Lægri húsnæðislánavextir og aukin eftirspurn skila mikilli hækkun á fasteignamati

Fast­eigna­mat fyrir allar fast­eignir lands­ins hækkar um 7,4 pró­sent milli ára. Það þýðir að eig­endur fast­eigna sjá eigið fé sitt í þeim aukast en selji þeir ekki fast­eign­ina, og leysi þá hækkun út, er raun­veru­leik­inn ein­faldur: hærri skattar.

Fast­eigna­mat Þjóð­skrár fyrir allar fast­eignir á Íslandi hækkar um 7,4 pró­sent fyrir næsta ár. Fast­eignir lands­manna verða þá metnar á 10.340 millj­arða króna. Þetta er mun meiri hækkun en var milli 2020 og 2021 þegar fast­eigna­matið hækk­aði um 2,1 pró­sent. Hún kemur þó ekki á óvart enda fast­eigna­mark­að­ur­inn verið afar líf­legur síð­ast­liðið ár í kjöl­far þess að vextir voru lækk­aðir í sögu­lega lága tölu. Hækkun á íbúða­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu milli apríl 2021 og sama mán­aðar 2020 var til að mynda sú mesta sem mælst hefur frá árinu 2007.

Í til­kynn­ingu frá Þjóðskrá segir að sam­an­lagt mat íbúða á öllu land­inu hækki um 7,9 pró­sent á milli ára og verði alls 7.221 millj­arðar króna á næsta ári. Þar af hækkar sér­býli um 8,2 pró­sent á meðan fjöl­býli hækkar um 7,7 pró­sent. Almennt er hækkun á íbúð­ar­mati á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 8,9 pró­sent en 5,2 pró­sent á lands­byggð­inni.

Af ein­stöku bæj­ar­fé­lögum er hækk­unin mest á Bol­ung­ar­vík, 30,7 pró­sent. Eina sveit­ar­fé­lagið þar sem íbúð­ar­matið lækkar á milli ára er í Grund­ar­fjarð­arbæ en þar lækkar matið um 0,5 pró­sent.

Fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis hækkar um 6,2 pró­sent á land­inu öllu; um 5,4 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 8,0 pró­sent á lands­byggð­inni. Þá hækkað fast­eigna­mat sum­ar­húsa um 4,1 pró­sent á öllu land­inu.

Hækkar skatta sem greiðast til sveitarfélaga

Eigendur fast­eigna geta nú flett því upp á vef Þjóð­skrár, www.skra.is, hver áhrif nýja fast­eigna­mats­ins er á virði eigna þeirra. Aukið virði eign­anna býr til meira eigið fé á pappír fyrir alla þá sem sjá það hækka milli ára.

En fyrir flesta, sem eru ekki að selja eign­ina sína og leysa út þann hagnað þá þýðir hærra fast­eigna­mat ein­fald­lega eitt: hærri fast­eigna­skatta, sem eru annar af tveimur meg­in­tekju­stofnun sveit­ar­fé­laga. Fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði í Reykja­vík, stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, var lækk­aður um tíu pró­sent á árinu 2017 úr 0,20 í 0,18 pró­sent af fast­eigna­mati. Þannig er hann enn. Auk þess voru afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum aukn­ir. Fast­eigna­skattar á atvinnu­hús­næði í höf­uð­borg­inni eru 1,6 pró­sent.

Þegar hús­næð­is­verð hækkar hratt, líkt og það hefur gert á Íslandi á und­an­förnum árum, þá aukast tekjur sveit­ar­fé­laga af fast­eigna­sköttum veru­lega sam­hliða. Reykja­vík­ur­borg næstum tvö­fald­aði til að mynda tekjur sínar vegna fast­eigna­skatta frá árinu 2013 og fram til loka árs 2019, en á tíma­bil­inu fóru þær úr 11,6 millj­örðum króna í 21,1 millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár