli, langt út fyrir danska land­steina. Á árunum kringum 1970 var hassneysla orðin all útbreidd, þótt við­skipti með „grasið“ bryti í bága við lög. Krist­janía varð fljót­lega eins­konar mið­stöð við­skipta með „grasið“ og þangað streymdu við­skipta­vinir víða að. Ferða­manna­straum­ur­inn á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar var ekki í lík­ingu við það sem síðar varð en Krist­janía varð fljót­lega, og er enn, meðal vin­sæl­ustu við­komu­staða ferða­manna í Danmörku, sem vildu sjá með eigin augum mann­lífið í „frí­rík­inu“. „Gras­neyt­endur“ í Kaup­manna­höfn hafa líka gjarna lagt leið sína í Krist­janíu, straum­ur­inn löngum stríð­astur á föstu­dögum. Við­skiptin hafa frá upp­hafi að mestu verið tak­mörkuð við eina götu „Pusher Street“.

Frumbyggjarnir orðnir ,,hálfgerðir gamlingjar“

Upp­haf­lega voru íbúar Krist­janíu í kringum eitt þús­und en hafa lengi verið í kringum átta hund­ruð. Margir þeirra sem sett­ust að í Krist­janíu í upp­hafi búa þar enn, og með­al­aldur íbú­anna hefur, öfugt við öll önnur hverfi Kaup­manna­hafnar, hækkað. Skrifari þessa pistils ræddi fyrir nokkrum árum við tals­mann íbúa­sam­taka Krist­janíu. Sá hafði búið þar frá árinu 1976, var þá lið­lega tví­tugur og sagð­ist vera dæmi­gerður krist­janitti, eins og íbú­arnir kalla sig. Aðspurður um ástæður þess að hann, ásamt kærust­unni, sett­ist þar að sagði mað­ur­inn að þau hefðu verið svo heppin að kom­ast þar yfir lítið hús. Þau eign­uð­ust tvö börn og end­ur­bættu og stækk­uðu húsið þar sem þau bjuggu enn þegar pistil­skrif­ari ræddi við hann, „nú að verða hálf­gerðir gaml­ingjar“ eins og mað­ur­inn orð­aði það. Hann var útlærður raf­virki og hafði alla tíð unnið sem slíkur í Kaup­manna­höfn. Að sögn hafði aldrei komið til tals að flytja úr Krist­janíu og mað­ur­inn bætti því við að hann hefði aldrei reykt neitt sterkara en Prince sígar­ettur, en væri fyrir löngu hættur því. Annað barna hans, sonur sem er verk­fræð­ingur, býr í Krist­janíu en dóttirin býr skammt frá, á Krist­jáns­höfn. Saga þessa manns er lík­lega dæmi­gerð, flestir sem setj­ast að í Krist­janíu vilja hvergi ann­ars staðar vera.

Alla tíð umdeild

Krist­janía hefur alla tíð verið umdeild. Lögregla og stjórn­völd iðu­lega gagn­rýnd fyrir lin­kind og umburð­ar­lyndi. Í Krist­janíu lið­ist margt sem ekki væri umborið ann­ars staðar og nauð­syn­legt væri að „hreinsa til og losna við þennan skríl“. Ummæli af þessu tagi mátti iðu­lega sjá og heyra í fjöl­miðlum en mjög hefur dregið úr slíku í seinni tíð. Íbúarnir bjuggu lengi við mikla óvissu um fram­tíð svæð­is­ins „maður veit aldrei með þessa póli­tíkusa“ sagði einn krist­janitti í við­tali við danska útvarpið árið 2010, og mælti þar lík­lega fyrir munn margra íbúa. Málefni og fram­tíð Krist­janíu hafa margoft komið til umræðu í danska þing­inu, en það hefur litlu breytt.

Fast land undir fótum eftir 41 ár

Árið 2011, réttum 40 árum eftir að „frí­ríkið“ varð til náð­ist sam­komu­lag um kaup­samn­ing milli rík­is­ins og íbúa Krist­janíu. Sam­komu­lagið var form­lega und­ir­ritað og stað­fest í byrjun júlí 2012. Selj­and­inn var danska ríkið og kaup­and­inn Frista­den Christiania. Kaup­verðið var 76.3 millj­ónir danskra króna (1,4 millj­arðar íslenskir á núvirði), sem greiða skyldi á 30 árum. Mikla athygli vakti að í samn­ingnum var ákvæði sem kvað á um rík­is­á­byrgð á lán­inu, sem sé að svæðið skyldi ekki tekið af krist­janitt­unum ef svo færi að þeir gætu ekki staðið í skilum með afborg­anir. Fyrir íbúa Krist­janíu var samn­ing­ur­inn mik­il­vægur, því með honum var fram­tíð svæð­is­ins tryggð og jafn­framt að yfir­bragð þess yrði með svip­uðum hætti og verið hafði frá upp­hafi. Fyrir ríkið var líka mik­il­vægt að ljúka ára­löngum deilum. Árið 2017 reyndi á sam­komu­lagið þegar nýr reið­hjóla­stígur var lagður þvert yfir hluta Krist­jan­í­u­svæð­is­ins, stígur þessi teng­ist hjóla- og göngu­brú frá Nýhöfn­inni og út á Amager. Krist­janitt­arnir voru mót­fallnir lagn­ingu stígs­ins en með samn­ingnum höfðu þeir skuld­bundið sig til að hlíta almennum skipu­lags­reglum og stíg­ur­inn er vin­sæll og mikið not­aður af hjól­reiða­fólki. Rétt er að taka fram að samn­ing­ur­inn náði ein­ungis til hluta svæð­is­ins sem áður til­heyrði hernum, stór hluti þess var áfram í eigu rík­is­ins.

Tíu ára ákvæðið

Þegar sam­komu­lagið um Krist­janíu var gert árið 2012 var í því ákvæði um að 10 árum síðar skyldi sam­komu­lagið end­ur­skoðað. Þessa dag­ana eru krist­janitt­arnir að skoða til­boð rík­is­ins. Tilboðið gengur í stuttu máli út á að íbúar Krist­janíu sam­þykki að byggðar verði leigu­í­búðir, sam­tals um 15 þús­und fer­metrar á svæð­inu sem nú til­heyrir áður­nefndum Frista­den Christiania. Þær verði leigðar út sam­kvæmt gild­andi úthlut­un­ar­reglum sveit­ar­fé­lags­ins Kaup­manna­hafnar. Í stað­inn býðst Frista­den Christiania að kaupa aukið land­svæði og bygg­ingar sem þar eru fyrir 67 millj­ónir danskra króna (1,2 millj­arða íslenska) á lang­tíma­láni með rík­is­á­byrgð. Enn­fremur myndi ríkið standa straum af útgjöldum vegna við­gerða og end­ur­bóta á tveimur frið­uðum bygg­ingum á svæð­inu. Enn­fremur eru í til­boði rík­is­ins mögu­leiki á láni, (upp­hæðin ekki til­greind) til end­ur­bóta og nýbygg­inga.

Þegar málið var til með­ferðar í danska þing­inu, Fol­ket­inget, urðu um það miklar umræður en sam­komu­lags­drögin að lokum sam­þykkt. Fyrir nokkrum dögum greindi dag­blaðið Berl­ingske frá óánægju nokk­urra þing­manna sem töldu þann samn­ing sem lagður hefði verið fram ekki í sam­ræmi við sam­komu­lagið sem gert var í þing­inu. Þegar þessar línur eru settar á blað liggur ekki fyrir hvort krist­janitt­arnir sam­þykkja til­boð rík­is­ins. Því þurfa þeir að svara fyrir 29. ágúst næst­kom­andi. Ef íbúar Krist­janíu sam­þykkja til­boðið kemur það vænt­an­lega aftur til kasta þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár